Tíminn - 20.07.1982, Qupperneq 1
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1982.
■ Breiðabliksmenn kræktu sér i 2 stig
i „laugardagskvöldsstuðinu“ á Kópa-
vogsvelli sl. laugardagskvöld. Þeir sigr-
uðu Fram 1-0 i leik hina giötuðu
marktækifæra.
Blikamir sóttu mjög fyrsta korterið,
fengu hvert dauðafærið á fætur öðm, en
tókst ekki að nýta sér þau til marka.
Þeirra helsti Þrándur i Götu var
Guðmundur Baldursson, markvörður
Fram, sem varði markið hvað eftir
annað með miklum tilþrifum. Eftir
þessa sóknarhrinu heimamanna jafnað-
ist leikurinn nokkuð, miðjuhnoðið varð
allsráðandi. Undir lok fyrri hálfleiksins
fengu Framarar ansi gott marktækifæri
er Gisli Hjálmtýsson skaut sannkölluðu
bylmingsskoti beint á Guðmund, Blika-
markvörð.
í seinni hálfleiknum vom Framaramir
öllu sókndjarfari, enda höfðu þeir
vindinn í bakið. Ólafur Hafsteinsson
komst í tvígang i gegnum Blikavörnina,
en klúðraði fæmnum á óskiljanlegan
hátt i bæði skiptin. Um miðbik seinni
hálfleiksins skomðu siðan Breiðabliks-
menn markið sem úrslitum réði. Hákon
Gunnarsson átti fast skot á Fram-markið
frá vitateigshorni og boltinn hafnaði
alveg úti við stöng, innanverða, 1-0.
Laglegt mark. Framaramir reyndu nú
mjög að jafna leikinn, settu m.a.
Martein i sófcnina, en allt kom fyrir ekki
og stigin mikilvægu tóku Breiðabliks-
menn með sér.
Sigurður Grétarsson var nokkuð
áberandi i Breiðabliksliðinu að þessu
sinni. Leikinn og áræðinn leikmaður.
Hjá Fram átti Guðmundur markvörður
Baldursson góðan leik. ME/IngH
5 köstuðu
yfir 57m
■ Kringlukastaramir á Reykjavíkur-
leikunum tóku aukakeppni sin á milli
á sunnudag og náðist hreint frábær
árangur þar.
Bandaríkjamaðurinn Art Bums
sigraði með 67.18 m kasti og annar
varð landi hans John Powell með
66.10 m. Kastkeppni i heimsklassa.
Sjö efstu menn í keppninni urðu
þessir.
1. Art Bums, USA 67.18
2. John Powell, USA 66.10
3. Knut Hjeltnes, N 61.48
4. Dean Crouiser, USA 59.82
5. Vcsteinn Hafsteins, í (HSK) 57.68
6. Paul Edwards, W 45.58
7. Shaun Pickering, W 35.78
Óskar Jakobsson og Erlendur Valdi-
marsson tóku ekki þátt í keppninni þvi
þeir kepptu skömmu seinna í sleggju-
kasti i landskeppninni.
Um ÍOOO
áhorfendur
■ Um 1000 áhorfendur fylgdust með
viðureign Breiðabliks og Fram í 1.
deild fótboltans, sem fram fór á
Kópavogsvelli sl. laugardagskvöld.
Hinir dyggu stuðningsmenn liðanna
létu sig semsagt ekki vanta á völlinn
þó að leiktiminn værí harla óvenju-
legur.
- IngH
Norsku
stúlkurnar
sigurvegarar
■ Norsku stúlkumar urðu sigur-
vegarar í Norðuriandabikarkeppni
kvenna. Þær vom jafnar sænsku
stúlkunum að stigum (bæði liði fengu
43 stig), en þar sem þær norsku
sigruðu i fleirí greinum vora þær
úrskurðaðar sigurvegarar. - IngH
Sigurborg fékk
vidurkenningu
■ Sigurborg Guðmundsdóttir fékk
viðurkenningu, svokölluð einstakl-
ingsverðlaun, i hófinu að afloknum
Reykjavikurleikunum sl. sunnudag.
