Tíminn - 21.07.1982, Page 1

Tíminn - 21.07.1982, Page 1
Leitarflokkar bíða fyrirmæla í hellirigningu uppi við bæinn Norður-Gröf á Kjalamesi i gærkvöldi. 160-170 manns gegndu útkalli vegna flugslyssins. TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ! Miðvikudagur 21. júlí 1982 163. tbl. - 66. árgangur - (Tímamynd ELLA) Leitarflokkur fann flakið af TF-FHJ rétt fyrir mi í nótt: Flugleiðir sviptar Amsterdamfluginu! - Bls. 3, 4 og 5 FIMM MANNS LETUST ER VÉUN FÓRST í ESJUNNI Hjón með tvö börn voru á heimleið frá Egilsstöðum með flugvélinni sem fórst í aðflugi að Reykjavikurflugvelli ■ Fimm manns fórust þegar tveggja hreyfla flug- vél af Piper Astec-gerð frá Flugskóla Helga Jónsson- ar fórst í Esjunni i gær- kvöldi. Flak flugvélarinn- ar, sem var i aðflugi að Reykjavíkurflugvelli, fannst rétt fyrir miðnættið í nótt í um 600 metra hæð. Með flugvélinni voru auk flugmannsins hjón og tvö uppkomin börn þeirra. Þau höfðu farið með flug- vélinni frá Reykjavík til Egilsstaða ásamt einum farþega öðrum, sem varð þar eftir, og voru á leiðinni til baka til Reykjavíkur þegar slysið varð. Það var skömmu eftir kl. 20 í gærkvöldi að flugvélin TF-FHJ, sem er Piper Astec, sem var að koma inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli með stefnu á svonefndan Grófarvita, hvarf af radarskermi flugvallarins í Keflavík, sem fylgst hafði með henni. Heyrðust skömmu siðar sterk merki frá neyðar- sendi, sem fer í gang við mikið högg. Merkin dofnuðu skjótt og var i fyrstu talið af þeim sökum að vélin hefði farið í höfnina. Voru bátar þegar sendir til leitar út á ytri höfn Reykjavíkur. Þá urðu merkin greinileg að nýju og bentu til þess að vélin hefði brotnað i hlíðum Esju. „Heyrði mikinn skell“ Þegar voru boðaðir út leitarflokkar frá SVFf, Hjálparsveit skáta og Flug- björgunarsveitinni. Söfnuðust flokkarn- ir saman við bæinn Norður- Gröf á Kjalarnesi. Friðrik Pétursson, tuttugu og þriggja ára gamall veiðivörður við Leirvogsá, tii heimilis að Norður-Gröf, heyrði síðast- ur manna í flugvélinni er hún flaug yfir bæinn. KistuféH iNtórávköUihiUs Sticiiuu»i|ri JlilalKtít. ;ó“u Tu nsqiaivelcw' Míjim •Mln-f.ii/ :, ' ■ Jlr-ísbrú.r;(ffíZ /■'u/dkoL ■ Krossinn á kortinu sýnir þann stað sem flakið af flugvélinni fannst í Esjunni í klettabelti Kistufells upp af svokölluðum Breiðageira. „Ég heyrði í flugvél hér við bæinn og svo rétt á eftir mikinn skell“, sagði Friðrik í samtali við Tímann. „Þetta var milli klukkan átta og hálfniu. Ég hugsaði ekkert út í þetta og gerði mér engar hugmyndir um, hvað þetta hefði verið. Svo hitti ég tvo lögregluþjóna hér á veginum og þeir sögðu mér frá þvi, að flugvélar væri saknað. Ég sagði þeim þá frá þvi, sem ég hafði heyrt, og þá fór allt i gang að leita hér fyrir ofan“. Aliir látnir Leitarflokkarnir héldu upp frá Norð- ur-Gröf áleiðis upp hlíðar Kistufells. Ellefu leitarflokkar, samtals 160-170 manns, tóku þátt i leitinni. Veður var lengst af slæmt til leitar, hellirigning og úðaþoka í hlíðinni. Það var svo rétt um kl. 23.50 að leitarflokkur fann flakið af flugvélinni í klettabeltinu í Kistufelli rétt ofan við svonefndan Breiðageira. Kom þá í ljós að allir, sem með flugvélinni voru, fimm að tölu, voru látnir. Þegar leitarflokkarnir höfðu tilkynnt fund flaksins fengu þeir fyrirmæli um að bíða átekta þar til rannsóknanefnd flugslysa kæmi á staðinn. Búist var við að lik hinna látnu yrðu flutt til borgarinnar undir morgun. Ekki eru tök á að birta nöfn hinna látnu að svo komnu máli. - AM/SV.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.