Fréttablaðið - 27.12.2008, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 27. desember 2008
Verð kr. 1.760.000
Tilboð kr. 1.450.000
Fleetwood Santa Fe
Verð kr. 1.280.000
Tilboð kr. 980.000
Palomino Yearling 102
2005
2007
Verð kr. 1.485.000
Tilboð kr. 1.250.000
Verð kr. 1.550.000
Tilboð kr. 1.300.000
Palomino Yearling 103
Palomino Yearling 102
2007
2007
Verð kr. 550.000
Tilboð kr. 400.000
Viking 1706 Epic
2000Verð kr. 500.000
Tilboð kr. 350.000
Palomino colt
1999
Eyjarslóð 5 101 Reykjavík
S: 511 2200 www.seglagerdin.is
TILBOÐ GILDA EFTIRFARANDI DAGA:
LAUGARDAG, 27. DES. 11.00 - 16.00
MÁNUDAG, 29. DES. 10.00 - 18.00
ÞRIÐJUDAG, 30. DES. 10.00 - 18.00
3 stk.
SELJUM SÍÐUSTU 2008 VAGNANA
Á GAMLA GENGINU
Verð kr. 1.490.000
Tilboð kr. 1.290.000
Palomino colt
2 stk.
Verð kr. 2.250.000
Tilboð kr. 1.990.000
Verð kr. 3.300.000
Tilboð kr. 2.850.000
TEC Tour 580TKM
2007
2008
2008
Fleiri tilboð á www.seglagerdin.is
Chalet A-hýsi
KÖRFUBOLTI Los Angeles Lakers
fékk smá hefnd fyrir tapið í loka-
úrslitunum síðasta sumar þegar
liðið endaði 19 leikja sigurgöngu
Boston Celtics með því að vinna
þá 92-83 í Los Angeles á jóladag.
Ekkert NBA-lið í sögunni hafði
náð að vinna 27 af fyrstu 29 leikj-
um sínum eins og Boston sem var
einnig búið að setja félagsmet í
sigurleikjum í röð.
Kobe Bryant átti mjög góðan
leik hjá Lakers þar sem hann var
með 27 stig og 9 fráköst en hann
sýndi einnig mikil þroskamerki í
lokin þegar hann gaf þrjár stoð-
sendingar á Pau Gasol á 1 og hálfri
mínútu þegar Lakers gerði út um
leikinn. Gasol skoraði 9 af 20 stig-
um sínum á síðustu fimm mínút-
unum og hrökk í gang á hárréttum
tíma fyrir heimamenn.
„Þetta sýnir að við getum unnið
alla og vonandi getum við byggt
ofan á þessu,“ sagði Gasol eftir
leik og þjálfarinn var líka ánægð-
ur með sinn mann.
„Ég er mjög ánægður með Pau
og hann tók af skarið í fjórða leik-
hlutanum þegar við þurftum á
honum að halda,“ sagði Phil Jack-
son, þjálfari Lakers.
Þetta var sögulegur sigur fyrir
Jackson, því hann var númer 1.000
á ferlinum. Jackson varð þar með
fljótastur til að ná svo mörgum
sigrum en hann gerði það í sínum
1.423. leik og gerði þar betur en
Pat Riley sem náði því í 1.434.
leikjum á sínum tíma. „Þetta er
stórkostlegt afrek og ég lofa því
að ég mun aldrei ná þessari tölu
því ég verð ekki í þessu svo lengi,“
sagði Doc Rivers, þjálfari Boston,
sem var ekki ánægður með hvern-
ig hans menn spiluðu í lokin.
„Þeir eiga allt hrós skilið. Við
verðum bara að klára leikina
betur,“ sagði Boston-maðurinn
Paul Pierce sem skoraði 20 stig en
ekkert þeirra í 4. leikhlutanum.
Lakers vann síðustu 3 mínútur
leiksins 11-2. Kevin Garnett var
stigahæstur í Boston-liðinu með
22 stig auk 9 frákasta og þá átti
Rajon Rondo 12 stoðsendingar.
- óój
Lakers-menn stöðvuðu 19 leikja sigurgöngu Boston:
Kobe Bryant treysti
Pau Gasol í lokin
AÐALMAÐURINN Í LOKIN Spánverjinn
Pau Gasol hjá Lakers. NORDICPHOTOS/AFP