Tíminn - 29.06.1982, Page 1

Tíminn - 29.06.1982, Page 1
Fjörutíu þúsund á barnaheimilinu! - bls. 12-13 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ! Þriðjudagur 29. júní 1982, 144. tbl. 66. árg. Álitsgerd um leiðir til að leysa vanda togaraútgerðarinnar: FISKVERDIÐ HÆKK- AD UKI 4 PRÓSENT? Kvikmynda- hornið: — á móti kaemi endurgreidsla á uppsöfnudum söluskatti til fiskvinnslunnar Heim í ■ Starfshópur sem kannað hefur hugsanlegar leiðir til lausnar á vanda togaraútgerðarinnar i landinu vegna aflabrests skilar hugmyndum sínum á fundi með Steingrími Hermannssyni, sjávarútvegsráðherra, árdegis i dag. Samkvæmt heimildum Timans mun hópurínn skila almennu áliti um stöðuna i dag og hugsanlegar leiðir til úrbóta, en hins vegar mun ekki lagt tii að ein ákveðin leið verði farín. Meðal þeirra atriða, sem nefnd munu í niðurstöðum starfshópsins sem hugsanleg leið til lausnar vanda togaraútgerðarinnar, er hækkun fisk- verðs um 4%, en á móti komi greiðsla á uppsöfnuðum söluskatti til fiskiðnað- arins svo ekki þurfi að koma til gengisfellingar vegna fiskverðshækk- unarinnar. Einnig er hraustleg gengis- felling nefnd sem eitt þeirra atriða sem til greina kæmu. Ríkisstjórninni verður gerð grein fyrir niðurstöðu starfshópsins á fundi sínum fyrir hádegi í dag, og hugmyndir þær sem þar fram koma ræddar. Væntanlega mun þar einnig koma til umræðu hver leiðanna teljist vænlegust til árangurs, en það vekur athygli að starfshópurinn mælir ekki með neinni sérstakri heldur reifar alla möguleika án þess að taka afstöðu til þeirra, Kás ■ „Sjónvarpinu hefur staðið til boða að fá nokkra leiki frá heimsmeistara- keppninni á Spáni beint um Skyggni. En það hefur aðeins sýnt tveimur þeirra áhuga, þ.e. opnunarleiknum og leiknum sem sýndur verður i kvöld,“ sagði Gústav Arnar, yfirverkfræðingui Pósts og síma í samtali við Timann i gær. „Ég þori nú ekki alveg að fara með hvaða leikir hafa staðið til boða. En þeir eru nokkuð margir. Suma þeirra er hægt að fá i lit, en aðra, þá sem eru sendir út á ameriska og franska kerfinu, er aðeins hægt að ná í svart-hvítu,“ sagði Gústav. Hafa forráðamenn Sjónvarpsins vís- vitandi gefið fólki rangar upplýsingar um möguleika á beinum útsendingum frá heimsmeistarakeppninni? „Mér er fullkunnugt um að við hefðum getað fengið fleiri leiki. En við stefndum bara á vissa, þ.e. upphafsleik- inn, úrslitaleikinn, sem við höfum sennilega verið of seinir að ná, og svo leikinn sem verður sýndur i kvöld,“ sagði Pétur Guðfinnsson, framkvæmda- stjóri Sjónvarpsins í samtali við Timann í gær. - Það hefur komið fram i fjölmiðlum að Sjónvarpið hefði ekki átt kost á fleiri leikjum en opnunarleiknum: „Pað eru bollaleggingar sem ekki voru Sjónvarpinu stóð til boða að fá marga leiki í beinni útsendingu: ■ Starfsmenn Múlastöðvar Pósts og sima hafa horft á marga leiki frá heimsmeistarakeppninni á Spáni í beinni útsendingu. Sjónvarpinu hefur staðið til boða að fá nokkra þeirra, en það hefur ekki sýnt því áhuga. Tímamynd Róbert VILDI EKKI FLEIRI! hafðar eftir mér. Mér er það fullkomlega ljóst að ef við hefðum farið af stað fyrir einu ári eða svo hefðum við getað fengið alla leikina." - Þið hafið sem sagt ekki reynt að fá fleirí leiki en þessa þrjá? „Nei. Eiginlega höfum við ekki gert það. Enda kostar hver leikur vissa upphæð.“ - Er ekki sýnt að auglýsingar borga kostnaðinn við útsendinguna og gott betur? „Hingað til hefur gengið mjög vel að ná inn auglýsingum vegna þessara leikja. En ekki er víst að þær séu fundið fé. Við stöndum engan veginn klárir á því hversu mikið af þeim færíst á milli daga.“ -Er þá leikurinn milli Belgíu og Póllands síðasti leikurinn sem við sjáum beint frá heimsmeistarakeppninni? „Já, ég reikna með því. Nema að við verðum svo heppnir að fá úrslitaleikinn inn á okkar kerfi,“ sagði Pétur. - Sjó heiðar- dalinn — bís. 23 Vill vera ein! - bls. 2 Allt um HlVI-leikina — bls. 15-17

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.