Tíminn - 11.06.1982, Blaðsíða 1
„Helgarpakkirm” fylgir Tímanum í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Föstudagur11.júní1982
130.tölublað-66.árg.
Erlent
yfirlit:
Ástandið
ÍEI
Salvador
— sjá bls. 7
Fassbind-
er látinn
-sjá bls. 23
Heimili
Presleys
— sjá bls. 2
Tré og
runnar
-sjá bls. 10
Allt gert til þess að leysa samningana fyrir lok næstu viku:
raðherrar og sAtta-
NEFND SAMAN A FUNDI
■ Sáttanefnd ásamt sáttasemjara rík-
isins kom á fund ríkisstjómarinnar í
gærmorgun. Guðlaugur Þorvaldsson,
sáttasemjari, gaf ríkisstjóminni þar
skýrslu um stöðu samningaviðræðna
aðila vinnumarkaðarins. Á eftir ræddi
ríkisstjómin lauslega um þessi mál.
Samkvæmt beimildum Tímans vora
ráðherrar sammála um að leyfa yrði
samningsaðilunum og sáttanefnd að
reyna til þrautar að koma á samning-
um.
Eins og komið hefur fram i
Timanum undanfama daga ber tiltölu-
lega litið á milli vinnuveitenda og
Alþýðusambands fslands, en hins
vegar hafa hugmyndir Meistarasam-
bands byggingarmanna og Sambands
byggingarmanna um lausn þeirrar
deilu sett strik í reikninginn.
Er nú leitað allra hugsanlegra leiða
til að leiða deilur þessara aðila
friðsamlega til lykta. í þeim tilgangi að
auðvelda ríkissáttasemjara og sátta-
nefnd mat á sáttamöguleikum hefur
sambandsstjórn Vinnuveitendasam-
bands íslands ákveðið að fresta
framkvæmd verkbannsákvarðana um
skamman tíma. Jafnframt hefur sam-
bandsstjórn VSÍ falið framkvæmda-
stjórn samtakanna að taka þau mál
upp að nýju jafnskjótt og nauðsyn
krefur, bæði að því er varðar
viðsemjendur innan Alþýðusambands
íslands og utan.
í gær sat sáttanefnd ásamt ríkissátta-
semjara á rökstólum og ræddi hugsan-
legar sættir i stöðunni. Framhald
verður á þeim fundarhöldum í dag. Er
þess vænst að boðað verði til formlegs
sáttafundar með aðilum vinnumarkað-
arins á morgun, eftir að óformlegar
viðræður hafa þá staðið yfir í tvo daga.
Allsherjarverkfall hefur verið boð-
að eftir nákvæmlega viku,*.e. föstudag-
inn 18. júní nk. Verði ekki farið að
hylla undir lausn málsins þegar sú
dagsetning nálgast, má búast við að
ríkisstjórnin taki málið að nýju til
umfjöllunar og til alvarlegrar yfirveg-
unar.
- Kás
Verkfallsbrot:
■ Til stimpinga kom milli verkfallsvarða VR og reiðra viðskiptavina, sem meinað var aðgangur að Grensáskjöri, eftir að
ákveðið hafði verið að loka versluninni vegna grans um verkfallsbrot. Tímamynd Róbert.
■ „Þið farið ekki að leggja hendur á
mig hjartveikan manninn." „Við höfum
ekki lagt hendur á neinn. Eins og þú
sérð þá erum við með hendur i vösum.“
Þessi orðaskipti áttu sér stað fyrir utan
Grensáskjör á Grensásvegi eftir hádegi
í gær, þegar til stimpinga kom á milli
verkfallsvarða frá Verslunarmanna-
félagi Reykjavikur og reiðs viðskipta-
manns sem, freistaði inngöngu i verslun-
ina, og tókst það með hjálp verslunar-
eigenda.
Töldu Vr-menn að a.m.k. einn
maður væri ólöglega að störfum í
versluninni og lokuðu henni þvi þar sem
eigendur þverskölluðust við að fylgja
fyrirmælum þeirra. Annars varverkfalls-
vaktin fremur róleg hjá Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur i gær og litið
um stórárekstra.
Mestur ágreiningur varð við Flug-
leiðir í gærmorgun. Töldu VR-menn að
stór hluti skrifstofufólks væri að störfum
hjá fyrirtækinu, og eins félagstnenn
þeirra sem starfa við afgreiðslu Loft-
leiðahótelsins.
„Við teljum okkur hafa unnið góðan
sigur á Flugleiðum, því upp úr hádeginu
fréttum við að flestir starfsmennirnir
hefðu verið sendir heim, nema fram-
kvæmdastjórar og deildarstjórar fyrir-
tækisins“, sagði Pétur A. Maack,
formaður verkfallstjómar VR í samtali
við Tímann i gær. Sagði hann að
verkfallsvarslan hefði að mestu leyti
farið friðsamlega fram, þó voru hótelin
i borginni og þrjú kvikmyndahús VR
óþægir ljáar í þúfu, og þurfti félagið að
sina allan sinn styrk til að stöðva meint
verkfallsbrot. -Kás