Tíminn - 30.03.1982, Qupperneq 1

Tíminn - 30.03.1982, Qupperneq 1
Stjórnmáiaályktun midstjórnar Framsóknarflokksins — bls. 12-13 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ! Þriðjudagur 30. mars 1982 72. tölublað—66. árg. Heimiiis- Tíminn: Stóllinn sprakk! - bls. 5 — bls. 2 Málflutningur vegna morðsins á Hans Wiedbush: UMFANGSMIKIL RÆKTUN A CANNABIS UPPLÍST! ■ Málflutningi lauk fyrir Saka- dómi Reykjavikur i gærdag i máli ákæruvaldsins gegn Gesti Guðjóni Sigurbjörnssyni fyrir morðið á Hans Wiedbush, blómaskreytingamanni. Hefur málið nú verið dómtekið af Halldóri Þorbjörnssyni, yfir- sakadómara i Reykjavik. Við rannsókn málsins hefur komið i ljós að Hans Wiedbush stóð fyrir umfangsmikilli ræktun cannabisplanta i ibúð sinni og eins á vinnustað, þ.e. i Blómavali. Gerði fikniefnalög- reglan i Reykjavik upptækar plöntur og afrakstur af þeim við rannsókn málsins. Hafa þær verið sendar til rannsóknar og samkvæmt niðurstöðum þeirra hafa öll sýnin sýnt jákvæða cannabis-svörun. Bauð Hans Wiedbush ákærða að reykja marijuana, sem hann þáði, auk áfengis. Er þetta forsaga að þeim hörmulega at- burði sem siðan leiddi til dauða Hans Wiedbush, sem greint hefur verið frá i fréttum. Nánari frásögn af málflutn- ingnum i gær er á bls. 3 i' blaðinu i dag. — Kás ■ Eitthvað virðist næsta sena vefjast fyrir ieikstjóranum Hrafni Gunnlaugssyni 1 upptökunum á •framhaldsmynd sjónvarpsins „Félagsheimilinu” sem nú standa yfir I féiagsheimilinu á Alftanesi. Timamynd Ella. Heilsugæslustöðvarnar sem nú er verið að Ijúka við, þýða 25-30% hækkun á kostnaði við heilsugæslu: „GÍFURLEG SPRENGING I ÞESSUM ÚTGJÖLDUM sagði Steingrímur Hermannsson á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins ■ ,,Ef teknar yrðu í notkun i dag allar þær heilsugæslu- stöðvar, sem verið er að ljúka við, þá hækkaði heilsugæslu- kostnaður á stundinni um 25-30 af hundraði,” sagði Steingrimur Hermannsson formaður Fram- sóknarflokksins í ræðu sinni um stjórnmálaviðhorfið á mið- stjórnarfundi Framsóknar- flokksins um helgina. Hann sagði að sú gifurlega sprenging, sem er að verða i útgjöldum til heilbrigðismála væri mikið áhyggjuefni. Siðan sagði Stein- grimur: „Heilsugæslan er nauðsynleg. Grundvallarmarkmið okkar framsóknarmanna er að allir fái notið góðrar heilsugæslu, og að enginn þurfi að hafa áhyggjur af þvi. En ég er sann- færður um að við þurfum að skoða mjög vel, hvert stefnir á þvi sviði.” Sjá nánar bls. 8-11. SV

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.