Tíminn - 25.05.1982, Side 1
Gæsarækt í garðinum — bls. 24
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Þriðjudagur 25. maí 1982
116. tölublað — 66. árgangur
— bls. 23
VALDASKIPTI í BORfi-
INNI A FIMMTUDAGINN
Framsóknarflokkurinn kélt sínum hlut í kosningunum
■ Sjálfstæðismenn náðu
hreinum meirihluta i borgar-
stjórnarkosningunum á laugar-
daginn og fengu 12 fulltrúa
kjörna. Vinstri meirihlutinn var
þar með fallinn i Reykjavik, en
skipting fulltrúa vinstriflokk-
anna og Kvennaframboðsins er
sem hér segir:
Alþýðuflokkur einn fulitrúi,
(hafði áður tvo), Framsóknar-
flokkur tveir fulltrúar, (hafði
áður einn), Alþýðubandalag 4
fulltrúar, (hafði áður 5) og
Kvennaframboð tveir fulltrúar.
Valdaskipti i Reykjavik fara
formlegafram á fimmtudaginn.
Sjálfstæðismenn juku talsvert
við fylgi sitt um land allt, Fram-
sóknarflokkurinn jók litillega
við fylgi sitt, en Alþýðuflokkur
og Alþýðubandalag misstu tals-
vert fylgi.
Ef litiö er á fjölda bæjarfull-
trúa yfir landið, að Selfossi
undanskildum, en þar var
endurtalið i gærkvöldi, þá litur
dæmið svona út: A-listi 23 full-
trúar (hafði 29), B-listi 42 full-
trúar (haföi áður 33,), D-listi 90
fulltrúar (hafði áður 67), G-listi
26 fulltrúar, (hafði áður 36) og
V-listi 4 fulltrúar.
Auk þess að vinna meiri-
hlutann i Reykjavik náöi Sjálf-
stæðisflokkurinn hreinum
meirihluta i Vestmannaeyjum.
Framsóknarmenn fengu
hreinan meirihluta á Dalvik. A
Akureyri vann Kvennafram-
boðið tvo menn og er nú i odda-
aðstöðu hvað samstarf snertir.
— AB
Sjá nánar kosningafréttir og
viðtöl á siðum 3.4,5, 10, 11, 12,
13 og 14.
■ Hjðlreiöadagurinn var á sunnudaginn og tóku þátt f honum mörg hundruð ungiinga, sem fóru í óra-
löngum fylkingum um stræti borgarinnar á reiðhjólum sinum frá 10 stöðum f borginni. Dagurinn var nú
helgaður velferðarmálum aldraðra og söfnuðu þátttakendur fé sem þeir svo hjóiuðu með niður á
Laugardalsvöll. Kjörorð hjólreiðadagsins að þessu sinni var: „Látum öldruðum liöa vel.”
Ölódur maöur
rédst á tvær
sjö ára telpur:
Bein-
braut
aðra!
■ Olóður maður réðst af mikilli
heift á tvær sjö ára gamlar telpur
sem voru að leik fyrir utan heim-
ili hans í fjölbýlishúsi i Arbæjar-
hverfi siðdegis á kosningadag.
Svo mikil var heift mannsins
þegar hann réðist á telpurnar að
hann reif lokk úr hári annarrar
þeirra en henti hinni til þannig að
hún lenti á öðrum handleggnum
og handleggsbrotnaði.
Við yfirheyrslur hjá rann-
sóknarlögreglu rikisins bar
maöurinn að hann hefði veriö viti
sinu fjær eftir missætti sem kom
upp inn á heimili hans og vegna
ölvunar. Eftir yfirheyrslur var
manninum sleppt og drógu for-
eldrar telpnanna allar kærur til
baka vegna þessa máls. — Sjó.
Akureyri:
„Vinstri
meirihluti
í sigtinu”
■ Umræður um myndun nýs
meirihluta á Akureyri hefjast
væntanlega i dag en fulltrúar
tveggja flokka sem skipuðu fyrri
meirihlutann, Framsóknarflokks
og Alþýöubandalags hafa báðir
sagt að þeir telji liklegast að nýr
meirihluti verði myndaður af
fyrri meirihluta ásamt kvenna-
listanum.
Siguröur óli Brynjólfsson,
efsti maður Framsóknar á Akur-
eyri,sagði i samtali við blaðiö aö
hann teldi þennan möguleika lik-
legastan af þeim sem lægju fyrir
og Helgi Guðmundsson, Alþýðu-
bandalagsmaður sagði að „stjórn
fyrrum meirihluta með þátttöku
kvennaframboðsins væri i sigt-
inu”. — FRI