Fréttablaðið - 16.12.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
16. desember 2008 — 344. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
GUÐJÓN BERGMANN
Afmælisveislan alltaf
haldin á aðfangadag
• jólin • koma • bækur
Í MIÐJU BLAÐSINS
dagar til jóla
Opið til 22
8
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Aðfangadagur hefur alveg sér-
staka þýðingu fyrir Guðjón Berg-mann, jógakennara, rithöfund og
fyrirlesara með meiru, þar semafmæli hans ber ei iþ i
gripið til ýmissa ráða til að fyrir-
byggja að afmælið færi fyrir ofan
garð og neðan. „Þegar ég va lí ivar yfi l i
Hann viðurkennir þó að hafastundum sak ð þ
Jólagjafir á afmælinuAfmæli Guðjóns Bergmann ber upp á einum hátíðlegasta degi ársins, eða sjálfan aðfangadag. Hann á
sér ýmsar skemmtilegar minningar frá afmælisdeginum, meðal annars um kökuát langt fram eftir nóttu.
Guðjón Bergmann ásamt syni sínum, Daníel Loga Bergmann, 6 ára, sem er að sögn föðurins mikið jólabarn. Þess skal getið að
Guðjón gaf út sína tíundu bók í nóvember, Dropann, sem er jafnframt hans fyrsta barnabók en hún snýst um hringrás vatnsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Patti húsgögnlandsins mesta úrval af sófasettum
kr.239.900
verð nú
VERÐHRUN
TÓNLEIKAR með Garðari Cortes og píanóleikar-anum Robert Sund verða haldnir á Kjarvalsstöðum í hádeginu í dag. Yfirskrift tónleikanna er Hvít jól og hefj-
ast þeir klukkan 12.15 og standa yfir í um 40 mínútur.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
FÓLK Ljósmyndarinn Gunnar Þór
Nilsen bjargaði lífi ungs Dana
eftir alvarlegt bílslys á miðviku-
daginn í síðustu viku. Faðir
drengsins átti varla orð yfir snar-
ræði Gunnars og hringdi í hann
skömmu eftir slysið til að þakka
honum fyrir lífgjöf sonar síns.
Slysið átti sér stað rétt fyrir
utan Horsens á Jótlandi. Vörubíll
hafði reynt framúrakstur með
þeim afleiðingum að hann skall á
gamalli Toyotu Corolla. Ökumaður
bílsins slapp með smávægileg
meiðsl en farþeginn reyndist illa
slasaður. Vegfarendur sem dreif
að stóðu aðgerðalausir þegar
Gunnar bar að en hann náði meðal
annars að losa tvær tennur sem
fest höfðu í koki hins slasaða og
voru þess valdandi að hann var
næstum kafnaður. Að sögn Gunn-
ars var aðkoman ansi ljót. Hann
þakkar fyrstuhjálpar-námskeið-
um Rauða krossins fyrir sín skjótu
viðbrögð.
- fgg / sjá síðu 38
Gunnar Þór Nilsen sýndi snarræði á slysstað í Horsens í Danmörku:
Íslendingur bjargar lífi Dana
JÓLAGJÖFIN HENNAR
Golf, hestamennska og
dásamlegt heimadekur
Sérblaðið Jólagjöfin hennar
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
jólagjöfin hennarÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2008
Vex og dafnar
með hverjum
deginum
Íþróttafélagið Ægir í
Vestmannaeyjum
er 20 ára.
TÍMAMÓT 24
Ekkert bruðl
Aron Kristjáns-
son segir að
Haukar séu
með ábyrgan
rekstur.
ÍÞRÓTTIR 34
HÆGUR Í dag verður yfirleitt hæg
breytileg átt. Víða él, síst þó norðan
og norðaustan til. Frostlaust á
annesjum, annars frost 0-8 stig,
kaldast inn til landsins.
VEÐUR 4
-2 -3
-3
-1
-1
SVAVA JOHANSEN
Merkjavara
fyrir milljónir
Norðmenn og Rússar stórtækir í fatainnkaupum
FÓLK 38
Guðfaðirinn ber af
Kvikmyndastofnun
Bandaríkjanna velur
tíu bestu myndir
allra tíma í tíu
flokkum.
KVIKMYNDIR 32
Engar lausnir
Ríkisstjórnin hefur engar lausnir
og á að víkja strax, segir Sverrir
Jakobsson.
