Tíminn - 04.06.1982, Blaðsíða 1
og dagskrá ríkisf jölmiðlanna 5/6-12/6 ’82
Úr skemmtanalífinu
„Vötn á
— yf irlitssýning á verkum
Kristins Péturssonar
f Listasafni alþýðu
■ Laugardaginn 5. júni nk. verður opnuð í tiiefni af Listahátið sýning
i Listasafni alþýðu á myndlistarverkum eftir Kristin Pétursson og ber
sýningin yfirskriftina „Vötn á himni“.
Kristinn Pétursson andaðist 1.
september 1981, 84 ára að aldri,
og átti hann þá að baki 50 ára feril
sem skapandi listamaður.
Kristinn lét eftir sig mikið safn
málverka eða alls 1367 að tölu og
runnu þau óskipt til Listasafns
alþýðu sem unnið hefur úr mynd-
unum og efnir til yfirlitssýningar á
þeim.
Kristinn Pétursson var lítt um-
talaður listamaður á síðastliðnum
árum, enda ekki furða, þar sem
hann hafði ekki sýnt opinberlega
siðan 1954. Sýningin í Listasafni
alþýðu er þvi gott tækifæri til að
kynnast fjölbreytilegum ferli lista-
mannsins, þar sem gefur að líta
fyrst raunsæar náttúrumyndir, en
síðan sjáum við hvernig listamað-
urinn vinnur úr möguleikum nátt-
úrunnar og umskapar hana á sinn
listræna og persónulega hátt. Þá
kynnumst við nú i fyrsta sinn
algerlega óþekktum málverkum
eins og t.d. geometrískum og
expressioniskum abstarctionum
auk einlitamynda sem listamaður-
inn vann nokkru fyrir andlátið.
Þá hefur verið sett saman Iit-
skyggnuröð sem sýnd er ásamt
upplestri á brotum úr æviminning-
um listamannsins. Þar koma vel
fram hugleiðingar hans um sína
eigin list og sína stílsögulega
þróun. Kemur það glöggt fram að
erfitt er að aðgreina listamanninn
frá fræðimanninum.
Sýningin verður opnin daglega
frá kl. 2-10 fram til 27. júni nk.
■ Kristinn Pétursson lést í fyrra, 84 ára að aldri, og átti hann þá að
baki hálfrar aldar feril sem skapandi listamaður. Nú gefst fólki kostur á
að skoða verk hans i Listasafni alþýðu.
himni”
interRent
car rental
Bílaleiga Akuréyrar
Akureyri Reykjavik
THVCC.AÖR4. T u SKÍ'fAS ,
s t}yt s 'if' ^6
Mesta urvallö. besta þ[ónustan
Vi6 utvegum yöur afslátl
a bilaielgubtlum er'endls
smitjíukallí
.SMIDJUVEGI 14 D - 72177
Hjartarbaninn
Grilllö opið
Frákl. 23.00 alla daga.
Opió til kl. 04.00 sunnud,—
fimmiud.
OpiA.til kl 05 00 fóstud. og laugard
Sendum heim mat ef óskað er
SRtitjjukani
SÍMI 72177
Human #
Le ague
*
á Islandi 11. og 12. júní nk.
Forsala aðgöngumiða á tón-
leikana í Laugardalshöll hefst
ast miðvikudaginn 2. júní nk.
kl. 14.00—19.30 í Gimli við
Lækjargötu.
Með HUMAN LEAGUE
koma fram hinir landsþekktu
EGÓ
Tryggið ykkur miða tímanlega.
Listahátíð í Reykjavík