Tíminn - 21.07.1982, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 21, JÚLI 1982.
'23
og leikhús - Kvikmyndir og leikhús
■ Barbra Streisand - hefur bxst í hóp þeirra kvikmyndastjarna, sem annast
stjórn kvikmynda sinna líka.
Umdeild bók eftir
Doctorow kvik-
mynduð
- og Barbra Steisand leikstýrir
kvikmynd eftir smásögu
Nóbelsverölaunaskáldsins
Singer
■ Kvikmyndaleikstjórinn Sidney Lumet og skáldsagnahöfundurinn Edgar
L. Doctorow hafa tekið höndum saman um gerð kvikmyndar eftir
skáldsögunni „The Book of Daniel“, sem Doctorow samdi fyrir allmörgum
árum - en skáldsagan kom fyrst út árið 1970.
Frægasta skáldsaga Doctorows -
„Ragtime“ - hefur þegar verið
kvikmynduð. Sú mynd var frumsýnd
í Bandaríkjunum síðla á siðasta ári
og vakti myndin verulega athygli
þótt aðsóknin yrði ekki jafn mikil og
vonast hafi verið til.
Sidney Lumet hefur leikstýrt
mörgum þekktum kvikmyndum, þar
á meðal „Dog Day After noon" og
„Network“. Hann kveðst hafa unnið
að þvi að afla fjármagns til að
kvikmynda „The Book of Daniel"
síðustu tólf árin, eða allt frá því að
bókin kom fyrst út.
„Ég varð mjög hrifinn af skáld-
sögunni strax þegar hún birtist fyrsta
sinni“, segir Lumet. „Og árið 1971
komst ég að því að Edgar Doctorow
hafði gert kvikmyndahandrit eftir
skáldsögunni og ég varð einnig mjög
hrifinn af því“.
En aðrir voru ekki jafn hrifnir.
Lumet segist hafa kynnt handrit
Doctorows kvikmyndaframleiðend-
um 33 sinnum! Það, sem gerði
honum svona erfitt um vik að fá
peninga, var viðfangsefni bókar-
innar. Hér er sem sagt um að ræða
skáldsögu, sem fjallar um það, hvað
gæti hafa orðið um börn þeirra
Júlíusar og Ethel Rosenberg - en
þau voru fyrstu Bandarikjamennirn-
ir, sem teknir voru af lifi fyrir
njósnir. Rosenberghjónin voru líflát-
in 19. júni 1953.
„í hvert sinn sem nýir menn tóku
við stjórn kvikmyndaveranna fór ég
af stað og lagði handritið fram“. segir
Lumet. „En nafnið Rosenberg var
eins og veggur. Það vildi enginn einu
sinni lesa handritið“.
Það var aðeins fyrir um tveimur
mánuðum að John Heyman,
fjármálamaður sem áður hefur
★★★ Hörkutólið
0 Stuð meðferð
★★ Sólineinvarvitni
★★ Sverðið og Seiðskrattinn
o Auga fyrir auga II
★★ Amerískur varúlfur í London
★ Jarðbúinn
★★★ Lola
★★ Cat Ballou
Stjömugjöf Tímans
* * * * frábær ■ * ★ ★ mjög góö • ★ * góö • ★ sæmlleg • O léleg
útvegað fjármagn til kvikmynda sem
stóru kvikmyndaverin vestra hafa
haft lítinn áhuga á, las handritið og
bauðst til þess að skrapa saman
nægilegu fjármagni. Og honum tókst
að ná i 8.2 milljónir dala, sem er talið
nægja vegna þess að leikstjórinn,
handritahöfundurinn og fleiri aðilar
taka aðeins lágmarksþóknun fyrir
framlag sitt.
Aðalhlutverkið í myndinni, son
Rosenberg hjónanna - Daniel -
leikur Timothy Hutton, sem hlaut
Oscarsverðlaun fyrir leik sinn í
kvikmyndinni „Ordinary People"
eftir Robert Redford.
John Heyman þessi hefur reyndar
útvegað fjármagn i tvær kvikmyndir
sem nú er verið að gera. Önnur
þeirra er nýjasta kvikmyndin eftir
Nicholas Roeg og nefnist „Eureka“.
Hin er fyrsta kvikmyndin, sem
Barbra Streisand lcikstýrir. Sú mynd
ber riafnið „Yentl" og byggir á
smásögu eftir Nóbclverðlauna-
skáldið Isaac Bashevis Singer.
Streisand samdi kvikmyndahand-
ritið ásamt Jack Rosenthal, og hún
leikur aðalhlutverkið i myndinni.
Sagt er að „Yentl“ sé „óvenjuleg
ástarsaga“. Hún mun fjalla um unga
gyðingastúlku, sem þykist vera
karlkyr.s til þess að geta lagt stund á
trúarbragðafræði gyðinga.
Elias Snæland
Jónsson
skrifar