Var hún vel að viðurkenningunni
komin, átti mjög stóran þátt i
glæsilegum árangri islensku sveitar-
innar í Norðurlandabikarkeppninni.
- IngH
Gott hlaup
h|á ungu
strákunum
■ Nokkrir strákar úr hópi okkar
efnilegrí millivegalengdahlaupara
fengu að spreyta sig á Reykjavíkur-
leikunum i 800 m. hlaupi og náðu þeir
ágætum árangri miðað við aðstæður:
1. Sigurður Haraldsson, FH 2:01.36
2. Viggó Þ. Þórisson, FH 2:03.81
3. Gunnar Birgisson, ÍR 2:06.06
4. Ómar Hólm, FH 2:06.91
5. Jónas Egils. ÍR 2:08.00
Bikarkeppnin
á morgun
■ Á morgun, miðvikudag fara fram
leikir i 8 - liða úrslitum Bikarkeppni
KSÍ, en liðin sem era í keppninni era:
KR, Fram, Reynir; Sandgerði, ÍBV,
KA, í A, og Víkingur.
iþurófctir
Umsjón:
Ingólfur
Hannesson
Albert var
ólöglegur
■ Dómstóll KSÍ komst i gær að þeirrí
niðurstöðu, að Albert Guðmundsson
hafi verið ólöglegur með Valsliðinu
þegar það lék gegn ÍBÍ fyrir vestan fyrr
i sumar. Var dómurinn nær samhljóða
dómi fyrra dómsstigs, dómstóli KRR.
Missa Valsmenn þvi stigin 2 sem þeir
fengu i leiknum.
Á morgun, miðvikudag, verður kæra
KA vegna Alberts tekin fyrir á Akureyri.
-IngH
■ Guðmundur Baldursson, markvörður Fram, bægir hættunni frá. A innfelldu
myndinni era Hákon Gunnarsson, sem skoraði sigurmark Breiðabliks. Mynd:Ella
Þeir sterku °
kasta meira
gamla). Til dæmis má nefna, að norska
Frjálsíþróttasambandið veitir verðlaun
fyrir ákveðinn árangur og hefur heyrst
að kasti Knut Hjeltnes yfir 67 m. fái
hann dágóða upphæð. Það mun kappinn
ætla að reyna hér á landi á næstu dögum.
■ Nokkrir af erlendu gestunum, sem
kepptu á Reykjavikurleikunum i frjáls-
um íþróttum, ætla að framlengja dvöl
sina hér á landi um nokkra daga og
freista þess að ná góðum árangri
(væntanlega með góðri aðstoð Kára
■ Þetr félagamir Egill Eiðsson (t.v.) og Oddur Sigurðsson (t.h.) unnu mjög skemmtilega saman í 400 m hlaupinu. Oddur náði góðu forskoti, en beið síðan
eftir Agli. A myndinni má sjá glögglega bve vel Oddur fylgist með þvi er Egill kemur i mark, vel á undan Walesbúanum. Tvöfaldut sigur íslenskur i höfn.
MyndtEUa
Jöf n og spenn-
andi keppni
■ ísland tapaði naumlega fyrir Wales i landskeppni i frjálsum iþróttum, sem fram fór i Laugardalnum um helgina siðustu, 97-108. Þá urðu islensku stúlkumar í siðasta
sætinu í Norðuriandabikarkeppni en náðu þó einum besta árangri sem íslenskt kvennalandslið hefur náð. Þá vora jafnframt Reykjavíkurlcikar háðir samtimis og
þar var keppni jöfn og frábær árangur náðist i sumum greinum, eins og t.d. kúluvarpi og kringlukasti. . _ |ngH
. . Bls. 12-13
Mörg gód marktækifæri
fóru forgörðum og
Framarar töpuðu
í Kópavoginum