Fréttablaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 54
38 24. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Hinum nítján ára Aroni
Einari Gunnarssyni hefur skotið
upp á stjörnuhimininn á þessu ári
þar sem hann hefur unnið sér fast
sæti í A-landsliðshópi Íslands og
vakið mikla athygli með félaginu
Coventry sem leikur í næstefstu
deild.
Aron Einar fékk fá tækifæri
með aðalliði AZ Alkmaar í Hol-
landi tímabilið 2007-2008 en var
þó kallaður inn í A-landsliðshóp
Ólafs Jóhannessonar landsliðs-
þjálfara fyrir æfingamót á Möltu í
byrjun febrúar á þessu ári og spil-
aði þá sinn fyrsta landsleik, gegn
Hvíta-Rússlandi. En hann hafði þá
leikið fyrir öll yngri landslið
Íslands.
„Ég var mjög sáttur að fá kallið
en Luka Kostic [þáverandi lands-
liðsþjálfari U-21 árs landsliði
Íslands] var búinn að segja mér að
ég gæti átt von á því fljótlega.
Þegar ég var kominn þarna inn þá
vildi ég náttúrulega gera allt til
þess að halda mér þar,“ segir
Aron Einar.
Valdi Coventry
„Ég var í samningarvið-
ræðum við AZ Alkmaar
en sá um leið að það
stefndi ekki í þá átt sem
ég var að vonast eftir og
því vildi ég skipta um
umhverfi. Það voru
nokkur félög sem
sýndu mér áhuga
eftir það og þar
á meðal voru
ensku úrvals-
deildarfélögin
Middlesbor-
ough, Hull og
Stoke ásamt
Coventry. Ég var
alveg ákveðinn að
lenda ekki í sama
pakka á Eng-
landi og í Hol-
landi og vildi
fara til félags
þar sem ég
myndi fá að
spila reglu-
lega í
byrjunar-
liði hjá
aðalliði í
stað þess
að spila með unglinga- og varalið-
um. Eftir að hafa ráðfært mig við
nokkra af íslensku strákunum sem
spila á Englandi, Grétar Rafn,
Hemma Hreiðars og Jóa Kalla, þá
valdi ég Coventry og ég sé alls
ekki eftir því. Ég meina, ég er
bara ungur pjakkur enn þá og er
að fá að spila fáránlega mikið
miðað við það.“
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Aron Einar til þessa leikið 22 af 24
leikjum Coventry í Coca-Cola
Championship deildinni, þar af 21
leik í byrjunarliðinu, auk þess að
spila tvo leiki með liðinu í enska
deildarbikarnum.
Coleman er toppeintak
Aron Einar hefur hlotið mikið hrós
frá Chris Coleman, knattspyrnu-
stjóra Coventry, fyrir spila-
mennsku sína og þeim félögum
kemur vel saman.
„Coleman er algjört toppeintak
og ég er mjög ánægður með hann
sem þjálfara og ber gríðarlega
virðingu fyrir honum. Hann hefur
mikla trú á mér og hrósar mér
mikið fyrir mitt framlag til liðsins
og það er gott að finna fyrir því,“
segir Akureyringurinn.
Coca-Cola Championship deild-
in er gríðarlega jöfn og Coventry
vermir sem stendur 14. sætið en
er þó aðeins átta stigum frá 6. sæt-
inu sem gefur þátttökurétt í
umspili um laust sæti í ensku
úrvalsdeildinni á næsta keppnis-
tímabili.
„Coleman er náttúrulega að
reyna að búa til nýtt lið og það
getur tekið tíma og menn sýna því
skilning. En markmiðið hjá okkur
strákunum í liðinu er að komast í
úrslitakeppnina sama þótt að það
sé ef til vill ekki yfirlýst markmið
félagsins,“ segir Aron Einar
ákveðinn.
Hamborgarhryggur og jólaöl
Coventry á leik á annan í jólum,
28. desember og 3. janúar og þess
á milli er æft stíft, meðal annars á
aðfangadag. Það breytir engu um
það að Aron Einar ætlar ekkert að
hafa hemil á sér þegar jólasteikin
verður borin á borð í faðmi fjöl-
skyldunnar.
