Tíminn - 06.05.1982, Blaðsíða 1

Tíminn - 06.05.1982, Blaðsíða 1
íslenskt mál: Gætið tungunnar! bls. 19 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ! Fimmtudagur 6. maí 1982 101. tölublað — 66. árg. Erlent yfírlit: stada - bls. 7 Mistök hjá tæknimönnum SVR? SKIPT UM DRIF120 NÝJUM VOLVO-VÖGNUM! — ekki Ijóst hver ber kostnaðinn ■ Skipta hefur oröið um drif á öllum tuttugu Volvo vögnunum, sem SVR hefur verið að taka i notkun á siðasta ári. Ekki Iiggur ljóst fyrir hver ber kostnaðinn af skiptunum. 1 viðtali við Timann segir Leifur Karlsson sem á sæti i stjórn SVR, að tæknimönnum SVR sé um að kenna að vagn- arnir hafi verið pantaðir með of kraftlitla vél og drif fyrir aðstæður hér. Afl vélarinnar hafi siðan veriðaukið með meiri snúningshraða, en drifið hafði ekki þolað álagið, sem þvi fylgdi. Leifur segist ekki hafa getað fengið svör i stjórn SVR, við spurningum sinum um hver beri kostnaðinn af þessum mis- tökum og dregur mjög i efa að framleiöendur geri það, þar sem mistökin séu hjá SVR 1 viðtalinu við Leif kemur einnig fram að sú gerð Volvo vagna, sem hér um ræðir, hafi verið með öllu óreynd sem strætisvagnar, þegar SVR pant- aði þá, enda voru þeir þá ný framleiðsla hjá Volvo. Leifur segir ennfremur að fiest það, sem nú er kvartað undan, i Ikarus-vögnunum hafi verið pantað samkvæmt skilgrein- ingu og vali sömu tæknimanna hjáSVR. Sjá nánar á bls. 5 SV störff barna — bls. 16 Vísna- pönk! — bls. 2 Kapp við tímann — bls. 23 H t gærkvöldi hófust I Ráðherrabústaðnum framhaidsviöræður islenskra stjórnvalda og fulltrúa Alusuisse um ágreiningsefni þessara aöila. Fremstir á myndinni eru frá vinstri ..höfuðpaurarnir” dr. Paul Miiller, formaður framkvæmdastjórnar Alusuisse, Hjör- leifurGuttormsson, iðnaöarráðherra, og Ragnar Halldórsson, forstjóri ÍSAL sjá fréttir um álmáiið á bls 3 Tímamynd-Ella Enn ekki séð hvenær þinglausnir geta orðið: MfiRG STÓRMÁL ÖAFGREIDD ■ í gærkvöldi var enn ekki séð hvenær þinglausnir gætu farið fram. Má allt eins búast viö að þing standi fram á föstudag þvi eftir er að afgreiða mörg mál og sum þeirra þess eðlis að liklegt má telja að þingmenn vilji fá tækifæri til að tjá sig um þau. Frumvarpið um klsilmálm- verksmiðjuna er komið til efri deildar og stefnt var að þvi að koma frumvarpinu til nefndar i gærkvöldi eða nótt. Mörg mál eru komin á siðasta snúning,, en samt geta þau orðið tafsöm i meðförum, ef þingmenn vilja svo vera láta. 1 sameinuðu þingi á þingsály ktunartillaga um virkjunarframkvæmdir eftir að fá fullnaðarafgreiðslu, svo og hlutdeild rikisins i steinullar- verksmiðju og staðsetning hennar. I neðri deild á eftir að af- greiöa endanlega um frumvarp um Hæstarétt og bágt er að sjá hvernig þvi máli reiðir af. Eins er nokkur kurr i mönnum um frumvarp um skattskyldu innlánsstofnana, en banka- skatturinn verður að öllum lik- indum talsvert hitamál. Lyfja- dreifing er ófafgreidd og frum- varp um málefni fatlaðra sömu- leiðis. Sykurverksmiðja i Hvera- gerði liggur enn i neðri deild, en iðnaðarnefnd deildarinnar hefur f jallað um málið og mælir meirihlutinn með samþykkt frumvarpsins. Tvær umræður eru eftir i deildinni og efri deild á alveg eftir að f jalla um málið. Sjá þingfréttir á bls 3. OÓ iH^HIHHHHHHi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.