Tíminn - 26.06.1982, Blaðsíða 8
LAUGARDAGUR 26. JUNÍ 1982.
LAUGARDAGUR 26. JUNI1982.
FLORIDANA
ER
■ Allir verða að vera i björgunarvesti. - Pétur Pétursson umsjónarmaður siglingaklúbbsins Þyts fyrir framan hið nýja húsnxði Idúbbsins.
■ Hún Margrét var sko ekki á þvi að
fara í land, þótt einhver ætlaði að tala
við hana.
málninghlf
■ Gunnar Már á fullri ferð á kajaknum.
■ „Danni kom og náði í mig,“ Helgi
lætur það ekkert á sig fá þótt hann hafi
fengið hressilegt sjóbað, og heldur
áfram að sigla.
■ „Það velti einn héma fyrir utan i
gær, og hann synti bara í land,“ -
Sigurður Þór litur eftir krökkunum og
bjargar hinum sem stranda eða velta og
synda ekki i land.
■ „Skólabróðir minn var alltaf i þessu,
og þá datt mér i hug að koma og prófa,“
sagði Hörður, en hann var þama á sinu
fyrsta siglinganámskeiði.
(Timamyndir G.E.)
Frá Flórida
Verðkönnun sem
borgar siq að taka
trúánlega!
Starfsmenn Verðlagsstofnunar gerðu verð-
könnun dagana 10.-14. maí síðastliðinn.
Hún staðfestir að FLORIDANA FRÁ FLÓRIDA er með
lægsta verð á hreinum appelsínusafa í umbúðum
undir 600 ml og er það 20% undir meðalverði.
Við álítum að það borgi sig ekki síður fyrir þig
að vita af lang ódýrasta valkostinum, sem sé
FLORIDANA ÞYKKNINU. Það var ekki tekið með í
þessari könnun vegna eðlismunar sem felst í því að
þú blandar sjálf(ur) vatninu í þykknið í stað þess að
rogast með það heim úr búðinni.
Þannig færðu heilan lítra af hreinum appelsínu-
safa sem er að minnsta kosti 35% ódýrari en
meðalverð á tilbúnum safa í umbúðum yfir 600 ml
og 17% ÓDÝRARl EN ÓDÝRASTISAFINN SEM
TEKINN VAR FYRIR í KÖNNUNINNI!
Mjólkursamsalan I Reykjavík
*Umreiknað verð á lítra. Heimild: Verðkynning 5.tbl.2.árg.1982
Appelsínusafi
600 ml.og yflr
600 mh oa undir
Ann-Page (dós) 19.93
Floridana (pappi) 23.28
Jaff Gold(dós) 38.48
Just Juice (pappi) 35.05 22.34
Kraft(dós) 25.18
Kraft (flaska) 31.62
Libby’s(dós) 20.25
Libby’s(flaska) 20.50
Lindavia(pappi) 25.91
Minute Maid (pappi) 34.10
Red and White (dós) 25.55
Tropicana (pappi) 24.92 24.15
Meðalverð* 29.34 25.39
mjólkurkælinum!
Fioridana safar og þykkni
-bestukaupin!
VEÐURHELDNI OG MÝKT
eru þeir höfuökostir ÞOLS, sem sérstök
áhersla hefur veriö lögð á, vegna:
• fádæmrar endingar viö mikið veöur-
álag, svo sem slagregn, sem er sér-
einkenni íslensks veöurfars, og
• einstaks viönáms gegn orkuríkum
geislum sólar og þeim gífurlegu hita-
sveiflum, sem bárujárnsþök veröa fyrir í
sólskini, snjó og frosti.
Notaöu því ÞOL á þökin og aðra járn-
klæðningu. Kynntu þér leiðbeiningar fyrir
málun. Vfir 20 ára reynsla sannar gæðin.
Fjölbreytt litakort fæst í næstu málningar-
vöruverslun.
- Heimsókn
í siglinga-
klúbbinn
Þyt,
Hafnar-
firði:
...OG ER ALVEG
SAMA ÞÓn ÞAU
LENDI í SJÓNUM’
■ „Við byrjuðum bamastarfið héma i
gömlum grásleppukofa árið 1973, en siglinga-
klúbburinn Þytur var ekki formlega stofnaður
fyrr en i aprfl’7 5,“ sagði Pétur Th. Pétursson
umsjónarmaður siglingaklúbbsins Þyts i
Hafnarfirði, þegar Timinn heimsótti klúbbinn
á dögunum.
Klúbburinn er staðsettur milli Óseyrar-
bryggju og Suðurhafnar i Hafnarfirði, og er
það hin ákjósanlegasta aðstaða til siglinga, en
einnig á klúbburinn kappsiglingasvæði út
undan Straumsvík.
Pétur sagði ennfremur að fyrstu ár
klúbbsins hefði hann starfað í samstarfi við
siglingaklúbbinn Vog í Garðabæ og haft
aðstöðu þar í Garðabænum, en fyrir fjórum
árum fékk klúbburinn siglingaaðstöðu þar
sem hann er nú. Síðan var byrjað á að vinna
við klúbbhúsið fyrir réttu ári síðan og hefur
það að mestöllu leyti verið unnið í
sjálfboðavinnu.
Starfsemi klúbbsins er fjölbreytt, á daginn
eru þar námskeið fyrir bæði börn og fullorðna,
síðan er framhaldshópur á kvöldin, og i hverri
viku er haldið punktamót innan klúbbsins.
