Tíminn - 22.05.1982, Qupperneq 1

Tíminn - 22.05.1982, Qupperneq 1
Kosningahátíð Framsóknarmanna - bls. 10-11 1. Kristján Benediktsson, 2. Gerður Steinþórsdóttir, 3. Sigrún Magnúsdóttir, 4. Jósteinn Kristjánsson, 5. Sveinn G. Jónsson, *>• Auöur Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi kennari kaupmaöur. framkvæmdastióri. verslunarmaöur nemi. Framsóknarmenn! HEITIIM HVER A ANNAN, HERD- UM SÓKNINA OG SÖFNUM UÐI! — Ávarp til Reykvíkinga, eftir Guðmund G. Þórarinsson, alþingismann ■ Síðustu dagana hefurstaða okkarfarið batnandi i kosningabaráttunni. Viðtökur þœr, sem fram- bjóðendur okkar hafa fengið á vinnustöðum og öðrum vettvangi borgarlifsins benda ótvírœtt til að fleiri og fleiri eru að snúast á sveif með okkur. Frambjóðendur okkar hafa markað skýra stefnu, sem fólkið skilur. í dag ríður á að framsóknar- menn vinni vel, stilli saman hönd og hönd og berjist ötulir fyrir auknum áhrifum flokksins á stjórn borgarinnar. Gifturík störf flokksins í þágu lands og þjóðar í nœrfellt 70 ár varða veginn. Enn harðari framsókn til bættra lifskjara, þróttmikillar upp- byggingar og fagurs mannlífs i borginni, er okkur nauðsyn. í dag fer lokabarátta þessara kosninga fram. Framsóknarmenn, hvetjum hver annan, styðjum hver annan, eflum hver annan í lokasókninni. Við þekkjum öll mátt samtakanna. Samtaka nú. Hafið samband við kosningaskrifstofurnar og starfslið flokksins. Pað munar um hverja starfsfúsa hönd. í þessum kosiungum virðast óvenjumargir óráðnir í hvað kjósa skuli. Við þurfum að ná til þessa fólks og skýra fyrir því stefnu okkar. Heitum hvert á annað að herða sóknina og safna liði og berjast í dag fyrir góðum kosningaúrslitum. í dag vinnum við öll saman. Nú munar um hvern og einn. Pað var ánœgjulegt að vera á kosningahátíð B-listans á Hótel Sögu á fimmtudagskvöldið var. í troðfullum Súlnasalnum og hliðarsölum rikti baráttuandi. Pað var létt yfir fólkinu og allir voru ákveðnir i að leggja sitt af mörkum. Pað verður að tryggja áhrif framsóknarmanna i borgarstjórn Reykjavikur. Pað er Reykjavik og Reykvíkingum nauðsyn. Ég segi þetta ekki bara vegna þess að ég erfram- sóknarmaður, heldurfyrst ogfremst vegna þess að ég er Reykvikingur. mSU&ttmi

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.