Fréttablaðið - 08.12.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 08.12.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar Tveggja manna herbergi á kr. 5.000 nóttin Uppbúið rúm í svefnpokaplássi kr. 2.000 nóttin Gesthús Dúna Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is Í dag er mánudagurinn 8. desember, 343. dagur ársins. 11.04 13.19 15.35 11.17 13.04 14.52 Það voru þrjár stelpur í hverf-inu mínu sem aldrei virtust fara út úr húsi svo þær væru ekki að hjálpa mæðrum sínum. Þær fóru út með ruslið fyrir þær, skruppu út í búð eða sátu yfir systkinum sínum á rólóvöllunum. „Ég hitti hana Önnu Dís áðan. Hún var að kaupa mjólk fyrir mömmu sína,“ sögðu húsmæðurnar í hverf- inu og andvörpuðu yfir því að eiga dætur sem dirfðust að leika sér lengur en í hálftíma í senn. Auð- vitað skildi maður sneiðina en ein- hverra hluta vegna fannst mér ég aldrei eiga eftir að ná með tærnar þar sem hjálpfúsa stelpnastóðið hafði hælana. Það tæki því ekki einu sinni að reyna. ANNA Dís átti vinninginn af þessari heilögu þrenningu því hún átti bróður með Downs-heilkenni. Hann var fáeinum árum eldri en hún og sást stundum hjóla um hverfið í bláum íþróttagalla. „Það sem hún er dugleg,“ stundu kon- urnar í hverfinu þegar systkinin urðu á vegi þeirra og voru svo djúpt snortnar að það var eins og hin signa mær hefði birst þeim og hvíslað að þeim dularfullum skila- boðum. MAÐUR reyndi hvað maður gat að bæla niður samviskubitið yfir hyskninni við heimilisstörfin og á veturna sótti ég í sunnudagaskóla. Björtum barnarómi hvatti ég Kristmenn krossmenn áfram og bað Guð um að gjöra mér lítið ljós. Hjálpsömu stelpurnar létu ekki sjá sig þar, enda vafalítið skorðað- ar fastar á bak við eldavélina. Því rak mig í rogastans einn morgun- inn þegar hin glófexta Anna Dís birtist í sunnudagaskólanum. Hún heilsaði mér glaðlega og settist við hliðina á mér. Hún var allt of góð til að vera hér. Sáu kennararn- ir það ekki. Af hverju sendu þeir hana ekki heim? EN þarna sat hún, hlustaði á biblíusögur, söng sálma og fór með bænina sem Jesús kenndi okkur. Klukkutími leið og komið var að lokabæninni. Ung kona stikaði fyrir framan okkur, kreisti aftur augun með greipar spenntar undir hökunni og þakkaði Drottni fyrir að við skyldum fá að vera hér samankomin í dag í Hans nafni. Þá fann ég að Anna Dís hall- aði sér að mér og hvíslaði upp í eyrað á mér: „Sjáðu! Við erum beint fyrir framan píkuna á henni.“ Og næst þegar ég heyrði af rómaðri þjónustulund hennar og vinkvenna hennar lét ég það sem vind um eyru þjóta. Góðu stelpurnar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.