Byrjendanámskeið fyrir böm 10-12 ára stóð
yfir þegar við komum i heimsókn, en á þvi
námskeiði læra börnin meðferð optimist-segl-
báta og kajaka, og var þetta þriðji dagur
námskeiðsins.
Maður er strax orðinn alvanur
eftir fyrsta daginn.“
Fyrstan hittum við Gunnar Má, en hann var
að fara út á kajak.
„Ég er nú ekki búinn að vera lengi hérna
en maður er strax alvanur eftir fyrsta daginn,
og núna eru siglingar eiginlega orðnar
aðaláhugamál mitt.“
Gunnar sagði ennfremur að hann hefði ekki
fundið til hræðslu þegar hann fór fyrst út á
bát, því hann hefði verið búinn að horfa á svo
marga sigla að hann hefði séð að það væri
ekkert hættulegt. Og þá hefði hann bara skellt
sér út að sigla.
„Þetta er fyrsta siglinganámskeiðið sem ég
hef farið á, og mér finnst ofsalega gaman,“
sagði hún Margrét, en hún gaf sér engan tima
til þess að fara í land, heldur talaði bara úr
kajaknum.
Margrét sagðist ekki hafa kynnst siglingum
áður en hún kom í Þyt, en núna væru þær eitt
mesta áhugamál hennar, þótt hún væri bara á
daginn, en kæmi t.d. aldrei á keppnir eða á
kvöldin. En hún er aldeilis ekki aðgerðalaus
þegar hún er ekki að sigla, þá er hún að vinna
i garðinum heima hjá sér.
„Siglingar og hestar.“
Helgi Hinriksson var staddur þarna í
fjörunni og við tókum hann tali.
- Ertu búinn að vera lengi í þessu, Helgi?
„Nei, ég kom þegar þetta byrjaði núna í
sumar, þannig að ég er ekki búinn að vera
neitt sérstaklega lengi,“ sagði hann.
Helgi sagði að siglingar væru annað tveggja
áhugamála hans, en hitt eru hestar, og sagðist
hann eyða mestum tíma sinum í þetta tvennt.
- Hefurðu aldrei lent í neinu í hesta- og
siglingaíþróttunum?
„Jú, ég velti hérna fyrir utan. En það var
allt í lagi því mér var strax bjargað í land.
Danni kom og náði í mig.“ Helgi sagðist ekki
láta það neitt á sig fá þótt hann hefði fengið
þetta bað.
„Svona getur alltaf komið fyrir, og maður
veit að þeir eru alltaf að fylgjast með okkur,
strákamir, og þeir koma strax ef einhver
lendir í óhappi.“
„Koma og dýfa tánni í sjóinn...“
í framhaldi af þessu spurðum við Pétur
hvort það væri skilyrði að bömin væru synd
ef þau fara út að sigla.
„Það er nú ekki algert skilyrði að
krakkarnir héma á námskeiðinu séu alveg
synd. Þau em það reyndar flest, en það er
hinsvegar algert skilyrði að þau séu í
björgunarvestum. Það fer enginn útá bát án
vestis. En ef þau ætla í keppni þá er það
skilyrði að þau séu flugsynd, þá er komið út
i svo mikla hörku. Annars eru þau ekki búin
að vera hér lengi áður en þau em komin með
hálfgerða sundfit milli tánna.
Maður hefur séð margar stelpur og reyndar
stráka líka koma hérna og dýfa tánni eða
hendinni í sjóinn, og segjast ekki geta farið
út, en svo eftir örfáa daga vaða þau hér um
allt, og er alveg sama þótt þau hvolfi og þurfi
að svamla í sjónum."
Siglir sjálfur og horfi á aðra.
„Skólabróðir minn var alltat i þessu, og þá
datt mér i hug að koma og prófa hvemig það
væri að sigla, og þá fór ég hingað á
námskeiðið. Þetta er fyrsta siglinganámskeið-
ið sem ég fer á, en ég á ömgglega eftir að fara
á fleiri og halda áfram,“ sagði Hörður, einn
nemendanna á siglinganámskeiðinu. Hann
sagðist verja nær öllum tómstundum sínum i
siglingar, bæði í að sigla sjálfur og að horfa á
aðra. Hann hafði reyndar ekki mætt á nema
eina keppni, en var viss um að hann ætti eftir
að sjá fleiri.
„Geta í mesta lagi fengið
hressandi sjóbað“
Annar tveggja aðstoðarmanna við klúbbinn
er Sigurður Þór Baldvinsson og við báðum
hann að segja frá störfum sinum.
„Nú, ég fylgist með krökkunum, og ef þau
velta bátnum eða stranda þá emm við komnir
á staðinn að bjarga þeim. Annars valt einn
hérna fyrir utan í gær og hann synti bara í
land, en núna á námskeiðinu siðustu daga
hafa þau verið að velta mörgum sinnum á dag,
og alltaf að sigla upp á land. Það er ekki nema
von, þau em svo óvön, en það gerir yfirleitt
ekkert til þótt þau lendi i óhappi. Það mesta
sem þau geta lent í er hressandi sjóbað."
Sigurður er búinn að vera í klúbbnum i 4-5
ár, „pabbi skráði mig, en ég fylgdist nú varla
með þvi að hann væri að skrá mig í einhvern
klúbb. Það var ekki fyrr en í sumar, þegar ég
fékk vinnu í þessu að ég fór að taka eftir hvað
þessi klúbbur er að gera. Annars em siglingar
ekkert sérstakt áhugamál mitt,“ sagði Sigurð-
ur að lokum.
SVJ
AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF 3.101