Tíminn - 12.06.1982, Side 1

Tíminn - 12.06.1982, Side 1
50 ára afmæli Framsóknarfélags Árnesinga - bls. 8-9 Blað Tvo 1 blöð 1 í dag Helgin 12.-13. júní 1982 131. tölublað — 66. árg. — bls. 14 Ótti Colombo — bls. 2 ErSent yfirlit: Óvissa í Póllandi Tókíó í rúst bls. 15 Snjall trúdur — bls. 5 Uppistandið hjá sjálfstæðismönnum í bæjarstjórn Njarðvíkur: NEYDDU BÆIARFULLTRÚA TIL AÐ SEGJA AF SÉR! ■ JúUus Rafnsson, einn af fjórum bæjarfuiltrúum Sjálfstæðisflokksins í Njarðvík, sagði af sér embætti á fundi í bæjarstjórninni i gærdag, og var afsögnin tekin til greina með sam- hljóða atkvæðum. Ágreiningur hefur verið um það innan meirihluta Sjálf- stæðisflokksins í Njarðvik, hvort auglýsa eigi stöðu bæjarstjóra. Varð Július einn undir i þeirri baráttu við flokksbræður sina. Vildi hann auglýsa stöðuna í samræmi við gefln kosninga- loforð fýrir bæjarstjórnarkosningarn- ar. Tehir Július að meðframbjóðendur sínir hafi svikið loforð, sem þeir hafi gefið honum, um að staðan yrði auglýst. Á mánudaginn var fundur haldinn í fulltrúaráði sjálfstæðisfélag- anna i Njarðvík. „Þessi fundur samþykkti starfsreglur fyrir bæjarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins, þar sem þeim er meinað að hafa aðra skoðun eða greiða atkvæði i bæjarstjórn á annan hátt en meirihlutinn ákveður," sagði Július Rafnsson á fundi bæjar- stjórnar Njarðvikur i gærdag. Jafn- framt samþykkti fundurinn að leita hófanna með meirihlutasamstarf með öðrum flokkum ef hann gæfi sig ekki í málinu um auglýsingu stöðu bæjar- stjóra. „Ljóst er að þessari samþykkt er beint gegn mér vegna afstöðu minnar til auglýsingar stöðu bæjarstjóra, og gefið i skyn að mér sé nú þegar ofaukið í þessum meirihluta. Vegna framan- greindra kosningaloforða og sam- komulags, sem meirihlutinn hefur nú samþykkt að svikja með fulltingi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna i Njarðvík, sé ég mér ekki fært að taka þátt i meirihlutasamstarfi sjálfstæðis- manna“, sagði Július Rafnsson.- Kás ■ Það var áfram sumarbliða í höfuðborginni i gær, og óvenjumargt fólk á ferli i miðborginni, þar sem rikti sannkölluð markaðstorgSStemmnÍng. (Tínumynd: Róbert) ■ Verðlagsráð hefur samþykkt hækkun á bensini, gasolíu, svart- olíu, neyslufiski og unnum kjöt- vörum, og koma þær til fram- kvæmda i dag. Eru hækkanirnar á bilinu 10-20%. Hver litri af bensíni hækkar úr 9.45 kr. í 10.70 kr. eða um 13.2%. Af hækkuninni sem nemur 1.25 kr. renna 79 aurar i rikissjóð, eða 63% hækkunarinnar. Hækkunin stafar af gengissigi, hækkun á dreifingarkostn- aði, en þó fyrst og fremst hækkun opinberra gjalda. Hver lítri gasoliu hækkar um 15%, úr 3.65 kr. i 4.20 kr. Hækkunin stafar af gengissigi, auknum dreifingarkostn- aði og hækkun opinberra gjalda, en þó vegur þar þyngst tillag til að greiða niður óhagstæða stöðu innkaupa- jöfnunarreiknings, en hann er nú óhagstæður um 25 millj. kr. i stað 9 millj. kr. i lok janúar sl. Svartoliutonnið hækkar um 19.8%, úr 2470 kr. í 2960 kr. Hækkunin stafar af gengissigi og erlendum verðhækkun- um. Verðlagsráð tók siðast ákvörðun um hækkun á oliuvörum um má: ða- mótin janúar-febrúar sl., en á þv.' tímabili sem liðið er siðan hefur bandaríkjadollar hækkað um 16.3%. Auk olíuvaranna hefur Verðlagsráð samþykkt 10.5% hækkun á neyslufiski sem er bein afleiðing nýtilkominnar fiskverðsákvörðunar yfimefndar Verðlagsráðs sjávarútvegsins, og 13-16.7% hækkun á unnum kjötvörum sem er á sama hátt bein afleiðing nýs búvöruverðs sem tekin var ákvörðun um á dögunum. - Kás

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.