Tíminn - 13.05.1982, Qupperneq 1
frambjóðenda — bls. 10-11
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐÍ
Fimmtudagur 13. mai 1982
107. tölublað — 66 árg.
Heimllls-
tíminn *
bls. 12
Þjóðlaga-
söngkonan
— bls. 19
Lynne
Fredrick
bls. 2
Josef
bls. 7
Mexikanar heykjast á að halda millisvæðamót í skák:
MÓT1Ð AD ÖLLUH LlK-
INDUM FLUTT HINGAÐ
■ Allar likur benda nú til þess
að millisvæðamótið, fyrir
heimsmeistarakeppnina i skák,
sem halda átti i Mexikó i júli i
sumar verði haldið hér á landi i
haust. Mót þetta er geysisterkt,
trúlega sterkara en öll skákmót
sem haldin hafa verið hér á
landi hingað til.
„Það kom upp mjög óvæntur
hnykkur i efnahagslifinu út i
Mexikó. Stjórnvöld, sem ætluðu
sér að fjármagna millisvæða-
mótið, skáru fjárveitingar niður
svo ljóst er að Mexikanar geta
ekki haldið mótið,” sagði Frið-
rik Ólafsson, forseti FIDE þeg-
ar Timinn spurði hann um þessi
mál i gær.
— Er þá alveg ljóst að mótið
verður haldið hér á landi?
„Já. Ég tel það nokkuð öruggt
að hægt verði að halda það hér.
Þótt náttúrlega sé alltaf
hugsanlegt að tilboð komi
annarsstaðar frá.”
Skáksamband Islands verður
formlegur mótshaldari og mun
það sjá um framkvæmdina að
öllu leyti. Ingimar Jónsson for-
seti Skáksambandsins sagði i
samtali við Timann i gær að
Skáksambandið væri allt að
vilja gert til að halda mótið.
„En vegna þess að tilboðið kem-
ur svona seint gætu orðið ein-
hverjir erfiðleikar við að finna
heppilegt húsnæði. En ég hef
ekki trú á öðru en að úr þvi ræt-
ist,” sagði Ingimar.
Eftirtaldir skákmeistarar
taka þátt i mótinu: Spassky,
Polugajevski, Balasjof, Jusu-
pov, Portich, Adorjan, Horvath,
Nunn, Seirawan, Torre, Rod-
riges, Rubinetti, Coalta og
Ivanov.
—Sió.
■ „Einstakt björgunarafrek var unnið þegar þyrla Landhelgisgæslunnar ..Nei, takiö þetta ekki
alvarlega. Þessiungi maður hafði aöeins fundið sér skemmtilega róluniðri á varðskipabryggjunni I gær
og sveiflaði sér til og frá, — kannske veröandi sigmaöur og Hklega Vestmannaeyingur.
(Timamynd Róbert).
eiga það
margfalt inni
■ Hann réðist ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur inn-
brotsþjófurinn sem braust inn á
lögreglustöðina á Sauðárkróki
um helgina. Lögreglan var i út-
kalli og áður en hún fór láðist að
loka glugga sem veit að götunni.
Innbrotsþjófurinn gerði sér mat
úr þvi og brá sér inn um glugg-
ann. Inni á stöðinni fann hann
eina brennivinsflösku, sem
lögreglan hafði i geymslu, tók
hana traustataki og fór siðan út
um gluggann aftur án þess að
snerta viö öðru en flöskunni.
Þegarlögreglan varð þess vör
að flaskan var horfin beindust
spjótin fljótlega að ákveðnum
manni sem siðan var færður til
yfirheyrslu. Við yfirheyrslurnar
viðurkenndi hann innbrotið og
sagðist jafnframt eiga brenni-
vinið inni hjá lögreglunni, og
það margfalt.
Lögreglan á Sauðárkróki
sagöi innbrotsþjófinn vera
„góðkunningja” sinn. —Sjó.