Tíminn - 05.06.1982, Page 1
Gluggað f myndasafn Þjóðminjasafnsins — bis. 10-11
Blað i Tvo
1 | blöd j
1 A ídag
1
S| . - d ■ , i 'Helgin 5.-6. júní 1982 125. tölublað - 66. árg. .
Erlent
yfirlit:
Valda-
taf I í
Kreml
— bls. 7
Gull
pálminn
— bls. 19
Sund-
bolir
— bls. 2
Þing
BSRB
- bls. 3
I
I
Ákvörðun tekin um 10,5% hækkun fiskverds:
„LEHNR T1L ALLS-
HERIAR GJALDÞROTS”
— segja útgerðarmenn — sjómenn mótmæla einnig
■ Á fundi yfirnefndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins i gær var
ákveðið að lágmarksfiskverð skuli
hækka um 10,5% frá síðustu
mánaðamótum að telja. Gildir
verðið til 1. september nk., eða
einum mánuði styttra en venja er
til.
Var verðið ákveðið af odda-
manni nefndarinnar og tveimur
fulltrúum fiskkaupenda, en at-
kvæði á móti fiskverðsákvörðun-
inni greiddu fulltrúar sjómanna og
útgerðarmanna.
Fulltrúi sjómanna í yfirnefndinni
segir að fiskverðsákvörðunin stefni
hagsmunum sjómanna í algjöra
tvisýnu, þar sem tekjur sjómanna
hafi minnkað um fjórðung það sem
af er þessu ári vegna minni og
óhagstæðari afla auk fjölgunar í
skipaflotanum.
Fulltrúi útgerðarinnar segir að
fiskverðsákvörðunin stefni að því
að leiða yfir þjóðina allsherjar
gjaldþrot útgerðar með tilheyrandi
atvinnuleysi, enda staðfest af
Þjóðhagsstofnun að togararnir séu
nú reknir með 30-40% halla það
sem af er þessu ári.
„Fiskverð hefur stundum hækk- ■
að minna en verðbætur í landi
vegna aukins afla, en þetta
sjónarmið hafa sjómenn aldrei
viljað viðurkenna. Það er hins
vegar ljóst, að ef aflabrögð verða
svipuð allt þetta ár, þá koma tekjur
sjómanna til með að dragast
saman. Ég hef aftur á móti beitt
mér fyrir því að sjómenn fái sömu
hækkun á botnfisk og verðbótavisi-
talan kveður á um. Ég get hins
vegar alls ekki stutt það að
hækkunin verði langt umfram
verðbótavísitölu. Fiskverð hefur
nú verið ákveðið til aðeins þriggja
mánaða í stað fjögurra, með tilliti
til þess að sjómenn fái bættar
grunnkaupshækkanir í september
ef einhverjar verða. Þá verður
myndin af aflabrögðum vonandi
einnig farin að skýrast, sagði
Steingrimur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra, i samtali við Tím-
ann i gær.
Kás
■ Nú um helgina er landsmót harmonikuunnenda haldið i Reykjavík, en nikkan er eina hljóðfærið sem landssamtök hafa verið stofnuð utan
um. Hér á myndinni má sjá þegar norðlensku harmonikkuleikaramir tóku lagið á Lækjartorgi í gær fyrir vegfarendur og hjörtun lyftust við
dillandi spil undir stjóm Guðmundar Nordals. (Timunynd G.E.)
Engin lausn f sjónmáli í útvarpsdeilunni:
STÖÐURNAR AUGLÝSTAR
■ Stöður tæknimanna útvarpsins,
sem hættu á miðnætti í fyrrakvöld
voru auglýstar lausar til umsóknar
í sjónvarpinu i gærkvöldi og verða
þær einnig auglýstar í öllum
dagblöðum i dag. Þetta kom fram
i viðtali Timans í gær við Hörð
Vilhjálmsson, framkvæmdastjóra
útvarpsins í gær og kvaðst Hörður
jafnframt óttast að langur timi liði
þar til starfsemi útvarpsins yrði
með eðlilegum hætti á nýjan Ieik.
Hörður sagði jafnframt: „Það
liggur fyrir að starfsmannafélag
Rikisútvarpsins hefur tekið við
stjórn hér í stofnuninni i dag.“
Samtök um frjálsan útvarps-
rekstur sendu i gær rikisstjórninni,
menntamálaráðherra og útvarps-
ráði bréf, þar sem þau buðust til
þess að taka að sér útvarpsrekstur
á meðan að útsendingar Rikisút-
varpsins liggja niðri. Tíminn snéri
sér i gær til Ingvars Gíslasonar,
menntamálaráðherra og spurði um
hans álit á þessu tilboði:
„Þetta boð er að mínum dómi
ákaflega óaðgengilegt, og það
kemur ekki til neinna mála af
minni hálfu, að þessu boði verði
tekið,“ sagði menntamálaráð-
herra. Hann sagði jafnframt:
„Rikisútvarpið hefur einkaleyfi á
útvarpsrekstri og á meðan að
núgildandi útvarpslög eru í fullu
gildi, þarf ekki að ræða svona
lagað.“
-AB
Sjá nánar bls. 3.