Fréttablaðið - 22.12.2008, Blaðsíða 24
22. desember 2008 MÁNUDAGUR
UMRÆÐAN
Haraldur Benedikts-
son skrifar um ESB
Glansmyndin var fögur enda vildu
allir vera með útrásar-
víkingunum í liði. Fáir
höfðu manndóm í sér til
að vara okkur við og við
vitum hvernig fór.
Bankahrunið virðist hafa
komið ráðamönnum
verulega á óvart og kannski trúðu
þeir því innst inni að ástandið gæti
aldrei orðið eins alvarlegt og raun
ber vitni.
Nú sjá margar fjölskyldur fram
á verulega fjárhagserfiðleika. Við-
brögð margra stjórnmálamanna í
þessari grafalvarlegu stöðu eru að
segja sig til sveitar suður í Brus-
sel. Nú fellur hver flokkurinn á
fætur öðrum á jörðina og kallar
eftir lausn undan því að bera
ábyrgð og stjórna landinu. Fólk
sem nú er að missa heimili sín
hefur hins vegar engan áhuga á
tæknilegum útfærslum og hraða
aðildarviðræðna við ESB. Það vill
að stjórnmálamenn komi með til-
lögur um það hvernig Íslendingar
eigi að þreyja þorrann og góuna.
Erfið staða bænda
Skuldastaða bænda er lík og hjá
þorra þjóðarinnar, mjög erfið.
Lausleg áætlun gerir ráð fyrir að
um 80 – 100 bú í landinu séu í þann
veginn að verða, eða séu þegar
orðin gjaldþrota. Stjórnvöld senda
bændum nú kaldar kveðjur með
því að ógilda ákvæði búvörusamn-
inga, sem eru grundvöllurinn að
rekstri þeirra margra, með því að
standa ekki við ákvæði um verð-
tryggingu. Rétt er að árétta að
búvörusamningarnir fela líka í sér
skyldu bænda til að framleiða
matvöru og nýta þá auðlind þjóð-
arinnar sem landið er.
Landbúnaðarráðherra
sýndi í haust áhuga á
lausn mála í viðræðum
við nýja ríkisbanka, nú
þarf að gera enn betur
svo ekki fari illa.
Bændur framleiða
bróðurpartinn af innlend-
um matvælum, ýmist
innan eða utan búvöru-
samninga. Bændur skapa
því verðmæti og fjölda
starfa við úrvinnslu
afurða, þeir halda byggð í sveitum
og mörgum þéttbýlisstöðum um
allt land. Margir þeirra vita ekki
nú hvernig þeir geta rekið bú sín,
því tæpast geta bændur velt hækk-
unarþörf sinni á almenning sem á
nóg með sig og verðbólga næstu
mánuðina getur riðið mörgum
bændum að fullu.
Vissulega er fjárlagagerð erfið
um þessar mundir en bændur hafa
sannarlega tekið á sig byrðar á
liðnum mánuðum. Afurðaverð
hefur lækkað um tugi prósenta að
raunvirði á undanförnum árum.
Áburður hækkaði um 80% síðasta
vor. Kostnaður bænda hefur því
hækkað um tugi prósenta sl. 12
mánuði og þeir hafa ekkert til að
skera niður í rekstri sínum.
Matvælaöryggi
Mikið hefur verið rætt um mat-
vælaöryggi þjóðarinnar að und-
anförnu. Á fyrstu dögum banka-
kreppunnar fengum við bændur
margar fyrirspurnir um hvað
væri til af mat í landinu. Ástand-
ið var í raun og veru þannig að
ekki var sjálfgefið að hér væri til
matur. Þá prísuðu margir sig
sæla fyrir að hér væri stundaður
kraftmikill landbúnaður. Rauna-
legt er að horfa síðan til þess hve
fáir skilja í raun hvað matvæla-
öryggi þýðir. Stjórnmálamenn
verða margir feimnir þegar það
ber á góma. Þeim hefur líka verið
sagt, af ofurfrjálshyggjumönn-
um, að matvælaöryggi væri orð
sem bændur hefðu búið til, til að
vernda kerfið sitt. Matvælaör-
yggi er hins vegar hornsteinn
hvers samfélags. Það samfélag,
sem er algjörlega háð öðrum um
mat, er ekki burðugt. Matvælaör-
yggi er tryggt með sterkum inn-
viðum þjóðar, bændum sem
kunna og geta framleitt matvæli
og fólki sem kann og getur breytt
afurðum þeirra í matvöru.
Búvörusamningarnir snúast ein-
mitt um þetta.
Þjóðin þarf allt annað á þessari
aðventu en innihaldslaust ein-
hliða tal um aðild að ESB. Það eru
brýnni mál sem stjórnmálamenn
þurfa að gefa fólki svör við og
þau verða vonandi rædd á auka-
flokksþingum og landsfundum
flokkanna eftir hátíðarnar. Hvað
tekur við eftir „frystingartíma-
bil“ lána og hvernig hyggjast
stjórnvöld mæta auknu atvinnu-
leysi í landinu? Bændur og heim-
ili landsins kalla á raunverulegar
lausnir en ekki vangaveltur um
hvernig, eða á hvaða hraða, á að
koma auðlindum þjóðarinnar
undir stjórn og yfirráð ESB.
Höfundur er formaður
Bændasamtaka Íslands.
Glansmyndin fölnar
ÍSLENSKUR IÐNAÐUR ÁRIÐ 2011
óskar eftir...
bhs.is
bifrost.is
fa.is
fb.is
fg.is
fiv.is
fnv.is
frae.is
fsh.is
fss.is
fsu.is
fva.is
hi.is
hr.is
idan.is
idnskolinn.is
klak.is
misa.is
mk.is
simey.is
tskoli.is
unak.is
va.is
vma.is
Samtök iðnaðarins - www.si.is
vel menntuðu fólki til starfa. Í boði eru
spennandi og vel launuð störf í áliðnaði,
byggingariðnaði, listiðnaði, líftækni, matvæla-
iðnaði, málm- og véltækni, prentiðnaði og
upplýsingatækni.
Iðn-, verk- eða tæknimenntun er skilyrði.
Reynsla af framleiðslustjórnun, gæðastjórnun
og markaðssetningu er kostur.
Íslenskir verkmenntaskólar, háskólar og
fræðslustofnanir bjóða metnaðarfullt nám
sem veitir aðgang að þessum störfum.
Mótum eigin framtíð – Núna er rétti tíminn!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
AGA Gasol®
Afgreiðsla ÍSAGA, Breiðhöfða 11,
er opin virka daga frá kl. 8 til 17.
Þú
s
ér
ð
in
ni
ha
ld
ið
!
IS
A
-3
4
2
.3
–
ÍD
E
A
g
rafísk h
ö
n
n
u
n
Alla daga frá kl. 10 til 22
Heimsend
ingarþjónu
sta
fyrir jólinM
undu að panta!
Þú færð allar nánari upplýsingar
um AGA Gasol hylkin,
þrýstiminnkara, slöngur og
sérlausnir hjá umboðsmönnum
okkar og í þjónustuveri
ÍSAGA í síma 577 3000.
HARALDUR
BENEDIKTSSON
Þjóðin þarf allt annað á þess-
ari aðventu en innihaldslaust
einhliða tal um aðild að ESB.
Það eru brýnni mál sem stjórn-
málamenn þurfa að gefa fólki
svör við og þau verða vonandi
rædd á aukaflokksþingum og
landsfundum flokkanna eftir
hátíðarnar.