Fréttablaðið - 06.12.2008, Page 16

Fréttablaðið - 06.12.2008, Page 16
16 6. desember 2008 LAUGARDAGUR Eymundsson mælir með KK leikur í Eymundsson Austurstræti kl. 16 á laugardaginn Norður Kringlu kl. 15 á sunnudaginn KK – Svona eru menn Verð 2.499,- FROSTROSES 2CD + DVD - Viðhafnarútgáfa Verð 2.999,- BÖRN & FORELDRAR 3 - DISKA VIÐHAFNARÚTGÁFA Kynningarverð 3.999,- til 8. des. SKIPTAR SKOÐANIR: Verkalýðshreyfingin og ESB ÖJ: Við í BSRB höfum gert allt sem í okkar valdi stendur til að örva upplýsta umræðu um málið. BSRB hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort Ísland eigi að sækja um aðild að ESB eða standa utan þess, einfaldlega vegna þess að við teljum að það sama gildi um okkar samtök og samfélagið allt, að það eru mjög skiptar skoðanir um málið. Þegar slíkt er upp á teningnum teljum við það hrein- lega vera ólýðræðislegt og ekki á okkar valdi að taka einhverja afstöðu til málsins. Það á við um fleiri mál, svo sem virkjanamál. Ég hef hins vegar mínar per- sónulegu skoðanir og þær eru þess efnis að ég tel ókosti þess að vera innan ESB vega þyngra en kostina. GA: Það er talsverður munur á samtökunum hvað þetta varðar og það á við um fleiri mál líka. ASÍ hefur síðan við gerðumst aðilar að Evrópska efnahags- svæðinu haft það sem eitt af sínum meginviðfangsefnum að stuðla að því að okkar félags- menn hafi aðgang að upplýsing- um um bæði kosti og galla af Evr- ópusamvinnunni og þar með talið aðild. Í seinni tíð hefur umræðan um aðild að ESB og evru verið mjög ágeng hjá okkur. Árið 2000 var samþykkt tillaga á þingi ASÍ um að það bæri að undirbúa aðildar- viðræður og upptöku evru. Þing- ið tók ekki afstöðu til þess hvað ætti að koma út úr viðræðunum. Síðan eru liðin átta ár af renni- reið krónunnar. Löngu áður en fjármálakerfið hrundi höfðum við komist að þeirri niðurstöðu að ekki væru forsendur fyrir því að gera kjara- samninga á grundvelli stöðug- leika krónunnar. Annaðhvort fengi þjóðin möguleika á að greiða atkvæði um sína framtíð og sinn gjaldeyri, eða undirbúa kjarasamninga við óstöðugleika. Við viljum ESB-aðild og teljum okkur ekki vera ólýðræðisleg, þvert á móti. Við gerum þetta í fleiri málum, líka virkjanamál- um, því við teljum okkur eiga að taka afstöðu til þess sem er að gerast í okkar þjóðfélagi og beita okkur sem samfélagsafl í að ná markmiðum okkar. Markaðsöflin ÖJ: Við verðum að umgangast lýðræðið af mikilli varúð og virð- ingu. BSRB tekur að sjálfsögðu afstöðu í málum og við höfum tekið mjög virkan þátt í starfi innan ESB á vettvangi verkalýðs- hreyfingarinnar, þá horfi ég ekki síst til samtaka starfsfólks innan almannaþjónustu. Þar hafa menn staðið í mikilli baráttu til að hafa áhrif á tilskipanir sem koma frá Brussel og snerta almannaþjón- ustu og hafa að uppistöðu gengið út á að koma henni af markaði. Við höfum tekið þátt í því að beina þeirri þróun á hagfelldari brautir. Gagnrýni manna í garð ESB hefur verið á þá lund að markaðs- öflin hafi þar undirtökin. Þessi gagnrýni hefur í vaxandi mæli komið frá mjög hörðum Evrópu- sinnum innan verkalýðshreyf- inga í Evrópu. BSRB tekur mjög ákveðna afstöðu í málum sem snerta almannahag, samfélag okkar og uppbyggingu þess og kjör okkar félagsmanna. Ég tel hins vegar að kostirnir sem menn mála fögrum litum um aðkomu okkar að hinu Evrópska efnahagssvæði og hugsanlega ESB, séu stórlega ýktir, þegar talað er um launafólk. Stærstu skrefin sem stigin hafa verið á Íslandi til hagsbóta fyrir launa- fólk voru að okkar eigin frum- kvæði, til dæmis fæðingarorlofs- lögin og sitthvað sem tengist lífeyrissjóðum. Þetta er langt umfram það sem tíðkast í ESB. Ef menn ætla að tryggja fram- færi með því að verða barðir til verkanna, ganga alltaf svipu- göng, þá enda menn sem þrælar. Mér finnst hins vegar aðdáend- ur ESB oft gera lítið úr faðmi alþjóðafjármagnsins og mark- aðshyggjunnar sem ESB ein- kennist af. Það er nefnilega eng- inn vinarfaðmur, í besta falli vinaklær sem menn eru aldrei hólpnir í. GA: Vissulega hefur afstaða félaga í almannaþjónustu verið á þá lund sem Ögmundur er að lýsa, menn hafa verið andsnúnir miklum