Fréttablaðið - 08.12.2008, Blaðsíða 46
34 8. desember 2008 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. gáski, 6. mannþvaga, 8. keyra, 9.
bar að garði, 11. líka, 12. lófatak, 14.
sannfæringar, 16. í röð, 17. flýtir, 18.
ennþá, 20. tveir eins, 21. velta.
LÓÐRÉTT
1. knattleiksknött, 3. guð, 4. hæðast,
5. tækifæri, 7. hungraður, 10. meiðsli,
13. blása, 15. skrifa, 16. húðpoki, 19.
nudd.
LAUSN
„Ég hlusta mikið á Jean Michael
Jarre, Vangelis og meistarana í
Evil Madness við vinnu. Reynd-
ar er ég mikill raftónlistaraðdá-
andi, en hlusta mikið á klassík
líka. Núna er ég til dæmis að
svífa um á meðan ég hlusta á
Adagio í g-moll eftir Albinoni,
sem er guðdómlega fallegt.
Nigel Kennedy, Vivaldi - Winter
I tryllir mig líka alltaf.“
Snorri Ásmundsson listamaður.
LÁRÉTT: 2. ærsl, 6. ös, 8. aka, 9. kom,
11. og, 12. klapp, 14. trúar, 16. hi, 17.
asi, 18. enn, 20. tt, 21. snúa.
LÓÐRÉTT: 1. pökk, 3. ra, 4. skopast,
5. lag, 7. soltinn, 10. mar, 13. púa, 15.
rita, 16. hes, 19. nú.
„Ég fékk einhvern undarlegan
áhuga á lögfræði fyrir nokkru. Ég
hélt reyndar að ég væri búinn að
læra allt sem ég vildi en ákvað
bara að skella mér í inntökuprófið
og komst inn,“ segir Ómar R.
Valdimarsson, einhver frægasti
almannatengill Íslands. Hann
hyggst setjast á skólabekk í HR og
nema þar lögfræði. Lögfræðin er
fimm ára nám en Ómar vonast til
þess að fá sitt gamla nám að ein-
hverju leyti metið. Hann er með
BS í fjölmiðlafræði og masters-
gráðu í alþjóðastjórnmálum. Ómar
býst þó ekki við að leggja almanna-
tengslin algjörlega á hilluna
meðan á náminu stendur og hyggst
því sinna sínu starfi samfara
skólagöngu.
Ómar komst í fréttirnar í fyrra
þegar hann höfðaði mál á hendur
Gauki Úlfarssyni vegna orða sem
sá síðarnefndi lét falla á bloggi
sínu. Ómar hafði sigur í því máli.
Hvort hann hygðist leggja lög um
meiðyrði eitthvað sérstaklega
fyrir sig vildi hann lítið tjá sig um.
„Því er samt ekki að neita að dóms-
kerfið hefur reynst mér óvenju
vel og það er ekkert útséð með að
maður einblíni eitthvað sérstak-
lega á þann flokk,“ útskýrir Ómar.
- fgg
Ræðismaður snýr sér að lögfræðinámi
VERÐUR LÖGFRÆÐINGUR Ómar R. Valdi-
marsson hyggst setjast á skólabekk eftir
áramót og nema lögfræði í HR.
Berglind Ólafsdóttir er ein
aðalpersónan í bandarísku
raunveruleikaþáttunum
Cha$e sem sýndir eru á
kapalsjónvarpsstöðinni
Sci-Fi. Stöðin er í eigu
sjónvarpsrisans NBC.
Þættirnir hafa vakið
mikla athygli vest-
anhafs og ekki
síður framganga
Berglindar sem
er í hópi átta
svokallaðra
veiðimanna eða
Hunters. Veiði-
mennirnir
minna óþægi-
lega á agent
Smith í Matrix-
myndunum.
Þáttastjórnand-
inn er hinn geð-
þekki Try Farley
sem sló meðal ann-
ars í gegn í knatt-
spyrnukvikmynd-
inni Bend it like
Beckham. Þættirn-
ir fóru í loftið 11.
nóvember og eru
sýndir á hverju
þriðjudagskvöldi.
Vinsælt virðist því að
fá íslenskar ljóskur í
raunveruleikaþætti
því eins og flestum
ætti að vera kunnugt
um er Ásdís Rán þátt-
takandi í einum slík-
um.
Cha$e er byggt á
japanskri fyrirmynd
og gengur út á að tíu
þátttakendum er
hleypt inn á svokallað
„leiksvæði“. Þar eiga
þeir að safna pen-
ingafánum og geta
unnið sér inn háar
fjárhæðir ef þeim
gengur vel. Hins
vegar eru ljón í vegin-
um, svokallaðir veiði-
menn, sem eiga að
standa í vegi fyrir
ætlunarverki kepp-
endanna og fanga
þá. Er Berglind
einn þeirra. Þætt-
irnir hafa fengið
prýðisgóða dóma
hjá erlendum
vefmiðlum og
gefa notendur
imdb.com
honum meðal
annars 7,8. New York Times var
ekki alveg eins jákvætt í garð
þáttanna en sagði viðleitnina þó
góða, Cha$e væri sennilega fyrsti
raunveruleikaþátturinn sem
sækir efnivið sinn til tölvuleikja.
Berglind hefur búið í Bandaríkj-
unum um nokkurt skeið og er
meðal annars góð vinkona skoska
leikarans Gerards Butler eins og
kom fram í viðtali við hann í
Fréttablaðinu fyrir rúmu ári.
