Tíminn - 02.06.1982, Blaðsíða 1

Tíminn - 02.06.1982, Blaðsíða 1
Heimilis- tíminn: Braud- dagurinn — bls. 14 Hluti starfsfolks i prentsmidju Timans við tvo hmna nýju tolvusetnmgartækja. Tímamynd Róbert. NY TOLVUSETNINGARTÆKI TÍMANS TEKIN f NOTKUN — setning og umbrot Tímans flutt úr Blaðaprenti í gær ■ Setning og umbrot Tímans flutt- ist yfir Síðumúlann i gær, og er tölublað dagsins þvi það fyrsta, sem algjörlega er sett og brotið um í nýrri Prentsmiðju Tímans. Blað- ið verður áfram prentað í Blaða- prenti. Tíminn er nú settur i nýjum og fullkomnum tölvusetningarvélum frá Linotype. Meginmálsletrið er þar annað en i þeim setningarvél- um, sem notaðar eru í Blaða- prenti, og er þetta nýja letur senni- lega helsta breytingin, sem lesend- ur verða strax varir við á útliti blaðsins sjálfs. Hluti af ritstjórnarhæð Timans að Síðumúla 15 hefur verið inn- réttuð sérstaklega fyrir prentsmiðj- una. Þar er blaðið sett og brotið um. Þegar siðurnar eru frágengnar eru þær fluttar út í Blaðaprent til myndatöku, plötugerðar og loks prentunar. Starfsfólkið í prentsmiðju Tímans var allt áður í Blaðaprenti en bætist nú í hóp starfsmanna Timans. Það er von Timans að með þeirri nýju tækni, sem nú hefur verið tekin í notkun, verði blaðið enn betur úr garði gert en fyrr. -ESJ. Þeir ensku komnir — bls. 15 Listahátið á laugardag — bls. 4 ■■■■■ ASÍ og VSÍ með þreifingar um að semja til 1. september á næsta ári? AIMENN KAIIPHÆKKUN 4*/. OG ÓBREYTT VÍSITAIA? ■ Um 4% almenn kauphækkun, nokkurra prósenta starfsaldurs- hækkanir félaga innan Verka- mannasambandsins, óbreytt visi- tala og samningstímabil til 1. sept. 1983, mun hafa komið nokkuð til umræðu sem hugsanlegur samn- ingsgrundvöllur á samningafund- unum i Karphúsinu nú um hvita- sunnuhelgina, samkvæmt heimild- um er Tíminn aflaði sér i samtölum við ýmsa forystumenn verkalýðs- hreyfingarinnar. Ekki var þarna þó um neinar formlegar tillögur að ræða, heldur svona „káf og þreifingar” eins og einn þeirra orðaði það. „En við höfnuðum þeirri lausn sem var þarna á borðum um helgina”, sagði einn af þeim Verka- mannasambandsmönnum. En á þeim munu þessar hugmyndir aðallega hafa strandað, að sinni a.m.k., þar sem þeir krefjast einnig flokkahækkana fyrir sitt fólk. Á fundi VSÍ og atvinnurek- enda i gær, munu atvinnurekendur aðeins hafa nálgast þær kröfur eitthvað örlitið. ' Það eru hins vegar félög innan Verkamannasambandsins sem hvað veikasta stöðu hafa til verkfallsátaka um þessar mundir. „Ég er ekki frá þvi að mörgum frystihúsamönnum þætti það hrein himnasending að fá stöðvun núna” sagði einn viðmælenda okkar í gær og sama skoðun kom fram hjá ýmsum öðrum. Þetta sé vonlaus timi til verkfallsátaka fyrir t.d. fiskvinnslufólk. Næsti samningafundur ASÍ, VSI og VMSS hefur verið boðaður i dag. - HEI. Vorkapp- reiðar — bls. 12-12 Skólahald á Seyðisfirði 100 ára - Sjá bls. 8-9 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ Miðvikudagur 2. júní 1982 122. tölublað - 66. árg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.