UMRÆÐAN 20
SÁTU EKKI AÐGERÐALAUS Þrjátíu til fjörutíu manns tóku í gær þátt í friðsamlegum mótmælum fyrir utan stjórnarráðið. Þátttak-
endur prjónuðu, saumuðu og lásu meðan á mótmælunum stóð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNMÁL Umsókn Svartfellinga að Evrópu-
sambandinu getur haft fordæmisgildi fyrir
Ísland, að sögn Ársæls Valfells, lektors við
Háskóla Íslands.
Svartfellingar sóttu í gær formlega um aðild
að Evrópusambandinu. Milo Djukanovic,
forsætisráðherra Svartfjallalands, greindi frá
þessu í París í gær eftir fund sem hann átti
með Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, en
Frakkar fara nú með forsæti í framkvæmda-
stjórn sambandsins.
Með upptöku evrunnar á árunum 1999, þegar
evran var fyrst notuð í bankaviðskiptum, til
2002, þegar seðlar og mynt var tekin í notkun
tóku Svartfellingar einhliða upp evru. Fram að
því höfðu þeir, á grundvelli gamalla tengsla,
notast við þýsk mörk.
Þá gerðu mörg lönd Evrópusambandsins
athugasemdir við að Svartfjallaland tæki upp
evruna en í gær fagnaði Ollie Rehn, sem stýrir
stækkunarmálum ESB, umsókninni. Sagðist
hann vera tilbúinn að hefja viðræðurnar eftir
að Evrópuráðið og forsætisnefnd ESB tækju
umsóknina til afgreiðslu.
„Mér finnst ekki ólíklegt að Svartfellingar
njóti skilnings hjá Evrópusambandinu vegna
þeirra sérstöku aðstæðna sem þar voru,“ segir
Bjarni Benediktsson, formaður utanríkismála-
nefndar. Hann segir Svartfellinga hafa tekið
upp þýskt mark í kjölfar efnahagslegs hruns í
landinu og síðan evruna þegar þýska markið
vék fyrir evrunni.
Hann segir upptöku Svartfellinga á evru
hafa átt sér stað hjá þjóð sem hafi þá ekki verið
í sambærilegum tengslum við Evrópusamband-
ið eins og Ísland sé með EES-samningnum.
Aðspurður segir Bjarni að í ljósi efnahags-
aðstæðna á Íslandi séu rök fyrir því að eins
verði tekið á málum Íslands. „En skilaboðin sem
við höfum fengið hafa bent til þess að menn hjá
Evrópusambandinu vilji ekki standa frammi
fyrir þessu álitaefni. Hvað þeir myndu gera, ef
þeir þyrftu að taka á því, er annað mál,“ segir
Bjarni.
Ársæll Valfells segir vandamálið liggja hjá
íslenskum embættismönnum sem spyrja hvort
það megi taka einhliða upp evru. „Einhliða
upptaka er eitthvað sem maður gerir, maður
spyr ekki að því,“ segir Ársæll.
Hann segir slíkt þó alltaf vera neyðarráð.
„Gjaldmiðilshrun á Íslandi er neyðarástand sem
gerir það að verkum að þetta er fullkomlega
fær leið,“ segir Ársæll.
- ovd
Umsókn Svartfellinga getur
skapað fordæmi fyrir Ísland
Svartfellingar sem á árunum 1999 til 2002 tóku einhliða upp evru sóttu í gær um aðild að Evrópusamband-
inu. Viðbrögð sambandsins nú eru talin geta haft fordæmisgildi taki Ísland einhliða upp evru.
LAOS Meira en þúsund nýrra
dýrategunda hafa fundist í
suðausturhluta Asíu síðasta
áratuginn. Meðal þess er röndótt
kanína og risakönguló sem er 30
sentimetrar á breiddina.
Samtals eru nýju tegundirnar
1.068 talsins og hafa fyrst og
fremst fundist við Mekong-ána,
á svæði sem nær yfir Kambódíu,
Laos, Búrma, Taíland og
Víetnam. Meðal þess sem
fundist hefur eru 519 nýjar
plöntur, 217 fisktegundir, 88
froskar, 88 köngulær, 46 eðlur og
22 slöngur. - ghs
Nýjar dýrategundir:
Röndótt
kanína í Asíu
EITURGRÆN Fagurgræn slanga
fannst í Asíu. NORDICPHOTOS/AFP