„Mamma og pabbi, systir mín
og litli frændi minn eru úti hjá
mér og það verður að sjálfsögðu
boðið upp á hamborgarhrygg og
jólaöl á aðfangadag. Ég fæ bara
vatn í munninn við tilhugsunina
og ég mun ekkert spara mig í jóla-
steikinni, ég verð bara fjótur að
hlaupa hana af mér aftur,“ segir
Aron Einar á léttum nótum.
omar@frettabladid.is
Fljótur að hlaupa af mér jólasteikina
Aron Einar verður á sínum stað í eldlínunni með félaginu Coventry í næstefstu deild í þéttu æfinga- og
leikjaplani yfir hátíðarnar en það kemur ekki í veg fyrir að hann borði nægju sína af jólasteikinni.
HARÐJAXL
Aron Einar
hefur verið í lykil-
hlutverki hjá Coventry
á tímabilinu. NORDIC
ARON EINAR Lék sinn fyrsta A-landsleik í febrúar á árinu og hefur
verið fastamaður í landsliðshópi Ólafs Jóhannessonar síðan þá og
leikið níu landsleiki. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þórunn Helga Jónsdóttir missti af bikarúrslitaleiknum með KR árið
2007 þar sem hún var farin til náms í Bandaríkjunum. Hún bætti
heldur betur fyrir það í ár þegar hún varð bikarmeistari með KR 20.
september og svo aftur með brasilíska liðinu Santos 17.
desember.
„Ég er hundrað prósent á því að ég hafi bætt mig
þarna út enda lærði ég eitthvað nýtt nánast á
hverri æfingu,“ segir Þórunn sem lék í nýrri
stöðu aftarlega á miðjunni. Hún segir leik-
inn í Brasilíu vera allt öðruvísi en heima.
„Dómarinn dæmir á minnstu snertingu
og það er svolítið um leikaraskap. Það
mátti ekki koma við andstæðinginn,”
segir Þórunn. Hún segist líka hafa
lært heilmikið í portúgölsku. „Fyrsta
mánuðinn sagði ég ekki orð en síð-
ustu vikurnar var þetta aðeins farið að
koma og þá gat ég átt einföld samtöl,“
segir Þórunn sem eignaðist margar
góðar vinkonur í liðinu. Santos-liðið
vann alla átta leikina sem hún spilaði með markatölunni 23-4 og varð
bikarmeistari í fyrsta sinn. „Það var rosaleg stemning í kringum liðið.
Þar var mikið fjölmiðlafár fyrir síðasta leikinn og það kom mér á óvart
hvað fjölmiðlar höfðu mikinn áhuga á liðinu. Það var mikið um viðtöl
í blöðunum og síðustu leikirnir voru sýndir beint í sjónvarpinu,“ segir
Þórunn.
„Við æfðum tvisvar á dag, klukkan tíu á morgnana og klukkan þrjú
á daginn og lífið var þannig að það var eins og ég hafi verið atvinnu-
maður þennan tíma nema að ég fékk ekki peningana fyrir,” segir
Þórunn í léttum tón.
Þórunn er ekki búin að ákveða hvað tekur við. Hún
ætlar að byrja á því að mæta æfingar hjá KR en er
jafnframt mjög spennt fyrir að komast út í atvinnu-
mennsku. „Þetta líf heillar,” segir Þórunn sem
dreymir líka um að vera með á EM í Finnlandi.
„Það er alveg raunhæft að stefna á það að kom-
ast til Finnlands en ég þarf að gera ýmislegt til
þess að koma mér í þennan hóp. Ég held að
þessi ferð til Brasilíu hafi samt ekki skemmt
fyrir,“ sagði Þórunn að lokum.
ÞÓRUNN HELGA JÓNSDÓTTIR, LEIKMAÐUR KR OG SANTOS: TVÖFALDUR BIKARMEISTARI Á ÁRINU 2008
Það mátti ekki koma við andstæðinginn
> Guðjón kemur sterklega til greina
Forráðamenn C-deildarfélagsins Crewe á Englandi eru
enn ekki búnir að gera upp hug sinn um hver verði
ráðinn sem nýr knattspyrnustjóri félagsins. Guðjón
Þórðarson og John Ward, fyrrverandi stjóri Carlisle, eru
almennt taldir líklegastir til þess að berjast um starfið.
Dario Gradi, bráðabirgðastjóri Crewe sem stýrði félaginu
einnig frá árunum 1983-2007, reiknar með því að sinna
sínu hlutverki enn á annan í jólum. „Það eru 99,9
prósent líkur á því að ég verði enn
bráðabirgðastjóri þegar við mætum
Oldham á annan í jólum en það er
spurning með leikinn gegn Hartlepool
28. des,“ segir Gradi í samtali við BBC
Sports í gær.