Hún er þekkt undir nafninu Berg-
lind Icey. Berglind hefur komið
fram í vinsælum sjónvarpsþátt-
um á borð við According to Jim
Fyrir nokkrum árum var hún
meðal fegurstu kvenna heims í
kosningu tímaritsins FHM. Ekki
náðist í Berglindi vegna fréttar-
innar en samkvæmt heimildum
blaðsins hyggst hún eyða jólun-
um hér á landi.
freyrgigja@frettabladid.is
BERGLIND ÓLAFSDÓTTIR: STJARNA HJÁ SCI-FI CHANNEL
Berglind Icey í amerísku
raunveruleikasjónvarpi
Á FRAMABRAUT Í HOLLYWOOD Berglind „Icey“ Ólafsdóttir hefur verið
búsett í Hollywood um nokkurra ára skeið. Hún hefur fengið nokkur
athyglisverð hlutverk, nú síðast í raunveruleikaþætti. NORDICPHOTOS/GETTY
VINSÆLL RAUN-
VERULEIKA-
ÞÁTTUR Cha$e
hefur fengið
ágæta dóma
og þykir
Berglind Icey
standa sig
með prýði.
Eins og Fréttablaðið
greindi frá á laugardaginn
blés vinkona forsetafrúar-
innar Dorritar Moussai-
eff, barónessan Frances-
ca Habsburg, til mikillar
veislu á laugardagskvöld-
inu. Francesca er mikill
Íslandsvinur og hefur
verið íslensku listafólki
innan handar við að
koma sér á framfæri
á erlendri grundu.
Francesca gisti að
sjálfsögðu á 101
hótel fyrir og eftir
partí sem haldið var
úti á Seltjarnarnesi.
Vonir höfðu staðið til að í föruneyti
Francescu yrðu stórkanónur á
borð við Johnny Rotten og David
Bowie. En þeir höfðu víst öðrum
hnöppum að hneppa þetta kvöld
og áttu því ekki heimangengt. Hins
vegar létu íslenskar listaspírur sig
ekki vanta í þetta samkvæmi sem
var víst með þeim glæsilegri. Ekki
vantaði heldur upp á að
íslenskar stórkanónur
væru meðal gesta en
menn á borð
við Friðrik Þór
Friðriksson
og Bogomil
Font létu
sig ekki
vanta úti á
Nes.
Ólíkt hafast þeir að, framsóknar-
mennirnir Bjarni Harðarson og
Guðni Ágústsson. Bjarni hefur
tekið aftur upp fyrri iðju við bók-
sölu á Selfossi og útskýrir á bloggi
sínu hvers vegna hann hafi sagt af
sér þingmennsku. „Ég fór aðeins
fram úr mér,“ skrifar Bjarni og
viðurkennir að margir hafi lagt hart
að honum að sitja sem fastast þrátt
fyrir leynibréfið víðfræga. Guðni
Ágústsson hefur hins vegar lítinn
áhuga á að útskýra
brotthvarf sitt á
meðan hann sleikir
sólina á Kanarí og
þykir skemmtilegra
að taka þátt í einhvers
konar loftfimleikum
á Klörubar. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Íslenskir tónlistarmenn syrgja Rúnar Júlíusson
sem lést fyrir helgi úr hjartaáfalli. Menn eru á
einu máli um að þar sé fallinn frá einhver mesti
öðlingur og snillingur íslenskrar tónlistarsögu og
minntust hans í bæði máli og tónlist.
Fyrrverandi samstarfsfélagi hans í GCD,
Bubbi Morthens, orti minningarljóð um Rúnar og
birti á vefsíðu sinni, Bubbi.is, á föstudaginn. Þar
kemur glöggt fram hversu mikils Bubbi mat
Rúnar og biður hann félaga sinn um að leggja inn
gott orð fyrir sig við hliðið. Jafnframt lætur
Bubbi þess getið að Rúnar hafi eiginlega orðið til
þess að hann lagði tónlistina fyrir sig.
Björgvin Halldórsson hélt sína árlegu
jólatónleika í Laugardalshöll í skugga fráfallsins
og minntist Rúnars og samstarfsins við hann í
upphafi tónleikanna undir sellóleik. Minningar-
orð Björgvins voru tilfinningaþrungin og mátti
heyra saumnál detta þegar Björgvin ræddi um
feril Rúnars og samstarf þeirra tveggja. Guðrún
Gunnarsdóttir söng síðan lag til heiðurs Rúnari
við undirleik strengjasveitar og kórs og mátti sjá
tár blika á hvarmi gesta víða í salnum. - fgg
Björgvin og Bubbi minnast Rúnars
250
ÓKEYPIS
KROSSGÁTUR
NÝ GÁTA
Í HVERRI VIKU
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
Auglýsingasími
– Mest lesið
Vinur minn farðu
í friði
mundu að leggja
inn gott orð
við hliðið fyrir
mig
takk fyrir mig
takk fyrir galdur-
inn sem þú sáðir
í hjarta mér
salurinn troðinn
þú ber að ofan
ég sá
og vissi
þetta vildi ég gera
LJÓÐ BUBBA UM RÚNAR
MINNTUST FALLINS FÉLAGA
Bæði Björgvin Halldórsson
og Bubbi Morthens minnt-
ust Rúnars Júlíussonar sem
lést á föstudaginn.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Jón Gunnarsson.
2 3,6 á Richter.
3 Rúnari Kárasyni.