Fréttablaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Landsprent
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
11.23 13.27 15.32
11.40 13.12 14.45
Í dag er miðvikudagurinn 24.
desember, 359. dagur ársins.
Það gerðist í gær, lesandi góður, meira að segja áður
en ég byrjaði að skrifa þennan
pistil svo í þínum sporum myndi
ég bara fara að lesa jólakort
eða eitthvað.
FYRSTU einkenni voru þau að
mér fannst ég vera Kristín
Birta frænka mín. Það er ekki
leiðum að líkjast en þó var þetta
heldur bagalegt því ég kann því
afar vel að vera karlkyns og
svo er hún Kristín Birta aðeins
sex ára. Ég fann fyrir verkjum
í hjartanu og andúð mín á Ars-
enal hvarf eins og hendi væri
veifað. Taldi ég þá víst að sá
eiginleiki væri fyrir borð bor-
inn. Þá mundi ég að þetta er
bara hin árlega umbreyting
sem jafnan á sér stað á þessum
árstíma. Ég er nefnilega jóla-
barn og því stækkar hjartað um
nokkur númer síðdegis á Þor-
láksmessudag og því fylgja
ýmsir kvillar sem hafa vissu-
lega bein áhrif á skrif mín;
afsakaðu það.
AF þessum sökum hef ég engan
áhuga á því að vera með gáfu-
legar athugasemdir um það
sem betur má fara í þjóðfélag-
inu. Ég hef heldur ekki skoðun
á því í augnablikinu hver hefur
staðið sig vel og hver illa í pólit-
íkinni að undanförnu og í raun
er mér fjarri einmitt núna að
vera að setja út á hlutina.
Besservisarar og kverúlantar
hljóma eins og trúðar og nú skil
ég af hverju Kristín Birta hlær
svo mikið að þessu fólki þegar
hún sér það á skjánum. Nú lang-
ar mig bara til að fara út að
leika og láta ekki brösugang við
Austurvöll né annars staðar
hafa áhrif á mína brjáluðu kæti.
Það eina sem spillir gleði minni
að nokkru leyti er að pakkinn
sem ég fæ frá Zemb frænda er
mjúkur eins og í fyrra. Jæja en
það er svo sem ekkert stórmál.
ÉG hef því ekkert voðalega
mikið að segja í svona pistli,
eins og ástandið á mér er í svip-
inn. Annað en að óska þess að
þetta verði alveg obboslega
skemmtileg jól hjá þér og að þú
fáir marga harða pakka. Svo
óska ég þess að nýja árið verði
alveg rosa, rosa, rosalega
skemmtilegt.
Umbreytingin
mikla
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Starfsfólk Norðuráls