FÓTBOLTI Arsenal fékk slæm
tíðindi í gær þegar í ljós kom að
fyrirliðinn Cesc Fabregas verður
frá vegna meiðsla, sem hann
hlaut eftir tæklingu landa síns
Xabi Alonso hjá Liverpool í leik
félaganna um helgina, í þrjá til
fjóra mánuði.
„Þetta eru slæm tíðindi og útlit
fyrir að hann verði ekki klár fyrr
en eftir þrjá til fjóra mánuði. Við
vitum samt að Cesc mun leggja
hart að sér til þess að verða
leikfær fyrir þann tíma,“ segir
Wenger á blaðamannafundi. - óþ
Meiðsli Fabregas slæm:
Fjórir mánuðir?
VONBRIGÐI Cesc Fabregas verður frá
vegna meiðsla í langan tíma hjá Arsenal.
NORDIC PHOTOS/AFP
KÖRFUBOLTI Boðið er upp á
sannkallaða körfuboltaveislu á
jóladag þegar erkifjendurnir Los
Angeles Lakers og Boston Celtics
mætast en leikurinn er í beinni
útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 22.
Bæði lið hafa leikið frábærlega
til þessa í vetur. - óþ.
Stórleikur Lakers og Celtics:
Jólaveisla NBA
STÓRLEIKUR Kobe Bryant og félagar í
Lakers mæta Celtics. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Spænska stórliðið Real
Madrid hélt blaðamannafund í
gær til þess að kynna nýjasta
leikmann sinn, Lassana Diarra,
sem skrifaði þá undir fjögurra og
hálfs árs samning.
Madridingar þurftu að greiða
Portsmouth 20 milljónir punda
fyrir hinn 23 ára gamla franska
miðjumann sem lék áður með Le
Havre, Chelsea og Arsenal. - óþ
Blaðamannafundur hjá Real:
Diarra kynntur
Á BERNABEAU Diarra lék listir sínar fyrir
blaðamenn í gær. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Fótboltaáhugamenn fá
nóg fyrir sinn snúð yfir jólin þar
sem enski boltinn mun rúlla
áfram.
Heil umferð fer fram á
annan í jólum og þar á meðal
eru nokkrir áhugaverðir leik-
ir. Spútniklið Aston
Villa mætir Arsenal
en leikmenn Villa
hafa komið
hressilega á
óvart í vetur og
eru af mörg-
um taldir hve
líklegastir til
að stíga fram
og brjóta hefð
„topp fjögur“
félaganna í lok
leiktíðar.
Þá mæta Englandsmeistarar
Manchester United til leiks að
nýju í ensku úrvalsdeildinni
eftir sigur í HM félagsliða í
japan og mæta Stoke, Liver-
pool leikur gegn Grétari Rafni
Steinssyni og félögum í Bolton
og Chelsea fær botnlið WBA í
heimsókn.
Annars er risið búið að
vera misjafnt á topplið-
unum upp á síðkastið eins
og sést þegar síðustu
fimm deildarleikirnir
eru skoðaðir (sjá töflu).
- óþ
Það verður ekki slegið slöku við í ensku úrvalsdeildinni yfir jólahátíðina:
Heil umferð á annan í jólum
HEITIR Gabriel Agbonlahor
og félagar í Aston Villa
hafa spilað vel í vetur.
NORDIC PHOTOS/AFP
ÁRANGUR TOPPLIÐANNA
-Stigum náð í síðustu fimm leikjum
Aston Villa (3. sæti) 11 af 15 stigum
Man. Utd (4. sæti) 11 af 15
Arsenal (5. sæti) 8 af 15
Liverpool (1. sæti) 7 af 15
Chelsea (2. sæti) 6 af 15
ENSKA ÚRVALSDELDIN
-Leikir á annan í jólum
Stoke-Man. Utd kl. 12.30 Stöð2Sport2
Chelsea-WBA kl. 13 Stöð2Sport3
Portsmouth-W. Ham kl. 13 Stöð2Sport4
Tottenham-Fulham kl. 13 Stöð2Sport5
Liverpool-Bolton kl. 14.45 Stöð2Sport2
M‘boro-Everton kl. 14.45 Stöð2Sport4
Man. City-Hull kl. 14.45 Stöð2Sport3
Sunderl.-B‘burn kl. 14.45 Stöð2Sport5
Wigan-Newcastle kl. 14.45 Stöð2Sport6
A. Villa-Arsenal kl. 17.15 Stöð2Sport2