Tíminn - 10.07.1982, Side 1

Tíminn - 10.07.1982, Side 1
TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ! Laugardagur 10. júlí 1982, 154. tbl. 66. árg. Strokufanginn af Litla- Hrauni enn ófundinn: VILDIFREST AAFPUNUN ■ Fanginn frá Litla-Hrauni, sem strauk af Borgarsjúkrahúsinu í fyrra- dag, hefur enn ekki fundist þrátt fyrir leit lögreglunnar i Reykjavik. Fanginn sem er þrítugur síbrota- maður á eftir að afplána tæpt ár af fangelsisdómi sínum. Hafði hann nýlega sótt um frestun á úttekt dómsins en fékk ekki. Að sögn Þorsteins Jónssonar, deild- arstjóra i dómsmálaráðuneytinu eru viðurlög við stroki fanga innanhúsmál fangelsanna. Oftast eru þeir settir i einangrun i einhvern tíma eftir að þeir koma í leitiirnar. Þess má geta að þetta er i þriðja skiptið á um hálfu ári sem fangi frá Litla-Hrauni strýkur af sjúkrahúsi í Reykjavík. - Sjó. Kvikmynda- homid: Stones tvítugir ■ Hlutverk stóru systur er stundum ekki alveg létt. Oft er það hún sem verður að taka að sér heimilisstörfin, ef eitthvað ber upp á og þegar eitthvað fer úrskeiðis hjá þeim minni er ætlast til að hún sé huggarinn, sem alltaf er til taks. (Tímamynd EUa). — bls. 2 Vatnið góda - bls. 6-7 Skólatannlæknar hjá borginni gera það gott: EINN FÉKK 76 ÞÚSUND FYRIR 13 DAGA VINNU — Fjármálastjóri borgarinnar vill segja samningum við þá upp ■ Samkvæmt yfirliti um greiðslur til skóiatannlækna sem starfa hjá Reykjavíkurborg fyrir maimánuð sl. kemur fram að einn tannlæknirinn hefur fengið rúmar 76 þúsund krónur i greiðslu fyrir þrettán vinnudaga. Er þessi upphæð í samræmi við aðrar greiðslur til hans á siðustu mánuðum. Daglaun þessa daglæknis er þvi nálægt sex þúsund krónum, vel að merkja í maimánuði. Þessar upplýsingar koma fram í bréfi sem Björn Friðfinnsson, fjár- málastjóri Reykjavíkurborgar, hefur sent borgarráði. Segir í því að ekkert bendi til annars, en að greiðslurnar séu i samræmi við vinnuframlag fyrrnefnds tannlæknis og umsamda þóknun samkvæmt samningi borgarsjóðs við Tannlækna- félag íslands. „Þetta tilvik undirstrikar nauð- synina á því að taka samningana við tannlækna til gagngerðrar endurskoð- unar. Ég legg til við borgarráð að samningnum verði sagt upp með fjögurra mánaða fyrirvara miðað við næstu mánaðamót. Er þá einkum haft í huga, að breytt verði ákvæðum 4 gr. samningsins, sem segir, að fyrir skólatannlækningar skulu greitt eftir „launahluta gjaldskrár Tannlækna- félags íslands, sbr. 4 gr. samnings milli Tannlæknafélags íslands og Trygg- ingastofnunar ríkisins." Að mínu mati er ófært að binda borgarsjóð til þess að greiða athugasemdalaust eftir slikum samningi, sem hann á ekki aðild að“, segir Björn Friðfinnsson. - Kás. warrén Oates látinn r /—i Barna- efni - bls. 14 Landsmót hestamanna: VÍSADFRÁ KEPPNI VEGNA DRYKKJULÁTA! Frá Sigurjóni Valdimarssyni blaða- manni Tímans á Vindheimamelum: ■ Tveimur af reyndustu og sigur- sælustu hestamönnum á Evrópumót- um var visað frá úrslitakeppninni á svokölluðu tilraunamóti Evrópu- keppni hér á landsmótinu i fyrrakvöld vegna ölvunar. í þessari keppni eru fulltrúar frá 10 þjóðum, tveir frá hverri. Þegar unglingakeppnin stóð sem hæst hófu Þjóðverjinn Walter Feldman og Reynr ir Aðalsteinsson ólæti og var þeim báðum visað frá keppni af þeim sökum. Nýmæli er i löggæslu hér á mótinu. Tveir lögreglumenn riða um svæðið á hestum en það eru þeir Sigurður Hansen og Kristján Óli Jónsson. Björn Jónsson sem stjórnar löggæsl- unni hér sagði að vel væri við hæfi að taka þetta forna samgöngutæki lands- manna í þjónustu lögreglunnar á þessu móti. Hann sagði ennfremur að litið hefði borið á ölvun á mótinu ennþá en farið væri að bera á því að fólk væri ekki nægilega vel útbúið til að mæta hryssingslegu tiðarfari. - FRI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.