Tíminn - 08.07.1982, Síða 1
Minkaveidar við Eilidaárnar - bis. 10-11
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Fimmtudagur 8. júlí 1982,
152. tbl. 66. árg.
SKREIÐARMARKAÐURINN
í NfGERÍU AD OPNAST I
Kvikmynda
hornið:
„Við höfum nú fengið upplýsingar
um að einhver leyfi hafi þegar verið
gefin út tii innflutnings á skreið tii
Nígeriu og þar með má segja að
nokkur vonarglæta hafi kviknað um
batnandi horfúr, þvi þótt leyfln séu
aðeins fyrir litlu magni, þá gerir margt
smátt eitt stórt,“ sagði Magnús
Friðgeirsson, sölustjóri Sjávarafurða-
deildar SIS i viðtali við Timann í gær.
„Þar sem Nígeriumenn hafa byrjað
á þessu, þá vona ég að á þessu verði
nokkurt áframhald,“ sagði Magnús
enn, „því meginpunkturinn er sá að
þetta er þó hafið.“
Magnús sagði að viðræðuaðilar
íslands hefðu nú með höndum nokkur
leyfí, sem ekki er búið að koma í lóg,
en ekki er enn ákveðið hverjir hljóta
þau, enda er þetta svo nýtilkomið að
eftir er að afla gjaldeyrisyfirfærslu-
heimildar, en til skreiðarinnflutnings í
Nígeriu héðan þarf bæði innflutnings-
heimildina og gjaldeyrisyfirfærslu-
heimild. Taldi Magnús að þessi mál
muni skýrast nú í mánuðinum.
Magnús sagði að mikil hjálp hefði
verið er afskipun fékkst í lok apríl sl.
en þá mátti heita að sjávarafurðadeild-
in hefði komið frá sér öllum þeim
birgðum af skreið og hertum hausum
sem tilbúið var til afskipunar. Nokkrir
landfræðilegir örðugleikar sköpuðust
þó vegna þess hve brátt þetta bar að
þá. Sagði Magnús að birgðir væru nú
nokkrar, en á engan hátt óeðlilega
miklar. Væri enda oft erfitt að segja
til um hve. birgðir af skreið eru miklar,
þvi skreiðarbirgðir telst allt það sem á
hjöllum er, sumt hálfverkað, sem í
raun er hæpið að telja til birgða af
þeim sökum.
Nígeriumenn lentu í efnahagslegum
áföllum á fyrra ári, sem ollu því að þeir
gripu til all harðra aðgerða með
lokun á viðskiptum. Þeir virðast hins
vegar hafa náð fótfestu að nýju nú og
eru farnir að hleypa gjaldeyri úr landi
að nýju til innkaupa á vörum. „Þetta
er því vísir að nýrri byrjun,“ sagði
Magnús, „því upp á síðkastið hefur
oliuframleiðsla Nigeríu aukist mynd-
arlega sem gefur ástæðu til að vona að
efnahagur landsins hressist með haust-
inu.“
-AM
Allt um
....................................................... • J
r
■ ■
Á Þingmannahálsi Hægt og hægt mjakast hestalestin á undan hinum einmana reiðmönnum þar sem þeir riða einn eyðilegasta hluta Kjalvegar,
Þingmannaháls á Eyvindarstaðarheiði. Myndin er tekin í fyrrinótt og var ferðinni heitið á Landsmót hestamanna að Vindheimamelum i Skagafirði. Þessar björtu
sumamætur kynnast margir íslendingar töfrafegurð öræfanna, þegar þeir riða á landsmótið. Jafnframt deila þeir bluta af kjörom forfeðra sinna í landinu allt frá
landnámi, sem tókust á við „tröllum helga fjaUabyggð“, án þess að geta valið sér tima eða veður. Ljósm.: Guðlaugur Tryggvi Karlsson
Ákveðid að sýna HM-úrslitaleikinn í svart-hvítu:
TEKJUR RUV AFIEIKNUM
UM 400 ÞÚSUND KRÖNUR!
Parton
- bls. 2
■ Sjónvarpið hefur nú þegar selt
þrjátiu og fimm auglýsingamínútur
fyrir útsendingu á úrslitaleik heims-
meistarakeppninnar í knattspyrou sem
sendur verður beint frá Spáni á
sunnudaginn kemur. Mun láta nærri
að þetta gefi sjónvarpinu 400 þúsund
krónur í tekjur, en eins og kunnugt er
greiðir það 450 þúsund krónur fyrir
sýningarréttinn á nær öUum leikjun-
um.
„Leikurinn verður sendur út á
SECAM kerfinu svo það er orðið
alveg ljóst að við fáum hann ekki í lit“,
sagði Bjarni Felixson, iþróttafrétta-
maður sjónvarpsins, í samtali við
Tímann i gær.
Bjarni kvaðst búast við að leikur
ítaliu og Brasiliu yrði sendur út á
undan sjálfum úrslitaleiknum, en að
margra dómi var hann skemmtilegasti
leikurinn i milliriðlum keppninnar.
Fótholti á
hafísnum
- bls. 4
WWESSSBmBMmamS&BSBaSSOaBBBmBKtSeSKSmKSK