Tíminn - 24.07.1982, Síða 1
Flugáætlun er flókin radmynd - bls. 10-11
Blað 1 Tvö blöð í dag
Helgin 24.-25. júlí 1982 166. tbl. - 66. árgangur
kvlkmynda-
hornið
Conan
villi-
maður
borgum
— bls. 5
atkvæða."
Einnig kom fram hjá Jóni að ein
þjóðin, sem greiddi banninu atkvæði
sitt hafi verii' Antíka, smáríki í
Karabíska hafinu, sem kom inn á
ráðstefnuna í fyrradag og hefur aldrei
stundað hvalveiðar. „Menn geta kom-
ið hér inn fimm mínútum fyrir
atkvæðagreiðsluna og tekið þátt í
henni, ef þeir geta bara sannað að þeir
séu fulltrúar sinnar þjóðar.
Það verður hverrar ríkisstjórnar að
ákveða hvernig hún vill taka á þessum
málum. Ég þori ekkert að segja um
hvort einhver þjóð taki ekki mark á
þessu, en þjóð eins og Rússar láta
varla segja sér fyrir verkum. Mér þykir
það a.m.k. ótrúlegt, án þess að ég viti
það,“ sagði Jón Jónsson.
SV
Radar-
málið
— bls. 4
ALGERT HVALVEIDI-
BANN SAMÞYKKT 1986
— munaöi einu atkvæði að tillagan hlyti 2/3 atkvæða
■ Bann við öllum hvalveiðum í
heiminum var samþykkt á Alþjóða
hvalveiðiráðstefnunni í Brighton í
Englandi, um klukkan hálf sjö að
íslenskum tíma, í gærkvöldi. Tillagan
kom frá Sechilleyjum, sem er smáeyja-
klasi í Indlandshafi, með 6-7000 íbúa,
að sögn Jóns Jónssonar forstjóra
hafrannsóknarstofnunar, sem er einn
fulltrúa Islands á ráðstefnunni.
Með tillögunni greiddu 25 ríki
atkvæði, 5 sátu hjá og 7 greiddu
atkvæði gegn. Þau sem voru á móti
eru: Brasilía, fsland, Japan, Korea,
Noregur, Peru og Sovétríkin.
Samþykktin segir að allar strand-
veiðar verði bannaðar eftir 1986, en
úthafsveiðarnar verða bannaðar eftir
timabilið 1985 og 1986. Þar skiptist
veiðin á tvö ár.
Þessi ákvörðun verður svo endur-
skoðuð árið 1990.
„Hér er búið að vera geysilega mikið
baktjaldamakk út af þessu í allan
dag,“ sagði Jón Jónsson í viðtali við
Tímann. „Mann var farið að gruna að
þetta gengi í gegn, þegar maður frétti
að Spánn væri brostinn úr liði
hvalveiðimanna. Spánn greiddi at-
kvæði með banninu, en hefði hann
verið með okkur, eins og við
vonuðum, hefði tillagan fallið, þar sem
hún þarf tvo þriðju hluta greiddra
Jón Jónsson forstjóri.
■ Þegar verslunarstjórinn kom til starfa í gærmorgun varð fyrst vart við hvað skeð hafði. í öskjunum voru dýrustu
gullfestar og armbönd í versluninni. (Timamynd Robert).
Stórinnbrot í skartgripaverslun Kornelíusar:
HUNDRUD ÞÚSUNDA TJÓN
ÞÝFIÐ LAGT VÁTRYGGT
■ „Þetta er versta innbrotið sem
framið hefur verið í okkar verslunum.
Eg vil ekki áætla upphæðina, en hún
nemur hundruðum þúsunda. Ég
ímynda mér að skaðinn sé ekki minni,*
en þegar brotist var inn hjá Gull og
silfur, - hér hurfu 60-70 verðmætustu
úrin, dýrustu gullkeðjumar og arm-
böndin auk kassa með giftingarhring-
um. Er þá hvergi allt talið.“
Þannig fórust Haraldi Kornelíussyni
orð, þegar við Tímamenn litum við
hjá honum í gær, en í fyrrinótt var
brotist inn í skartgripaverslun Korne-
líusar Jónssonar að Skólavörðustíg 8
með fyrrgreindum afleiðingum. Þjóf-
arnir eðá þjófurinn náði glugga úr að
húsabaki með karmi og hjörum, komst
inn í kompu sem fyrir innan var, braut
upp tvær hurðir og komst þannig inn
í verslunina.
Það var að vonum tómlegt um að
litast í afgreiðsluborðinu, þar sem
stórar öskjur stóðu galtómar, en auk
þess höfðu þjófarnir hirt það verðmæt-
asta úr verslunarglugganum. Munu
þeir hafa gefið sér góðan tíma og var
leikurinn þeim því hægari sem vörurn-
ar voru vel verðmerktar. Þess skal
getið að aðeins hálfum mánuði áður
en innbrotið var framið í Gull og silfur
var skartgripum fyrir 150-200 þúsund
stolið í öðru innbroti í þessari verslun.
„Okkur er Ijóst að öryggisráðstafan-
ir voru ófullnægjandi," sagði Harald-
ur, „en fyrri innbrot hér hafa verið á
þá leið að þjófar hafa brotið rúður og
hrifsað í skyndingu það sem þeir náðu
á augnabliki. Hér eru ný vinnubrögð
komin til sögunnar. Þetta var þaul-
skipulagt."
Haraldur sagði að verslunin hefði
verið að undanförnu að skoða tilboð í
þjófavarnarkerfi, en ekki var enn
orðið af framkvæmdum. Hann kvaðst
búast við að þýfið væri mjög lágt tryggt
og er skaðinn því geysilegur.
- AM