Tíminn - 02.07.1982, Side 1

Tíminn - 02.07.1982, Side 1
„Helgarpakkirm” fylgir Tímanum í dag TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTT ABLAÐ! Föstudagur 2. júlí 1982, 147. tbl. 66. árg. Síðumúla 15 -Pósthdlf 370Reykjavík-Ritstjórn86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86392 Ótrúleg ökuferð 2ja smábama á Suðureyri: HRÖPUÐU í BÍL UM 100 METRA OG IÍT í SJÓ! Ekki hægt annað en flokka þetta með kraftaverkum f* ■ „Það verður að teljast hreint kraftaverk að bömin skyldu sleppa lifandi frá þessunt ósköpum. Bðlinn fór beint fram af veginum, niður grasi gróinn hjallann, um fjörtíu metra, þaðan milli tveggja húsa sem aðeins eru um sjö metrar á milli. Svo fór hann út á Aðalgötuna og kiippti þar i sundur tvö umferðarskilti, sem stóðu á fjögurra tommu galvaniseruðum álfót- um, þaðan rann svo biliinn alla leið niður að sjó og var næstum ónýtur á eftir,“ sagði Gestur Kristinsson, hreppsstjóri á Suðureyri við Súganda- fjörð. Gestur segir frá sögulegu ferðalagi tveggja bama, drengs tveggja ára og stúlku fjögurra ára, sem átti sér stað siðla á þriðjudag. Voru þau skilin ein eftir í splunkunýjum Buick bil, meðan móðir þeirra brá sér inn í hús við Hjallaveg 31 á Suðureyri. Billinn er sjálfskiptur og munu börnin hafa fiktað eitthvað í sjálfskiptingunni með þeim afleiðingum að bíllinn rann af stað. Leiðin sem hann fór var frá húsinu við Hjallaveg 31, niður að húsi númer 29, yfir veginn og fram af rúmlega fjörtíu metra háum hjalla, milli tveggja húsa, sem 7 metrar skilja að. Þaðan fór bíllinn niður á Aðal- götu, yfír hana og út á Eyrargötu og þaðan niður í sjó. Bíllinn stöðvaðist í fjömborðinu og er hann talinn næstum ónýtur. En börnin tvö sluppu alveg ómeidd, nema hvað að aðeins blæddi úr vörum drengsins. „Vegalengdin sem bíllinnfór losar sennilega góða hundrað metra og fallið er a.m.k. fjörtiu metrar. Ferðin á honum var mikil og það er hreint ótrúlegt að hann skyldi ekki fara á toppinn, þegar hann fór fram af hjallanum. Þetta er allt svo ótrúlegt að ég held að ekki sé hægt annað en að flokka þetta með kraftaverkum," sagði Gestur. - Sjó. ■ Örín bendir á staðinn þar sem bifreiðin með smábömunum tveimur fór niður um 40 metra hjalla, síðan á milli húsanna fyrir neðan og út i sjó. „Kraftaverk“ segja sjónarvottar. ■ Harðsnúið lið á Dagsbrúnarfundi, þar sem fram kom mikil andstaða gegn nýgcrðum kjarasamningi, scm þó varsamþykktur með 35 atkvæða mumimimynd: eiu ; Hörkudeilur á Dagsbrúnarfundi um kjarasamningana: MUNURINN 35 ATKVÆM! ■ Harðar deilur urðu á fundi í Verkamannafélaginu Dagsbrún síð- degis í gær, þar sem nýgerður kjarasamningur var til umræðu. Samn- ingurinn var þó að lokum samþykktur með 35 atkvæða mun. Óánægjan beindist bæði gegn visi- töluskerðingunni, sem menn telja hættulegt fordæmi, en einnig töldu ýmsir sérhópar sig koma verr út úr samningunum en aðra. Þeirra á meðal eru lyftaramenn við höfnina, sem greinilega vildu lyfta launum sínum hærra. Gamall Dagsbrúnarkarl sagði eftir fundinn að það hafi verið gamla kempan Eðvarð Sigurðsson sem bjarg- aði þvi að samningarnir voru ekki felldir. - HEI. Sjá nánar bls. 3. Heimilis- tíminn: Dagur í lífi — bls. 10 Valdatafl í Washing- ton bls. 7 Aðal- leikkona „Varúlfs” — bls. 2 Gróður og garðar - bls. 9 HHBH| . : ' ... .

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.