Tíminn - 29.07.1982, Qupperneq 2
.«11-
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1982
spegli tfmans
Umsjón: B.St. og
K.L.
Hefur Bakkus nú yfirhönd
Stríði Best
ekki lokid
Skálka-
skjól
ótrúrra
eigin-
manna
■ Allt er til í henni Ameríku.
Þar datt einhverjum snjöllum
náunga í hug að gefa út á
snældum ýmiss konar bak-
grunnshljóð, svo sem pikk í
ritvél, hávaða, sem fylgir
járnbrautarstöðvum, o.s.frv.,
sem ótrúir eiginmenn geta
spilað undir, þegar þeir hring-
ja í sínar ektakvinnur í vafa-
sömum erindagerðum.
Nú hefur hugmvndin verið
enn betur útfærð í 5 stórborg-
um í Bandaríkjunum. Þar hafa
verið settir upp „afsökunar
símklefar“, þar sem fyrir einn
dollar má hringja símtal með
völdu undirspiU. Eigendur
þessa þarfafyrírtækis eru engir
aðrir en framleiðendur Dallas-
þáttanna margfrægu, enda má
kannski segja, að siðferðið sé
skylt því, sem þar fer fram.
A.m.k. væri JR ekki ólíklegur
tU að notfæra sér þessa
þjónustu!
■ George Best hefur átt í langri og strangri baráttu
við Bakkus konung og hefur þeim veitt hetur sitt á hvað.
Fyrir u.þ.b. ári gaf George út ævisögu sína, sem bar á
frummálinu nafnið „VVhere do I go front here?" (Hvert
liggur leið mtn nú?). Á þeim tímamótum var liann fullur
bjartsvni á, að sér hefði tekist að sigrast á hinunt forna
fjanda og væri búinn að ná tökum á lífi sínu, loksins.
Kona lians studdi hann dvggilega í þessari baráttu.
Fn nú hafa skipast veður í lofti. Knn einu sinni
skrikaði George fótur og þá var langlundargeð konu
hans þrotið. Hún gaf honum tveggja kosta völ, hann
yrði að vdja á ntilli hennar og brennivínsins. Og nú
náði Bakkus yfírhöndinni. George yfírgaf heimili þeirra
hjóna i Kaliformu og hélt til Bretlands. Þar situr hann
nú og híður eftir að skilnaðurinn gangi í gegn.
En George, sem enn getur baðað sig í fornum
frægðarljóma fra þvi hann þótti fræknasti knaltspyrnu-
maður Bretlandseyja (hann er Norður-Iri), er ekki á
því að gefa upp á bátinn hið Ijúfa lif ennþá. Hann liefur
nú fundið sér nyja vinkonu, enga aðra en fyrrum L'ngfrú
heim, sænsku stúlkuna Marv Stavin, sem vann þann titil
1978.
■ Enn dugir George Best skinið af fornum
frægðarljóma til að sla glýju i augu kvenfólksins.
Eru skrefamælingar á
símanum í útlöndum?
■ Aldo Finetti ætlaði aðeins
að fá sér smáspjall við konuna
sína í Trento, þcgar hann
hringdi í hana frá Mílanó, en á
milli þessara staða eru um 150
km. En konan hans var svo
málglöð, að á endanum sofn-
aði Aldo undir öllu málæðinu
í símaklefanum á hótelinu, þar
sem hann bjó. Klukkutíma
seinna vakti lögreglumaður
hann af værum blundi, og enn
var konan að masa!
Þýsk stúlka hringdi úr síma-
klefa á pósthúsi í Hamborg.
Símtalið dróst á langinn og
lauk ekki fyrr en tveim
stundum síðar. Þá var búið að
loka pósthúsinu og stúlkan
varð að fá hjálp lögreglunnar
til að komast út!
Og 100 nemendur við verk-
fræðiháskóla í Kaliforníu
héldu símtali gangandi í 21
dag. Þeir halda því fram, að
þcir hafí sett met!
En ekki má gleyma sögunni
af þjófunum, sem hefndu sín
grimmilega, þegar þeir fundu
engin verðmæti í húsinu, sem
þeir höfðu haft fyrir að
brjútast inn í í Þýskalandi .
Þeir hríngdu til Ástralíu og
lögðu símtólið síðan við hlið-
ina á símanum! Það var ekki
fyrr en seint og um síðir, sem
símeigandinn áttaði sig á til-
tækinu.
