Tíminn - 12.05.1982, Síða 1
Islendingaþættir fylgja blaðinu f dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐÍ
Miðvikudagur 12. mai 1982
106. tölublað — 66 árg.
Kortsnoj óttast mótframbod Campomanes gegn
Friðriki Ólafssyni í forsetakjöri FIDE:
YRÐI HÖRMULEGT EF
HANN NÆÐIKOSNINGII
— Kona Kortsnoj farin til Síberíu að ná í son þeirra
fangabúðum, en hann á að losna á morgun
ur
■ „Það yrði hörmulegt fyrir
skákiþróttina ef Campomanes
næði kosningu til forsetaemb-
ættis FIDE, en ég hef lýst þess-
„Að leika
með
lifandi
fólk í
hrá-
skinns
leik
um manni sem glæpamanni og
alþjóðlegum þrjót” sagði Viktor
Kortsnoj, skákmeistari, i sam-
tali við Timann er hann var
spurður álits á framboði
Campomanesar, gegn Friðrik
Ólafssyni i forsetastól FIDE.
Aðspurður um hvort hann
teldi að Sovétmenn ætluðu sér
að styðja Campomanes óbeint
meö þvi að fresta þvi að leyfa
fjölskyldu Kortsnoj að fara úr
landi og minnka þannig álit
Friðriks ólafssonar sagði
Kortsnoj: „Ég er ekki viss um
afstöðu Sovétmanna i þeim efn-
um, en hinsvegar er ég viss um
■ Friðrik
ólafsson______g_____
— segir Friðrik
Ólafsson
■ „A þessu stigi málsins get ég
ákaflega litið sagt en þetta gef-
ur svigrúm til allskonar vanga-
velta” sagði Friðrik Ölafsson
forseti FIDE i samtali við Tim-
ann er hann var spurður um við-
brögðin viö mótframboði
Campomanes frá Filippseyjum
i forsetakjöri FIDE i haust.
Friörik sagði ennfremur að
hann efaðist um að Campo-
manes færi fram án stuðnings
frá Sovétmönnum og aðspuröur
um hvort hann teldi að Sovét-
menn ætluðu að styðja Campo-
manes óbeint með þvi að fresta
brottfararley fi fjölskyldu
Kortsnoj frá Sovétrikjunum og
veikja þar með stöðu Friðriks
sagði hann:
„Maður veit ekki um fram-
vindu þessa máls, en það má
segja að þá sé verið að lo.ika
með lifandi fólk i hráskinnsleik.
Ég veit ekki hvort það kemur
þeim til góða, það getur reynst
þeim tvieggjaö.”
„Mér finnst dálitið komið aft-
an aö mér i þessu máli og ég
mun verða áfram i framboði.
Ég vil þá fara á endann með það
sem ég er byrjaður á og
ákvarðanir sem ég hef tekið i
ýmsum málum.”
Aöspuröur um fleiri mótfram-
boð sagði Friðrik að rómur hefði
verið um þau en ekkert annaö
sýnt sig ennþá og gat hann þess
aö jafnvel kæmi annaö framboð
frá Evrópu.
Hann sagöist vera hæfilega
bjartsýnn á möguleika sina til
endurkjörs að visu væri erfitt að
sjá fyrir þróun mála en tals-
verður timi væri enn til stefnu.
— FRI
að þeir ætli sér ekki að hjálpa
Friðriki á nokkurn hátt.”
„A hinn bóginn eru þeir
hræddir við Campomanes enda
er hann hættulegri en Sovét-
menn” sagði Kortsnoj og bætti
við ...,,þaö má segja að hann sé
rétttrúaöri en páfinn”.
Aöspuröur um hvort hann ætti
von á þvi aö fjölskylda hans
losnaöi brátt úr Sovétrikjunum
þar sem sonur hans Igor losnar
úr fangabúðum þeim sem hann
hefur verið i haldi á morgun,
sagði Kortsnoj aö hann ætlaði að
biöa og sjá til næstu þrjár
vikurnar, en Sovétmenn hefðu
■ Viktor
Kortsnoj
gefiö i sJtyn að lausn þessa máls
yrði innan þess tima.
„Annaðhvort losnar fjöl-
skylda min þá eða annars stór-
átaks veröur þörf,” sagöi Korts-
noj.
Hann sagði ennfremur að
hann hefði nýlega haft samband
við konu sina og væri hún nú á
leiö til Síberiu aö ná i son þeirra.
Frambjóö-
endur
heimsækja
fyrirtæki
■ Undanfarna daga hafa frambjóðendur Framsóknarflokksins
farið á vinnustaði I Reykjavik, skoðað fyrirtækin og rætt við
starfsfólkið.
Að sögn Hrólfs Halldórssonar, formanns fulltrúaráðs Fram-
sóknarfélaganna I Reykjavik.er gert ráð fyrir að frambjóð-
endurnir skoöi 40-50 reykvisk atvinnufyrirtæki.
Þessar myndir voru teknar þegar Sigrún Magnúsdóttir og Jó-
steinn Kristjánsson komu I heimsókn I frystihúsið á Kirkjusandi
i gær, skoðuðu húsið og ræddu við starfsfólkið.
Fluttu frambjóöendurnir stuttar ræður og svöruðu siðan fyrir-
spurnum. Var mikiö spurt út I helstu baráttumál Framsóknar-
flokksins, lækkun fasteignaskatta um 20%, yfirtöku ríkisins á
rekstri Borgarspitalans, skoðanakannanir meöal borgarbúa auk
þess sem mikill áhugi var á endurráðningu Egils Skúla Ingi-
bergssonar sem borgarstjóra I Reykjavik. Timamynd: Róbert
Kvíkmynda-
hornid:
Subbu-
skapur
- bls. 23
leikur
bls. 15
bls. 2
Thatcher
í sókn
- bls. 7