Tíminn - 21.04.1982, Page 1

Tíminn - 21.04.1982, Page 1
TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTT ABLAÐ! Miðvikudagur 21. apríl 1982 89. tölublað — 66. árg. ■ Athygli vekur þegar litið er á skýrslu Hagstofu Islands um bilainnflutning þrjá fyrstu mánuði ársins, að mest var flutt inn af bílum i all háum verð- flokki, en þessir bilar eru sölu- hæstir: Volvo 244, 191 bill, Saab 99 og 900, 186 bilar, Mazda 626, 140 bilar og af Subaru 131 bill. Alls voru 2373 nýjar fólksbif- reiðar fluttar til landsins þennan tima. Til samanburðar má lita á sama timabil i fyrra. Þá voru fluttar inn 1345 nýjar fólksbif- reiðar og ef við berum saman sölu sömu bifreiðategunda þá litur dæmið þannig út: Volvo 244, 44 bilar, Saab 99 og 900, 41 bfll, Mazda 626, 84 bilar. Mazda 626 var þá jafnframt söluhæsti bfllinn á markaði þessa þrjá mánuði 1981. Alls voru fluttar inn 2659 bif- reiðar i ár þessa þrjá mánuði, en 1599 á sama tima i fyrra. —AM Gæsluvarð- hald unga mannsins framlengt ■ Gæsluvarðhald unga manns- ins, sern situr inni hjá rann- sóknarlögreglu rikisins vegna gruns um aðild að innbrotinu i Gull og silfur, var framlengt i gær til tuttugasta og áttunda april n.k. Enn hefur ekki fengist fram játning i málinu og ekki hefur neitt fundist af þýfinu sem hirt var úr versluninni aðfaranótt skirdags. Rannsóknarlögreglan hefur yfirheyrt marga menn vegna þessa máls. -Sjó. ■ Nei, þær kippa sér ekki upp við að sjá þessa einkennilega klæddu menn, frúrnar á myndinni, enda orðnar mörgu vanar þegar uppátæki ungdómsins eru annars vegar. Ekki vitum viö þó frekar en þær hvert tilefnið var hjá þeim ungu mönnunum til þess að dulbúast á þennan hátt. Kannske hafa þeir bara hitt krókódilinn, sem dró nefið á filnum fram í rana? (Timamynd Róbert). Vin- atta — bls. 23 best Tískan *------------------------------------------ Gáfu innflytjendur Einars Benediktssonar rangar upplýsingar? TÖMAS BIÐUR UM 0PIN- BERA RANNSÓKN A ÞVf ■ ,,Að athuguðu máli hef ég ákveðið að biðja um opinbera rannsókn á gildi þeirra upplýs- inga, sem innflytjandi fyrir vél- skipið Einar Benediktsson gaf stjórnvöldum”, sagði Tómas Áruason, viðskiptaráðherra i viðtali við Timann i gærkvöldi. Umræddleyfisveiting og kaup á Einari Benediktssyni til 2373 nýjar fólksbifreidar til landsins janúar-mars: Þeir dýru seljast landsins hefur vakið athygli og mikið verið um þau skrifað i blöð, jafnframt þvi aö koma til umræðu á Alþingi, þar sem hart hefur verið veist að viðskipta- ráðherra og sjávarútvegsráð- herra fyrir að leyfa innflutning á skipi þessu og dregið i efa að upplýsingar innflytjanda m.a. um fyrri eigin skipaeign eigi við rök að styðjast. Viöskiptaráð- herra telur þvi ástæöu til að opinber rannsókn fari fram á þessu máli, þannig að hið sanna komi i ljós og öll gögn veröi lögð á borðið. Kaupendur Einars Benedikts- sonar fengu innflutningsleyfi fyrir skipinu til þess að koma i staðinn fyrir Fálkann BA-309, sem i'órst viö Látrabjarg 19. september 1981, og Sæhrimni Is- 100, sem var seldur Úreldingar- sjóði. Siðan kom i ljós, aö kaup- endur Einars Benediklssonar voru ekki löglegir eigendur Fálkans, og ágreiningur helur verið uppi um hvort þeir hafi verió eigendur Sæhrimnis. —OO

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.