Tíminn - 03.07.1982, Page 1
Kynnisferð um Rangárþing — bls. 10-11
■ Vanskil á orlofsfé til Póstgiróstof-
unnar fyrir siðasta orlofsár hafa aukist
um 230% frá árinu áður. Hefur
Póstgiróstofan i sumar þurft að greiða
launþegum út 10 millj. króna, sem
fyrirtæki hafa ekki staðið skil á til
Póstgiróstofunnar. Fyrst og fremst er
þar um að ræða 16 fyrirtæki - flest i
sjávarútvegi - sem allflest hafa ekki
staðið skil á neinu af orlofsfé síðasta
orlofsárs.
„Þessar kröfur eru tryggðar með
lögtaki í eignum viðkomandi aðila og
síðan er krafist nauðungaruppboðs á
þeim“, sagði Guðmundur Óli Guð-
mundsson, lögfræðingur Póstgíró-
stofunnar. Vanskil frá árinu áður sagði
hann flest hafa innheimst, nema þar sem
um gjaldþrotafyrirtæki er að ræða.
Nú i vor og sumar sagði Guðmundur
útsendar orlofsávísanir orðnar um 117
þúsund, en sumir fá tvær ávísanir.
Spurður hvort þær komist allar til skila -
þar sem þar eru sendar í almennum pósti
en ekki ábyrgð, svo og hvort allar væru
innleystar, sagði hann skilin ótrúlega
góð miðað við þennan mikla fjölda.
Litið sé um falsanir, þ.a. að aðrir en
eigendur hafi leyst ávísanirnar út.
En vist geti verið erfitt að koma sumu
af þessu til skila og viss hluti sem aldrei
komist til skila.
-HEI
Ökuferð barnanna
á Suðureyri:
■ lirikaleg ókufvrð I't'ggja smaharna a Suðureyri \ið Sugandafjorð endaði
i flæðarinalinu. eftir að hillinn liafði runnið frain af rumlega fjörtiu metra
liaum hjalla, milli treggja husa seni aðeins sjo metrár skilja að. þaðan yfir
Hær götur. I leiðinni tok hann með ser tvo umferðarskilti. seni hreinlega
klipptiist i suiulur. smi ntikill sar hraðinn a hílnum.
Kins og sagt \ar fra i liinanom i gær sliippu liörnin næstuin ónieidd fra
oskiipununi og \ar hal't eftir (iesti Kristinssuii. hreppsstjóra a Suðuresri. að
það gengi kraftaserki ntest. [josimnd: t’orkell lliego l>uðure\ri.
Blað 1 Tvö blöð í dag
Helgin 3.-4. júlí 1982, 148. tbl. 66. árg.
Greiðslur á orlofsfé:
VANSKIL AUK-
Bf UM 230%
■ Þeíta er ekki pottbrauð, heldur átta hundrað grömm af hassi, sem var lúmskulega smyglað inn í landið.
Vélabrögð hasssmyglara bitna á saklausum sólarlandaförum:
IÍTU HJÖN SMYGLA
FYRIR SIG HASSI
■ Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavik hefur nú upplýst all sérstætt
mál sem varðar innflutning á 800
grömmum af hassi.
Fimmtudaginn fyrir viku fann
hasshundurinn tæp 800 grömm af hassi
í ferðatösku á Keflavíkurflugvelli. í
framhaldi af því handtóku lögreglu-
menn fikniefnadeildar hjón nokkur,
43 ára gamlan mann og 47 ára gamla
konu, sem voru að koma frá Costa del
Sol.
Við yfirheyrslu bar maðurinn að
hafa tekið ferðatösku þessa til heim-
flutnings, fyrir tvö ungmenni sem
höfðu fengið dvöl sína á Spáni
framlengda um viku. Sitt í hvoru lagi,
gátu hjónin bent á ungmennin i
myndasafni lögreglunnar. í framhaldi
af því var hjónunum sleppt úr haldi og
þess freistað að bíða komu ungmenn-
anna.
I fyrrakvöld handtók fíkniefnadeild-
in pilt og stúlku, 21 árs gömul við
komu þeirra til Keflavikurflugvallar.
Voru þau færð til yfirheyrslu i
Reykjavík og við þær viðurkenndi
ungi maðurinn fíkniefnakaupin og
sendingu efnanna með framangreind-
um hætti. Bar hann, að efnin hefðu
verið keypt á götu í Malaga. Ung-
mennin eru nú bæði i haldi hjá
lögreglunni í Reykjavík, en ekki hefur
verið tekin ákvörðun um hvort farið
verði fram á gæsluvarðhald í málinu.
Bjarnþór Aðalsteinsson, fulltrúi
hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík, vildi vekja athygli á
hættunni sem því fylgir að taka pakka,
eða farangur til heimflutnings frá
útlöndum, frá fólki sem það ekki
gjörþekkir. - Sjó.