Miðstéttarfólk
er milljónamæringar
■ Dollara milljónamæringar
eiga það nú á hættu að vera
visað frá fínum klúbbi í New
York, sem kenndur er við
skartgripaverslunina frægu
Tiffany’s á þeirrí forsendu, að
þeir séu, ekki nógu auðugir.
Að sögn talsmanna klúbb-
sins hefur verðbólgan gert það
að verkum, að ekki sé lengur
merkilegt að vera miUjóna-
mæringur. - Nú á dögum eru
milljónamæringar bara mið-
stéttarfólk, segja þeir.
Sem kunnugt er, er sú tíð
löngu upprunnin á Islandí!
■ - Myndi ég líta svona út, ef ég hefði fengið andlitslyftingu.
spyr Bette Davis.
■ 1933 leit Bette svona út. Eiginlega er ekki hægt annað en að ■ Svona leit Bette Davis út, þegar hún lék í kvikmyndinni
taka undir með henni, að hún hafi verið einhver fallegasta kona, „Piparjómfrúin" 1939
taka undirjneö henm, að hun hali venð einhver tallegasta kona, „riparjonnruin spyr nette uavis.
T LANGRI ÆVI ER VINNAN
TRYGGASTIVINIIR MANNSINS
— segir Bette Davis sem er enn í fullu fjöri eftir að
hafa leikið í yfir 80 kvikmyndum
■ Bette Davis er orðin 74
ára, en sýnir engin merki þess,
að hún hyggist setjast i helgan
stein fyrst um sinn. Hún hefur
nýlokið við að leika í sjón-
varpskvikmynd og er stöðugt á
ferðinni með „einmennings-
syningu" sína, þar sem hún
sýnir úrklippur úr gömlum
myndum, sem hún hefur leikið
í, og svarar fyrirspurnum.
- Á langri ævi er vinnan
tryggasti vinur mannsins, segir
hún. - Þeir sem vinna að því,
sem þeim þykir skemmtilegt,
eru svo sannarlega heppnir.
Ég er búin að vinna stíft í 50
ár og er oft undrandi á því, að
ég skuli ekki vcra dauð! segir
Bette.
Bette er búin að leika í yfír
80 kvikmyndum, en enn þann
dag í dag eiga margir bágt með
að skilja, hvernig stendur á því
að hún, einmitt hún, sem þykir
hafa umdeilda fegurð til að
bera, hefur orðiö kvikmynda-
stjarna. Enda segir Bette sjálf,
að hún hafí aldrei verið sérlega
hrifín af sjálfri sér, né álitið sig
sérstaka fcgurðardís. - Ég vildi
alls ekki sjá sjálfa mig í
kvikmyndum, ég varð þung-
lynd lengi á eftir, segir hún!
Nú hefur hún heldur betur
skipt um skoðun. Nú veit hún
ekki betri skemmtun en að
horfa á gamlar myndir í
sjónvarpinu, þar sem hún fer
með aðalhlutverk. - Núna
finnst mér ég hafa verið
einhver fallegasta kona, sem
ég hef séð, scgir hún og hlær.
En þó að Bette sé í fullu fjöri
ennþá, færist aldurinn yfir
hana eins og aðra. Hún segir
oft söguna af konunni, sem
spurði hana, hvort hún hefði
fengið andlitslyftingu. - Og þá
svaraði ég auðvitað, hvort hún
héldi virkilega, að ég liti svona
út! segir Bette og hlær hressi-
lega.
Reyndar hefur gott skop-
skyn oft bjargað Bette frá
örvilnan, því að vissulega
hefur hún hlotið sinn skerf af
vonbrigðum, eins og allir
aðrir. Á velmektardögum sín-
um í Hollywood átti hún t.d.
oft í útistöðum við forráða-
menn Wamer bræðra kvik-
myndaversins, sem hún var
fastráðin hjá, og var það hreint
ckkert sjaldgæft, að hún ryki
burt í fússi og neitaði að leika
hjá þeim meir eða þá hún var
rekin. En forráðamenn fyrir-
tækisins gerðu sér vel grein
fyrir, hvers virði hún var þeim,
og gerðu sér alltaf far um að
blíðka hana. I einni sáttatil-
raun var henni t.d. boðið
hlutverk Scarlett O’Hara í Á
hverfanda hveli. En hún var
þá svo reið, að hún leit ekki
við þessu tilboði. Nú segir hún:
- Marga vitleysuna hef ég gert
um ævina, en líklega er þetta
sú stærsta!