breytingum. Það endur- speglar hins vegar ekki afstöðu Evrópusamtaka verkalýðsfélaga, þótt auðvitað hafi stór hópur þar inni mikil varnaðarorð. Fæðingarorlofið byggðist hins vegar á samningi sem við gerðum á vettvangi ESB. Aðdragandinn að því var samningur um fæðing- ar- og foreldraorlof innan Evrópu- samtaka verkalýðsfélaga. Við full- giltum þann samning síðan í samstarfi við stjórnvöld og geng- um lengra í því með því að jafna réttindi milli karla og kvenna. ÖJ: Ég hafna alveg þessari söguskoðun og vísa í umræður um fæðingarorlofið allan 10. áratug- inn og hugmyndir sem voru reif- aðar þá af miklum krafti. Þetta er sprottið af íslenskri grasrót. Stöðugleikinn ÖJ: Varðandi þennan rómaða stöð- ugleika innan ESB þá er nú stað- reyndin sú að heimurinn gengur eftir sveiflum heimskapítalsins að verulegu leyti. Nú upplifir öll Evr- ópa kreppu. Ég var að koma frá norðurhéröðum Finnlands þar sem menn búa við yfir 10 prósent atvinnuleysi. Þar þekkja menn ekki þann stöðugleika sem alhæft er um innan ESB. Við skulum því fara varlega í að draga upp þessa skýru valkosti sem menn telja að séu annars vegar milli ESB og hins vegar þess sem er að gerast þar fyrir utan. GA: Þar er hins vegar skýr greinarmunur á. Vandinn sem við glímum við í dag hefur ekkert með fjármálakreppu að gera, hana hefðum við getað staðið af okkur, þótt við hefðum bognað í hnján- um. Í kjölfar fjármálakreppunnar varð hér gjaldeyriskreppa og hún er að sökkva fyrirtækjunum okkar, störfunum, kaupmættinum og eignunum okkar. Ef við hefðum verið innan ESB og haft evru hefðum við bara þurft að glíma við fjármálakreppuna en ekki þetta hrun. Ef þú ræðir við Finna, Íra, Spánverja, Grikki, þá reyna þeir ekki að bera þetta tvennt saman. Þeir hefðu sokkið á bólakaf hefðu þeir ekki notið stöð- ugleikans af evrunni. ÖJ: Já, en þú getur líka rætt við Finna, Íra, Spánverja og Grikki sem eru atvinnulausir og sjá ekki þennan stöðugleika. GA: En þeir hafa betri mögu- leika til að vinna sig út úr stöðunni en við sem búum við hrun atvinnu- lífs og gjaldmiðils. Ég held að innan fárra ára verði aðeins þrír gjaldmiðlar í heimin- um, dollarinn, evran og gjaldmið- ill í Asíu sem er að verða öflugasta hagkerfið í heiminum. Hagkerfi heimsins mun hvíla á þessum þremur stoðum og Íslend- ingar verða að taka afstöðu til þess hvar þeir standa. ÖJ: Ég held að stóra málið núna sé að þegar menn sjá fallvaltleik- ann í hinu alþjóðlega fjármagns- kerfi, sé mikilvægast að tryggja samfélagslegt eignarhald á auð- lindunum, til sjávar og sveita. Þetta finnst mér vera forgangsat- riði. GA: Þetta er algjört grundvall- aratriði. Þjóðaratkvæðagreiðsla GA: Ég er sammála því sem Ögmundur sagði í yfirlýsingu á dögunum að við verðum að fá að kjósa um málið. Við verðum að klára verkefnið til fulls. Ef þjóðin vill ESB taka stjórnmálamenn afstöðu út frá því. Við þurfum breytingar á stjórnarskrá og þá er tækifæri til að stokka pólitíkina upp á nýtt og halda áfram frá þeirri stöðu. Ef þjóðin vill ekki aðild þá er það líka viðsnúningur frá umræð- unni og þá þarf að fara í aðra umræðu. ÖJ: Ég er sammála því að eina leiðin er leið lýðræðisins. Ég var ósáttur við að farið yrði í EES án þess að þjóðin fengi að segja sitt. Þjóðaratkvæðagreiðsla og umræða í aðdraganda hennar varpar líka ákveðnu ljósi á málið. Lýðræðið ræður en er vandmeðfarið Alþýðusamband Íslands hefur tekið þá afstöðu að sækja eigi um aðild að Evr- ópusambandinu. Ýmsir forsvarsmanna BSRB hafa talað gegn aðild. Ögmund- ur Jónasson og Gylfi Arnbjörnsson ræddu við Kolbein Óttarsson Proppé. FORMENN Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, og Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, eru báðir á því að þjóðin eigi að fá að kjósa um ESB. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ef menn ætla að tryggja framfæri með því að verða barðir til verkanna, ganga alltaf svipugöng, þá enda menn sem þrælar. ÖGMUNDUR JÓNASSON Vandinn sem við glímum við í dag hefur ekkert með fjármálakreppu að gera, hana hefðum við getað staðið af okkur, GYLFI ARNBJÖRNSSON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.