Tíminn - 07.07.1982, Side 1

Tíminn - 07.07.1982, Side 1
WMHfffTHBSTfBffTTf fylgja bladinu í dag TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTT ABLAÐ! Miðvikudagur 7. júií 1982, 151. tbl. 66. árg. í það heilaga bls* 2 Flat- fótur - bls. 23 Á hesta- slóðum — bls. 22 Sjónvarpið ver einkarétt sinn á útsendingu HM-leikja hérlendis: FÉKK LÖGBANN SETT Á FYRIRTÆKW VIDEÓSON „Helvíti hart, þegar sjónvarpið stendur sig ekki í stykkinu’% segir forsvarsmadur Vídeóson ■ Fógetarétturinn í Reykjavík hefur sett lögbann á sýningar fyrirtækisins Videóson á leikjum frá heimsmeistara- keppninni á Spáni. Lögbannið var sett að kröfu rikisútvarpsins, sem telur sig eiga einkarétt til sýninga frá heims- meistarakeppninni hér á landi. Úr- skurðurinn var kveðinn upp um kvöldmatarleytið i gær af Þorsteini Thorarensen, borgarfógeta. „Það verða ekki fleiri leikir sýndir á okkar kerfi,“ sagði Jóhannes Reykdal, forsvarsmaður Videóson, í samtali við Tímann i gær. „Mér finnst óneitanlega helviti hart, að Sjónvarpið, sem ekki stóð í stykkinu varðandi útsendingar frá heimsmeistarakeppninni, skuli fara fram á þetta lögbann. Það kemur úr hörðustu átt því að það eina sem fyrir okkur vakti , var að gefa fólki kost á að fylgjast með þessu vinsæla sjónvarpsefni," sagði Jóhannes. „C.B.U. hefur selt Rikisútvarpinu sýningarréttinn á öllum leikjum frá heimsmeistarakeppninni á Spáni. Sjónvarpið borgaði fyrir hann 450 þúsund krónur og þvi var farið fram á þetta lögbann,“ sagði Bergur Guðna- son, lögmaður Ríkisútvarpsins í lög- bannsmálinu. „Þegar ég fór þess á leit, féllust Vídeósonmenn á að sýna ekki fleiri leiki frá keppninni. En ég taldi ekki nægilega tryggt, að loforðið yrði haldið. Þess vegna varð að fara fram á lögbann. Þvi brot á lögbanninu er alvarlegt mál sem kallar yfir sig refsiábyrgð," sagði Bergur. Ennfremur sagði Bergur, að innan viku yrði Ríkisútvarpið að höfða staðfestingarmál, þar sem skotið yrði lagalegum rökum undir lögbanns- beiðnina. Ef beiðnin reynist ekki á rökum reist, fellur lögbannið niður og verður þá Rikisútvarpið að greiða allan kostnað sem af því hlýst til Videóson. - Sjó. ' ■ Það er skemmtilegt að sltreppa í sund i sól og bliðu, eins og sést á þessari dömu á myndinni. Og sund er lika heilsusamlegt sport sem sjálfsagt er að stunda, þótt ekki sé trimmdagur. Timamynd: EUa „HUGSANUEGA T1L GODS” — segir Ólafur Jóhannesson, utanrfkisráðherra, um efnahagssamvinnusamninginn við Sovétríkin ■ „Kjarni málsins er sá að ég tel hugsanlegt að samningurinn verði til góðs fyrir ísland. Þeim möguleika megum við aldrei visa á bug ókönnuð- um. f þessum samningi tel ég engar hættur felast, því í honum eru ekki ■HBBn neinar skuldbindingar. Hér er að finna viljayfirlýsingar en nánari framkvæmd fer svo alveg eftir þeim samningum sem kunna að verða gerðir með skirskotun til þessa samnings. Ég verð því að skora á þá sem telja einhver ákvæðanna hættuleg að benda á þau. Ég get ekki komið auga á þau.“ Þetta sagði Ólafur Jóhannesson, utanrikisráðherra, í samtali við Tímann i gær, þegar hann var spurður álits á nýundirrituðum efnahagssam- vinnusamningi Isiands og Sovétríkj- anna, sem skiptar skoðanir hafa verið Sjá nánar viðtal bls. 5

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.