Tíminn - 25.06.1982, Qupperneq 1

Tíminn - 25.06.1982, Qupperneq 1
„Helgarpakkinn” fylgir Tímanum í dag TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ! Föstudagur 25. júní 141. tölublað-66. árg. reiður — bls. 7 Hún eltir glæpa- menn — bls. 2 Að losna við auka- kíló — bls. 10 Versta myndin - bis. 23 ■ Eftir að aftur slitnaði upp úr samningaviðræðum Vinnuvcitenda- sambandsins og Alþýðusambandsins i fyrrakvöld er Ijóst að verkalýðsfélög á ýmsum stöðum út um land eru nú alvarlega farin að hugleiða að draga sig út úr stóra samflotinu og semja við sina vinnuveitendur á heimaslóðum. Eins og fram kemur í frétt annarsstaðar í blaðinu hafa verkalýðs- félögin í Rangárvallasýslu og Árnes- sýslu þegar boðað sína viðsemjendur til samningafundar nú strax eftir helgina. Samkvæmt traustum heimild- um munu samningar á heimaslóðum einnig hafa verið viðraðir milli verka- lýðsfélaganna og vinnuveitenda i Vestmannaeyjum, en þar kemur yfirvinnubann til framkvæmda aftur nú eftir helgi, sem gerir bæði frystihúsum og togaraútgerð mjög erfitt fyrir. Svipað mun uppi á teningnum víðar á landinu. Sjá bls. 3. - HEI ■ Barnagaman i Hljómskálagarðinum Timamynd: Róbert Skaðabótamál vegna útleigu á kvikmyndinni Ránið á týndu örkinni hjá myndbandaleigu f Reykjavik: ALDREI VERIÐ LOGLEGA GEFIN ÚT A MYNDBAND ■ Nú er haflnn undirbúningur að höfðun skaðabótamáls gegn mynd- bandaleigunni Videóspólunni í Reykjavik fyrír meinta ólöglega út- leigu á myndbandi með kvikmyndinni Raiders of the Lost Ark, sem sýnd er í Háskólabió um þessar mundir. Virðist svo sem hér sé um svokallaða „sjóræningjaspólu" að ræða, þar sem kvikmyndin hefur aldrei verið löglega útgefln á myndband, og óvist hvort af þvi verði. „Okkur finnst ekki taka þvi að fara í lögbann vegna þessarar spólu, enda er ég þegar kominn með hana í mínar hendur, þar sem þarna er um svo hreint bort að ræða. Kvikmyndahúsið er með sýningarrétt að þessari kvik- mynd, en á sama tíma kemur fram kópía af henni á myndbandi, áður en heimilað hefur verið að gefa hana út á myndbandi. Myndin hefur þvi verið tekin ólöglega upp, annað hvort hérlendis eða erlendis", sagði lögfræð- ingur Háskólabíós i samtali við Tímann í gær. Búast má við að skaðabótakrafan muni nema nokkirum hundruðum þúsunda króna. En hver er tilurð myndbandsins? „Það má vel vera að það sé rétt að þessi mynd hafi enn ekki verið gefin út á myndband, en þó kemur mér það svolítið á óvart. Og þó að myndin sé á ómerktri spólu þá þarf það ekki að þýða að um eftirtöku sé að ræða. Ég man ekki hvaðan þessi spóla er komin, en sjálfsagt er hún komin frá einhverjum sem hafa verslað eða skipt við mig með myndbönd. Liklega er þetta komið frá sjómönnum", sagði einn forsvarsmaður Videóspólunnar, i samtali við Timann. - Kás H MIWimriKBBBW

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.