Tíminn - 03.06.1982, Side 1
íslendingaþættir fylgja blaðinu f dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐ
l---------------
Fimmtudagur 3. júní 1982
123. tölublað - 66. árg.
Erlent
yfirlit:
Fjöl-
miðla-
hátíd
— bls. 22
.....
— bls. 10
Heimsókn
í Fr6n
Svolltil hreyfing” í samningaviðræðunum:
TILLAGA AÐ FÆÐAST
HJA SÁTTASEMJARA?
■ „Það er min tilfinning að sátta-
tillaga sé jafnvel að fæðast“, sagði
einn af samninganefndarmönnum
ASÍ við okkur í gær. Þessi „tilfinn-
ing“ var borin undir Guðmund J.
Guðmundsson. „Eg vil ekki gerast
spámaður i þeim efnum“, svaraði
hann aðeins.
„Jú, vist hefur verið svolitil hreyf-
ing á þessu“, svaraði Guðmundur
spurður um hvort ekki þokaðist
eitthvað í samningamálunum. Lít-
ið mun þó hafa gerst á sáttafundin-
um i gær en annar hefur verið
boðaður á morgun.
„Við liggjum hins vegar undir
gífurlegum þrýstingi frá okkar
félagsfólki um lagfæringar", sagði
Guðmundur. „Þó Vinnuveitenda-
sambandið hafi gefið ákveðna til-
slökun, sem vissulega er til bóta,
þá getum við ekki talið það neina
ósanngirni af okkar hálfu að ganga
ekki að samningum til langs tíma
alveg á stundinni. Við teljum
okkur í þessari venjulegu erfiðu
stöðu og munum vissulega fara að
athuga okkar sérstöðu almennt,
þó það verði ekki endilega núna“,
sagði Guðmundur.
Spurður á hverju strandaði
helst, svaraði Þorsteinn Pálsson:
„Viðræður hafa verið í gangi milli
ASÍ og VSÍ um möguleika á
heildarlausn, þótt engin tilboð hafi
gengið á milli. En forystumenn
VMSÍ hafa hafnað öllu og virðast
sjá það eitt að stefna þjóðinni út í
langvarandi verkföll".
-HEI
I Arnór Guðjohnsen, besti maður islenska liðsins, sendir knöttinn i mark Englendinganna. Ensku stjömunum Alan Devonshire, Terry McDermott
°g fyrirliðanum Phil Neal líst greinilega ekkert á blikuna. Áinnfelldumyndinnisjástislenskuleikmennimirfagna. nmamynd Róbcri
1:1 GEGN ENGLANDI!
■ „Að sjálfsögðu er ég mjög
ánægður með markið sem ég gerði
og það munaði litlu að mér tækist
að bæta öðru marki við. Ef ég
hefði náð aðeins meiri sveig á
boltann þá hefði hann farið yfir
Corrican í markinu“ sagði Amór
Guðjohnsen sem syndi mjög góð-
an leik með islenska landsliðinu í
knattspyrnu í gærkvöldi þegar
Island og England gerðu jafntefli
1:1 á Laugardalsvellinum að við-
stöddum yfir 11 þúsund áhorfend-
um.
Arnór skoraði mark íslands i
fyrri hálfleik og lengi vel leit út
fyrir íslenskan sigur en Paul Godd-
ard tókst að jafna metin um miðjan
seinni hálfleik. Þetta var í fyrsta
sinn sem fsland og atvinnumanna-
lið Englands leika landsleik í
knattspyrnu og í enska liðinu voru
engir aukvisar.
„Við áttum mjög góðan fyrri
hálfleik og maður er farinn að
búast við ýmsu af strákunum"
sagði Jóhannes Atlason þegar
hann var spurður hvort hann hefði
átt von á þessum úrslitum fyrir-
fram.
„fslenska liðið lék mjög vel og
þeir gáfust aldrei upp“ sagði
Bobby Robson framkvæmdastjóri
eftir leikinn.
Röp.
Sjá nánar bls. 17
t