Fréttablaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 26
24. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR2
„Hér hefur skapast sú hefð að
bæjarbúar fjölmenni í sund á
aðfangadag,“ segir Sveinn Ben-
ónýsson íþrótta- og tómstunda-
fulltrúi á Hvammstanga. „Þá fá
allir frítt í laugina og heitu pott-
ana og við bjóðum upp á hress-
ingu. Þannig hefur það verið frá
því að laugin var opnuð árið 1982
og það er fastur liður hjá mörgum
að koma í sund þennan dag. Hér
er heitt kaffi á könnunni og kon-
fekt og þetta er orðinn rótgróinn
siður sem hefur skapað ánægju
og stemningu í bæjarlífinu.“
Sveinn getur þess að frítt sé
fyrir börn að 17 ára aldri í sund á
Hvammstanga alla daga allt árið
um kring og einnig öryrkja og elli-
lífeyrisþega. En hversu marga
gesti skyldi hann fá að jafnaði í
laugina á aðfangadag?
„Ég er nú bara búinn að vera
eitt og hálft ár í þessu starfi en í
fyrra var opið hér frá klukkan tíu
til klukkan eitt á aðfangadag og
um hundrað manns mættu á þess-
um þremur tímum.“
Spurður hvort nærsveitungar
nýti sér laugina þennan dag svar-
ar hann: „Já það er dálítið um að
fólk komi úr sveitunum í kring.
Svo er margt fólk hér gestkom-
andi eða heima í jólafríi og mann-
margt í mörgum húsum í bænum.
Kannski ein sturta á heimilum og
allir þurfa að fara í bað. Þá er
þetta bara upplagt. En fyrst og
fremst fylgir þessu skemmtileg
stemning og jólabaðið er hlýleg
gjöf til bæjarbúa.“
gun@frettabladid.is
Bæjarbúar saman í bað
Meðan beðið er eftir að klukkurnar hringi inn hina helgu hátíð er upplagt að fara í sund og slá þannig
saman jólabaði, samveru og slökun. Líklega er það þó hvergi jafn vinsælt og á Hvammstanga.
HÖFUÐBORGARSTOFA hefur tekið
saman ýtarlegan lista um þá þjónustu og
afþreyingu sem í boði er yfir jól og áramót.
www.visitreykjavik.is undir Quick jumps.
Einstök stemning myndast í heitu pottunum á Hvammstanga á aðfangadag.
Gamlir og nýir tímar mætast í
rafrænum jólakortum Borgar-
skjalasafns Reykjavíkur.
Á vef Borgarskjalasafns Reykja-
víkur er hægt að senda ættingj-
um og vinum gömul íslensk jóla-
kort án endurgjalds.
Kortin, sem fólki er boðið að
senda rafrænt, eru flest frá fyrri
hluta 20. aldar. Boðið er upp á 36
mismunandi gerðir með hinum
ýmsu myndum og er hægt að
velja jólakveðju á yfir 25 tungu-
málum, auk eigin kveðju.
Kortin eru úr póstkortasafni
Sveinbjörns Jónssonar sem Krist-
ín S. Árnadóttir afhenti Borgar-
skjalasafninu vorið 2004. -ve
Gamaldags
netkveðjur
Þingvallabærinn og kirkjan prýða þetta
gamla jólakort.
MYND/BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR
Ef nýtt og flott bindi á einhvern tímann vel
við er það á aðfangadag. Svart, hvítt og
silfurlitað er allt klassískt en svo er líka allt
í lagi að prófa hressilegri liti.
Einu máli gildir hvort valið stendur á milli
hefðbundinna eða útúrfríkaðra binda því fátt
lífgar jafn mikið upp á jakkafötin. Þau gömlu
öðlast nýtt líf með einfaldri og ódýrri leið.
emilia@frettabladid.is
Fagnað með
fínheitum
Fyrir þá
sem þora
að vera
öðruvísi.
5.990
krónur.
Sautján.
Bleikt klikkar ekki.
5.990 krónur.
Sautján.
Svart
og
silfrað.
5.990 krón-
ur. Sautján.
Hvítt
og klass-
ískt. 8.990
krónur.
Kultur.
Brons
með
bleikum
dopp-
um.
9.990
krónur.
Kultur.
Konung-
legt með
rauðum
röndum.
9.990
krónur.
Kultur.
Kortin eru flest frá fyrri hluta 20. aldar.