Fréttablaðið - 27.12.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
33,4%
70,7%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Fréttablaðið er með 112%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft... ... alla daga
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í ágúst - október 2008.
Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
27. desember 2008 — 353. tölublað — 8. árgangur
16&21
Erlendar fréttamyndir ársins
STYRJALDIR, KOSN-
INGAR OG KREPPA
ENDALAUST
SUÐ ER BEST
Tónlistarsérfræðing-
ar velja bestu plötur
ársins 2008.
UMFJÖLLUN 12
MAMMA MIA! ÞAÐ ERU ALLIR Á FACEBOOK!
Hvaða æði heltóku
Íslendinga á árinu ?
14
VÍÐAST MILT Í dag verður sunn-
an strekkingur vestan til annars
hægari. Lítilsháttar skúrir á víð og
dreif á landinu sunnan- og vest-
anverðu annars þurrt og yfirleitt
bjartviðri. Hiti 3-9 stig, svalast
eystra.
VEÐUR 4
6 6
3
77
Á HLAUPUM Þúsundir lögðu leið sína í
World Class í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HREYFING „Þetta skiptir þúsundum
allavega. Við vorum að fá alveg
ótrúlega mikinn fjölda,“ segir
Sigurður Leifsson, einn eigenda
World Class.
Mikill fjöldi var í World Class í
gær, annan dag jóla. Sigurður
telur ástæðuna ekki vera sam-
viskubitið eftir jólaátið heldur
hreyfiþörfina hjá fólki enda
safnast upp mikið slen af því að
liggja upp í sófa allan daginn á
jólunum. Hann segir gærdaginn
jafnvel geta slegið met hjá World
Class.
„Við slógum met í nóvember og
þá voru hér um 5.000 manns á dag.
Þetta var ótrúlegur fjöldi í dag,“
segir Sigurður en endanlegar tölur
liggja ekki fyrir fyrr en í dag. - vsp
Margir í World Class í gær:
Þúsundir hlupu
af sér jólaslenið
VINNUMARKAÐUR Endurskoða þarf
kjarasamninga á almennum
markaði fyrir 15. febrúar en sú
vinna er í uppnámi. Forsvars-
menn ASÍ telja að ríkisstjórnin
sýni ekki vilja til samstarfs og
eru ósáttir við fjárlögin. Boltinn
sé nú hjá stjórnvöldum.
Miðstjórn ASÍ ályktaði um
fjárlagafrumvarpið 17. desem-
ber og setti fram þá þætti sem
hún telur nauðsynlegt að verði
breytingar á. Síðan hefur lítið
þokast. „Við vildum sjá tekið til-
lit til þessa í fjárlagafrumvarp-
inu en því miður var svo ekki.
Við erum ósátt við ýmislegt sem
þar er að finna,“ segir Gylfi Arn-
björnsson, forseti ASÍ. Hann
segir talsverða vinnu eftir bara
til að finna sameiginlegan grund-
völl til þess að hefja endurskoð-
unina.
Meðal þess sem miðstjórnin
ályktaði um var að dregið verði
úr niðurskurði vegna elli- og
örorkulífeyris, að skattkerfið
verði nýtt til tekjujöfnunar, að
sett verði lög um greiðsluaðlög-
un og að stofnaður verði Bjarg-
ráðasjóður heimilanna. Þá verði
settur upp starfshópur með full-
trúum byggingarmanna til að
forgangsraða mannaflsfrekum
framkvæmdum og þess er kraf-
ist að ráðherrar og þingmenn
njóti sömu lífeyrisréttinda og
aðrir opinberir starfsmenn.
Gylfi segir langt frá því að
kröfum ASÍ hafi verið mætt. „Við
vonuðumst til að ákveðnir þættir
litu dagsins ljós í fjárlagafrum-
varpinu en svo var ekki. Stjórn-
völd verða að sýna að þau hafi
áhuga á þessu, en sá áhugi hefur
ekki birst með ákveðnum hætti.
Hann hefur verið meira í orði en
á borði. Við viljum ekki auka á
fjárlagahallann, heldur viljum
við koma að forgangsröðuninni.“
Aðspurður hvort eiga megi von
á vinnudeilum segir Gylfi of
snemmt að segja til um það. „Það
er deila í gangi og þarf aðkomu
stjórnvalda til að leysa hana.
Hvort það endar í vinnudeilu er
annað mál.“ - kóp
Endurskoðun kjara-
samninga í uppnámi
Endurskoðun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði er í uppnámi. Á að
vera lokið fyrir 15. febrúar. ASÍ telur ríkisstjórnina ekki sýna vinnunni áhuga
og er óánægt með fjárlagafrumvarpið. Vill breytingar á eftirlaunafrumvarpinu.
SAMFÉLAGSMÁL Gert er ráð fyrir um
400 milljón króna niðurskurði til
þjóðkirkjunnar á næsta ári. Kirkju-
ráð hefur sent sóknum landsins
bréf þar sem sagt er frá yfirvofandi
niðurskurði á sóknargjöldum sem
þýðir að þær hafi úr minna fjár-
magni að moða og eru þær beðnar
um að taka tillit til þess.
„Við munum reyna að halda uppi
þjónustustigi við fólk eins og kostur
er,“ segir Karl Sigurbjörnsson bisk-
up en segist jafnframt óttast að
fækka verði starfsfólki. Hann segir
það vissulega vera erfitt að takast á
við þennan niðurskurð á sama tíma
og fólk leiti í auknum mæli í þjón-
ustu kirkjunnar. Ennfremur er gert
ráð fyrir að laun presta lækki um
7,5 prósent.
Ekki verður farið í neinar nýfram-
kvæmdir á næsta ári og öðrum
framkvæmdum verður slegið á
frest. Þó er gert ráð fyrir því að
framkvæmdum við Hallgríms-
kirkju verði haldið áfram en öðru
máli gegnir um Lindakirkju en
kirkjuskip hennar er enn óklárað.
„Það þýðir ekkert að gráta yfir því,“
segir Guðmundur Karl Brynjars-
son sóknarprestur þar. Haldin var
guðsþjónusta í kirkjuskipinu yfir
hátíðirnar við góðan orðstír. - jse
Biskup uggandi vegna 400 milljóna króna niðurskurðar hjá þjóðkirkjunni:
Meira álag en minna fjármagn
Jóla-Keane klikkar ekki
Liverpool er áfram í
toppsæti ensku
úrvalsdeildarinnar.
ÍÞROTTIR 30
VEÐRIÐ Í DAG
VIÐRAR VEL TIL LOFTFERÐA Veðurblíða vetrarkonungsins ríkti þegar flugvél bjó sig til lendingar á Reykjavíkurflugvelli við Skerja-
fjörðinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BANDARÍKIN, AP Hundur í Utah í
Bandaríkjunum var staðinn að
verki við þjófnað á dögunum.
Hundurinn labbaði inn í
verslunina og fór beint að
ganginum þar sem gæludýravör-
ur var að finna. Þar fann hann
bein og hóf að naga það. Eftirlits-
myndavélar náðu hundinum á
mynd og verslunarstjóri búðar-
innar fór á fund hans. Þrátt fyrir
að hundinum væri skipað að
sleppa beininu gerði hann það
ekki, heldur hljóp út úr verslun-
inni og hefur ekki fundist. - þeb
Óvenjulegur þjófur í Utah:
Þjófóttur hundur