Tíminn - 28.03.1982, Síða 28

Tíminn - 28.03.1982, Síða 28
Sunnudagur 28. mars 1982 „Þessir óðu rakkar verði skotnir, allir sem einn” v!va;a . — Réttarhöldin í Moskvu 1936-38 þegar Stalín lét útrýma gömlu bolsévíkunum ■ Það er hafin valdabarátta i Kreml. Leónid Brésnjef er, segja menn, á siðasta snúningi og hugsanlegir arftakar hans komn- ir á skrið að tryggja sér sem besta aðstöðu þegar karlinn hrekkur upp af eða fer úr embætti með öðrum hætti. (Úrslit liggja auðvitað ekki fyrir, en væri það ekki prýðilega kaldhæðnislegt ef ofan á yrði maður nokkur sem stýrir flokksdeild kommúnista i Leningrað og heitir... Rómanov! Sagan-endurtekur-sig, og allt það.) Það má búast við að hrollur fari um heiminn þegar Kremlar- herrar berast á banaspjótum, áróðursbrögð þeirra hver gegn öðrum verða væntanlega ekki smá i sniðum. Hér ætlum við að rifja upp frægasta dæmið um valdabaráttu i Kreml: hreinsanir Stalíns á árunum 1936-38 og þó einkum réttarhöldin sem hann lét halda yfir „gamla lifverði” kommúnistaflokksins, félögum Lenins. Þetta er sagan um menn- ina sem áratugum saman helg- uðu llf sitt kommúnistaflokknum, lögöu hausinn hvað eftir að veði undir keisarastjórn og fóru með æðstu embætti í fallvaltri ráð- stjórn fyrstu árin — sátu svo á ákærendabekk og játuöu á sig hina hroðalegustu, fáránlegustu glæpi og voru skotnir i morgun- sáriö. En nú er rétt að setja fyrirvara. Hreinsanirnar og réttarhöldin i Moskvu voru varla raunveruleg valdabarátta, vegna þess að Stali'n haföi þegar fest sig tryggi- lega i sessi og ógnaði honum i raun og veru enginn. Fremur má lita á hreinsanir hans sem beint framhald af ógnaræði þvi sem stundum rann á hina rússnesku keisara Rómanovættarinnar. Ivan grimmi er frægastur, en Páll, sonur Katrinar miklu slagaði hátt upp 1 hann, Pétur mikli var ekki barnanna bestur. Og Jósef Stalin skipaöi sér óhikað við hlið þeirra en ekki I nafni keis- aradómsins heldur kommún- ismans. Það er i rauninni allur munurinn. Tölum ber ekki saman um hversu margir urðu að láta lif sitt til aö friða Stalin, þeir sem taka mest upp i sig nefna tugi milljóna sem ljær Grúsíumannin- um þann vafasama heiður aö vera mesti fjöldamorðingi sög- unnar. Huggulegur langafi það! En segjum nú söguna eins og hún gerðist. Þau réttarhöld sem við höfum mestan áhuga á hér og nú voru haldin i þrennu lagi á ár- unum ’36-’38. Þau fóru fram i Moskvu en svipuð réttarhöld voru haldin um Sovétrikin þver og endilöng, flestir voru þó myrtir þegjandi og hljóðalaust. Hvers vegna Stalin taldi sig þurfa að setja upp réttarhöld i málum þessara manna sem hér verður frá sagt er ekki vitað nákvæm- lega, eflaust hefur hann viljað slá ryki i augu heimsins og þjóðar- innar, eða þurft réttlætingu sjálfur þó hann vissi manna best hvernig að málum var staðið, og svo má geta þess að réttarhöld af þessu tagi sigldu oftastnær i kjöl- far valdatöku kommúnista hér áður fyrr. Dæmi eru þekkt úr flestöllum austantjaldslöndunum eftir seinni heimsstyrjöld, i Kina voru fjórir nýlega fyrir rétti. Félagar Lenins, Dinovér og Kamenér Og loks: hverjir voru þessir menn sem dregnir voru fyrir dóm? Við fyrstu réttarhöldin, sem fóru fram 19. til 24. ágúst 1936, var aðalsakborningurinn Gregor Sinovév. Hann fæddist 1883 og var orðinn virkur kommúnisti sautján ára gamall, skipaði sér þegar i fylkingu bolsé- vika en hreyfing rússneskra kommúnista skiptist sem kunn- ugt er i tvo aöalhópa mensévika sem þóttu hægfara og bolsévika sem áttu leiðtogann Lenin. Nú — Sinovév komst fljótlega til met- orða innan bolsévikadeildarinnar i Leningrað og árið 1908 var hann kosinn i hina leynilegu miðstjórn kommúnistaflokksins. Hann var þá orðinn hægri hönd Lenins og deildi ábyrgðinni á stjórn flokks- ins meö honum eftir að báðir urðu aö flýja land. Stjarna Sinovévs lækkaði nokkuð i október-bylting- unni 1917 vegna þess að þá lagöist