Tíminn - 17.04.1982, Qupperneq 1

Tíminn - 17.04.1982, Qupperneq 1
FramboðsEisti Framsóknarflokksins í Kópavogi - bls. 10-11 Blað 1 Tvö blöð í dag 1 Helgin 17.-18. apríl 1982 [ 86. tölublað — 66. árgangur Bíræfnir þjófar enn á ferðinni á Seyðisfirði: STÁLU SALTFISKI FYR- IR 45 ÞIJSUND KRÓNUR! ■ Tveir ungir menn hafa viður- kennt við yfirheyrslur hjá lög- reglunni á Seyðisfirði aö hafa á undanförnum tveimur vikum stolið um fimmtán hundruð kilóum af saltfiski að verðmæti um fjörutiu og fimm þúsund krónur úr saltfiskverkun Fisk- vinnslunnar á Seyöisfirði. Salt- fiskinn geymdu þeir siðan i bil- skúr sem er i eign föður annars mannsins. Lögreglan á Seyðisfirði komst á snoðir um þennan þjófnað eftir að fólk sem búsett er i ná- grenni Fiskvinnslunnar lét hana vita um grunsamlega flutninga að næturlagi. Ekki tókst að standa mennina að verki en þó beindust spjótin fljótt að þeim. Þegar svo átti að handtaka þá og færa til yfirheyrslu voru þeir farnir úr bænum og frétti lög- reglan af þeim á Húsavi"k. Þangað fór lögreglan og flutti þá til yfirheyrslu á Seyðisfirði þar sem þeir viðurkenndu þjófnaðinn næstum strax. Lögreglan á Seyöisfirði vissi ekki til að ungu mennirnir hefðu ráðgert hvemig þeir ætluðu sér að losna við saltfiskinn en hún sagði þó að augljóst væri að þjófnaöurinn hefði verið fram- inn i auðgunarskyni. —Sjó Þessir voru i óðaönn að fegra og snyrta i kringum Tjörnina i gær, enda rétti timinn núna að sinna vorverkunum. Þessi mynd hans Eó- berts ljósmyndara afsannar hér með þá fuliyrðingu sumra að starfsmenn borgarinnar noti skóflur aðeins til þess að styðja sig við þær. Líkur á að Nígeríumenn loki áfram fyrir skreiðarinnflutning: „HRIKALEGT ÁFALL” — segir Hannes Hall hjá Skreiðarsamlaginu Iff „Berið beit mömmu” — bls. 17 sfðan bls. 8 ■ „Það yrði hrikalegt áfall ef Nígeriumenn loka fyrir skreið- arkaup þvi þaö er búið að fram- leiða mikið”. Hannes Hall hjá Skreiöar- samlaginu hafði þetta að segja um þann möguleika að Nigeriu- menn kaupi ekki meiri skreiö á árinu. Norska útvarpiö sagði frá þvi i gær að norsk sendinefnd hefði fengiö þá afgreiðslu á fundi með Nigeriumönnum á fimmtudag- inn var, aö áfram yrði lokaö fyrir skreiðarkaup og engar ábyrgðir opnaðar á næstunni. Forustumenn skreiðarmanna i Noregi sendu sinum mönnum áskorun um aö hætta allri skreiöarverkun strax, þar sem söluhorfur væru við núllið. tslensk sendinefnd er farin til Nigeriu og á að mæta á fundi á mánudaginn. Hannes var spurður hvort þess væri að vænta að Islendingar fái aðra afgreiðslu en Norðmenn. „Það er ómögulegt að segja um, en viö höfum oft fengið betri afgreiðslu en þeir. En við höfum alls ekki átt von á að þeir muni loka þvi þeir fullvissuðu okkur um það i desember að haldið yrði áfram aö flytja inn skreið allt þetta ár. Þess vegna höfum við ekki viljað draga úr skreiðarverkuninni og hún er mjög mikil núna, aukningin er um 30% frá þvi i fyrra.” SV Valda- taflf Kreml — bls.S

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.