Tíminn - 08.06.1982, Page 1
'
Sjómannadagurinn í biíðskaparveðri bls. 12-13
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Þriðjudagur 8. júní 1982
127.tölublað-66. árg.
Nóg af
pundum
— bls. 2
75 ára
bls. 10-11
Samningavid-
ræðunum
miðar hægt:
„EKKERT
HflND-
FASTAF
NEINU
TAGI”
■ „Það er ekkert handfast ennþá at
neinu tagi“, sagði einn af samninga-
nefndarmönnum ASÍ i gærkvöldi, en
langir og miklir samningafundir hafa
staðið nú um helgina, og er það mál
ýmissa að litið hafi þokað i samkomu-
lagsátt á þeim, nema kannski síður sé.
„Menn hafa kannski gert sér óraun-
hxfar hugmyndir um þá möguleika,
sem taldir voru fyrir hendi, og þegar
það kom i Ijós lokaðist allt á ný“,
sagði annar úr herbúðum Vinnuveit-
enda.
Spurður á hverju strandi helst nú,
svaraði einn ASÍ-manna. „Að sumu
leyti strandar á þeirri afstöðu VSÍ,
sem leggur áherslu á að samið verði
við alla i einu. En sum félög, t.d. raf-
iðnaðarmennimir, eru bara ekki með
í þessu samfloti“.
Þá mun Verkamannasambandið
ennþá halda til streitu ýmsum sérkröf-
um til sinna manna umfram það sem
VSÍ getur fallist á. Sömuleiðis kom í
ljós að byggingamenn voru ekki reiðu-
búnir að standa að þeirri heildar-
lausn sem um hefur verið rætt.
- HEI.
Erlent yfirlit:
■ Það var við við hæfi hjá þeim ungu mönnunum á myndinni að nota sjómannadaginn til fiskveiða, enda eru
fiskislóðir viða góðar i Tjöminni i Rcykjavik og nýbúið að hækka fiskverðið. Ekki fylgir sögunni hvort aflinn fer
i skreið eða salt. (Timamynd: ARI)
Begin
og Reagan
— bls. 7
Steingrímur Hermannsson um efnahagsmálin
og samningaviðræður aðila vinnumarkaðarins:
„EKKI EINN EYRIR TIL
FYRIR LAUNAHÆKKUNUM
— „óhjákvæmilegt að telja niður verðbætur á laun,
fiskverð og búvöruverd’’
?!
■ „Eg get litið sagt um samninga
ASÍ og vinnuveitenda. Ég harma að
i þeim samningaumleitunum mun
ekki vera hljómgrunnur fyrir þvi að
engar grunnkaupshækkanir verði.
Fyrir launahækkunum er ekki til
einn einasti eyrir í þjóðarbúinu.
Staðreyndin er sú að minna er til nú
en var i fyrra. Ljóst er að i stað þess
að hækka laun þurfum við að dreifa
þeim byrðum sem af ástandinu skap-
ast sem sanngjamast á alla þegna
þjóðfélagsins. Þá verða þeir að taka
þyngstu byrðarnar sem mest þola, en
ég fæ ekki séð að neinn hópur i
röðum þeirra betur launuðu sé til-
búinn að taka slíkt í mál. Það er
sama hvað samið er um. Það getur
ekki orðið almenn kjarabót þcgar
þjóðartekjur fara minnkandi.“
Þetta sagði Steingrímur Her-
mannsson, formaður Framsóknar-
flokksins, i samtali við Tímann, þeg-
ar rætt var við hann um efnahags-
málin almennt og m.a. yfirstandandi
samningaviðræður aðila vinnumark-
aðarins.
„Við næstu visitöluákvörðun tel ég
óhjákvæmilegt að telja niður bæði
verðbætur á laun, fiskverð og búvöru-
verð og gera þá jafnframt hliðar-
ráðstafanir til að bæta, eins og frek
ast er unnt, kaupmátt þeirra sem
lægstu launin hafa. Ég held að að-
gerðir i þessum dúr séu óhjákvæmi-
legar á næstu mánuðum", segir
Steingrimur Hermannsson.
- Kás.
Sjá nánar viðtal á bls. 8-9.
SEKUR!
— bls. 23