hann gegn Lenin og byltingar- áformum hans, en hann hélt þó sæti sinu i miðstjórninni og tók aukinheldur sæti i stjórnmálaráð- inu er það var sett á stofn. Einnig hafði Sinovév verið formaður „sovétsins” eða „ráðsins” i Petrógrað og forseti fram- kvæmdanefndar hins kommúniska Alþjóðasambands. Vinurhans og félagi, Kamenév, var af sömu kynslóð og ferill þeirra ekki ósvipaður. Hann var félagi i' flokknum frá 1901 og meðan hann var enn við nám stjórnaði hann starfi bolsévfka i Kákasus, komst siðan i kynni við Lenin og starfaði með honum i út- legðinni. Hann var ritstjóri Prövdu meðan það blað fékk aö, koma út, var hanatekinn og sendur til Siberiu en frelsaður i febrúarby Ringunni. Asamt Sinovév lagöist hann gegn tilraun Lenins til að gera byltingir bolsé- vika, en varð engu aö siður með- limur i miðstjóminni og^tjórn- málaráðinu þar sem hann var varaforseti. 1 borgarastyrjöldinni var hann formaður sovéts Moskvuborgar. Eftir dauða Lenins árið 1924 voru þeir Sinovév álitnir standa næst Trotskij sem i vitund almennings var sjálf- sagður eftirmaður Lenins. Stalin hafði sem kunnugt er önnur plön. Við hlið þeirra tveggja á ákær- endabekknum i þessum fyrstu réttarhöldum sátu aðrir frægir byltingarmenn. Þarna var til að munda tvan N. Smirnov, fæddur 1881, verkamaöur sem gekk i flokkinn 1899 og sat i miðstjórn- inni I tið Lenins. Hann átti einnig sæti i hemaðarnefnd byltingar- manna, var kommissar fyrir Rauða herinn i Siberiu og er hann árið 1922 átti að verða ritari miðstjórnarinnar lagðist Lenin gegn vegna þess að hann væri ómissandii Sfberíu. Annar maður var þvi vaiinn ritari: Stalin. Og þarna á bekknum var Évdóki- mov, fæddur 1881, verkamaður, skógarhöggsmaður, sjómaður og byltingarmaður, bolséviki frá 1903. Hann var um tima kommissar fyrir herinn og leið- togi verkalýðsfélaganna i Petró- grað, einnig félagi i miðstjórn. Bakaév var nokkru yngri hann fæddist árið 1887, tók þátt i upp- reisninni 1905 og gekk til liðs við bolsévika ári siðar er hann var nftján ára. Hann sat i fangelsi keisarans i sex ár. 1 borgara- styrjöldinni var Bakaév póli- tiskur kommissar á framlinunni við Petrógrað og foringi leynilög- reglunnar. Loks átti hann sæti i stjórnarnefnd miðstjórnarinnar. Næstu réttarhöld fóru fram rúmu hálfu ári siðar, frá 23. til 30. janúar 1937. Sakborningur númer eitt var Júri Pjatakov, 47 ára gamall sonur auðugs iðnjöfurs. Hann hlaut góða menntun og talaði fjöldann allan af tungumál- um en hneigðist fljótt til róttækni, á táningsaldri var hann stjórn- leysingi en er hann var tvitugur söðlaði hann um og gerðist bolsé- viki. Hann fór i útlegð og vakti á sér athygli fyrir snjöll fræðiskrif sin og i' byltingunni þótti hann betri en enginn. 1 borgarastriðinu stýrði hannbolsévikum i Úkrainu og féll þar i hendur Hvitliðum og var dæmdur til dauða. Daginn áður en dauöadómi skyldi full- nægt komu sveitir Rauða hersins á vettvang og björguðu honum. Eftir það stjórnaði Pjatakov leið- angri rauðliða til Krim sem þótti afar djarfur og vel heppnaður. Eftir sigur bolsévika varð hann einn af sérfræðingum þeirra i efnahagsmálum og gekk vel fram I enduruppbyggingu iðnaðar. Hann er einn þeirra sex sem nefndir eru i „erfðaskrá” Lenins, og hinn eini, fyrir utan Búkharin af ungu kynslóðinni. Þá var Pjatakov varaforseti þjóöarráðs- ins um efnahagsmál og forseti Hæstaréttar, meðlimur miöstjórnarinnar frá 1921. Karl Radekvar52ja ára, ogátti að baki áratuga starf f hreyfingu sósialista viða um lönd. Hann var af pólskum og þýskum ættum og var i fyrstu demókrati en gerðist róttækari með árunum. 1 fyrri heimsstyrjöldinni hvatti hann þýska demókrata til virkrar and- stöðu gegn keisarastjórninni og striðinu en nokkrum árum siðar ■ Nikolæ Lenin. Næstum allir félagarhans I byltingunni voru drepnir i morðæði Staiins.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.