Fréttablaðið - 08.12.2008, Blaðsíða 15
K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I - S Í M I : 5 7 8 4 0 0 0 - W W W . K E I L I R . N E T
HÁSKÓLABRÚ
Háskólabrú er samstarfsverkefni Keilis
og Háskóla Íslands og býður deildin upp
á aðfararnám á vegum HÍ fyrir einstakl-
inga sem ekki hafa lokið stúdentsprófi.
Að loknu námi uppfylla nemendur
almenn inntökuskilyrði innlendra háskóla
og telst námið sambærilegt stúdentsprófi
samkvæmt samningi Keilis, HÍ og
menntamálaráðuneytisins.
Háskólabrú veitir nú þegar útskrifuðum
nemendum rétt á að sækja um nám
í hugvísindadeild, félagsvísindadeild,
verkfræðideild, raunvísindadeild,
viðskipta- og hagfræðideild og lagadeild
HÍ. Sömuleiðis nám í Háskólanum í
Reykjavík, Háskólanum á Akureyri,
Listaháskóla Íslands, Háskólanum á
Hólum og Landbúnaðarháskólanum
á Hvanneyri.
Hægt er að stunda námið á Keilissvæðinu
í staðnámi eða í fjarnámi.
HÚSNÆÐI FYRIR NÁMSMENN
Nemendur Keilis hafa forgang að
glæsilegum nemendaíbúðum á starfs-
svæði Keilis á mjög hagstæðu verði.
Í boði eru allt frá stúdíóíbúðum upp
í 6 herbergja íbúðir.
Keilissvæðið er fjölskylduvænt hverfi
í Reykjanesbæ þar sem í dag eru starfandi
tveir leikskólar og grunnskóli. Á svæðinu
er einnig íþróttahús, félagsmiðstöð ungl-
inga, veitingastaður, verslun og bensínstöð.
Ókeypis express strætó er fyrir nemendur
og íbúa Keilis milli svæðisins og Reykjavíkur.
Ný tækifæri
Í lok janúar stefnir Keilir að því að bjóða upp á nýjar og
spennandi námsleiðir. Nám í tæknifræði til BS gráðu sem
leggur sérstaka áherslu á íslenska atvinnuvegi, diplomanám
í viðskiptalist sem leiðir saman viðskipta- og listgreinar
og fjölbreytt flugtengt nám. Kynntu þér þessa og fleiri
námsmöguleika hjá Keili á www.keilir.net. Umsóknarfrestur
er til 20. janúar 2009.