Tíminn - 02.06.1982, Síða 1
Heimilis-
tíminn:
Braud-
dagurinn
— bls. 14
Hluti starfsfolks i prentsmidju Timans við tvo hmna nýju tolvusetnmgartækja.
Tímamynd Róbert.
NY TOLVUSETNINGARTÆKI
TÍMANS TEKIN f NOTKUN
— setning og umbrot Tímans flutt úr Blaðaprenti í gær
■ Setning og umbrot Tímans flutt-
ist yfir Síðumúlann i gær, og er
tölublað dagsins þvi það fyrsta,
sem algjörlega er sett og brotið um
í nýrri Prentsmiðju Tímans. Blað-
ið verður áfram prentað í Blaða-
prenti.
Tíminn er nú settur i nýjum og
fullkomnum tölvusetningarvélum
frá Linotype. Meginmálsletrið er
þar annað en i þeim setningarvél-
um, sem notaðar eru í Blaða-
prenti, og er þetta nýja letur senni-
lega helsta breytingin, sem lesend-
ur verða strax varir við á útliti
blaðsins sjálfs.
Hluti af ritstjórnarhæð Timans
að Síðumúla 15 hefur verið inn-
réttuð sérstaklega fyrir prentsmiðj-
una. Þar er blaðið sett og brotið
um. Þegar siðurnar eru frágengnar
eru þær fluttar út í Blaðaprent til
myndatöku, plötugerðar og loks
prentunar.
Starfsfólkið í prentsmiðju
Tímans var allt áður í Blaðaprenti
en bætist nú í hóp starfsmanna
Timans.
Það er von Timans að með þeirri
nýju tækni, sem nú hefur verið
tekin í notkun, verði blaðið enn
betur úr garði gert en fyrr. -ESJ.
Þeir
ensku
komnir
— bls. 15
Listahátið á
laugardag
— bls. 4
■■■■■
ASÍ og VSÍ með þreifingar um að semja til
1. september á næsta ári?
AIMENN KAIIPHÆKKUN 4*/.
OG ÓBREYTT VÍSITAIA?
■ Um 4% almenn kauphækkun,
nokkurra prósenta starfsaldurs-
hækkanir félaga innan Verka-
mannasambandsins, óbreytt visi-
tala og samningstímabil til 1. sept.
1983, mun hafa komið nokkuð til
umræðu sem hugsanlegur samn-
ingsgrundvöllur á samningafund-
unum i Karphúsinu nú um hvita-
sunnuhelgina, samkvæmt heimild-
um er Tíminn aflaði sér i samtölum
við ýmsa forystumenn verkalýðs-
hreyfingarinnar. Ekki var þarna
þó um neinar formlegar tillögur að
ræða, heldur svona „káf og
þreifingar” eins og einn þeirra
orðaði það.
„En við höfnuðum þeirri lausn
sem var þarna á borðum um
helgina”, sagði einn af þeim Verka-
mannasambandsmönnum. En á
þeim munu þessar hugmyndir
aðallega hafa strandað, að sinni
a.m.k., þar sem þeir krefjast
einnig flokkahækkana fyrir sitt
fólk. Á fundi VSÍ og atvinnurek-
enda i gær, munu atvinnurekendur
aðeins hafa nálgast þær kröfur
eitthvað örlitið. '
Það eru hins vegar félög innan
Verkamannasambandsins sem
hvað veikasta stöðu hafa til
verkfallsátaka um þessar mundir.
„Ég er ekki frá þvi að mörgum
frystihúsamönnum þætti það hrein
himnasending að fá stöðvun núna”
sagði einn viðmælenda okkar í gær
og sama skoðun kom fram hjá
ýmsum öðrum. Þetta sé vonlaus
timi til verkfallsátaka fyrir t.d.
fiskvinnslufólk.
Næsti samningafundur ASÍ,
VSI og VMSS hefur verið boðaður
i dag. - HEI.
Vorkapp-
reiðar
— bls. 12-12
Skólahald á Seyðisfirði 100 ára - Sjá bls. 8-9
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Miðvikudagur 2. júní 1982
122. tölublað - 66. árg.