Tíminn - 29.07.1982, Side 5
FIMMTUDAGUR 29. JULI 1982
fréttir
Islendingarnir sem missa vinnuna hjá Cargolux:
FJOLSKYLDUFOLK MEÐ TOLU-
VERT LANGAN STARFSALDUR”
— mjög ósennilegt að þeir fái aðra vinnu í Luxemborg
■ „Sumir þeirra bafa langan starfs-
aldur að baki, hafa verið hjá Cargolux í
fjölda ára, og allir eru þeir með
fjölskyldur sínar hér í Luxemborg“ sagði
Þórarinn Kjartansson deildarstjóri hjá
Cargolux í samtali við Tímann en nú er
Ijóst að uppsagnir starfsfólks , hjá
Cargolux verða 85 talsins að þessu sinni,
40 sem sagt er upp og 45 sem þáðu þann
pakka sem boðinn var, þ.e. sagði sjálft
upp.
Ákvörðun um uppsagnir 30 manns í
viðbót mun bíða til 15. ágúst er útséð
verður um hvemig viðskiptasamningar
þeir sem fyrirtækið hefur í gangi koma
út.
Af þessum 85 eru 6 íslendingar eða
liðlega 7% en Luxemborgarmenn eru
um 32%. Flestir þessara 85 eru af
viðhaldsdeild fyrirtækisins, þ.a.m. flest-
ir íslendingarnir.
„Mér er ekki kunnugt um hvað
íslendingarnir sem sagt var upp ætla að
gera en ég tel mjög ósennilegt að þeir
fái aðra vinnu hér. Atvinnuleyfi hér eru
yfirleitt gefin út á ákveðin störf hjá fyrir-
tækjum og því þyrftu þeir að sækja
um nýtt atvinnuleyfi og eins og
atvinnumálum er háttað hér þá er
örugglega erfitt að fá slíkt“, sagði
Þórarinn.
Aðspurður um hvort reikna mætti
með að margir Islendingar yrðu í 30
manna hópnum, sem taka á ákvörðun
um í ágúst, sagði Þórarinn að hann ætti
erfitt með að segja til um það en hann
gæti trúað að íslendingar yrðu einnig í
þeim hópi.
-FRI
Tímamynd Róbert
Fyrsti fundur BSRB og fjármálaráðuneytisins var haldinn hjá sáttasemjara ■ gxr.
Sjóprófum vegna strands
Ýmis lokið:
Ekki tekið
nægilegt tillit
til strauma?
— við stefnuákvörðun
■ Sjóprófum vegna Ýmisstrandsins er
lokið, en þó er enn ekki að fullu kannað
hvort sjálfstýringin er fullkomlega í lagi.
Fram kom í sjóprófinu að staðar-
ákvörðun var fengin á Loran klukkan
0:30 um nóttina, og stefnan þá sett út
og á sjálfstýringu. Þá var skipið 2,6
sjómílur frá Eldey. Fimmtán mínútum
síðar tók skipið niðri. Þá voru skipstjóri
og stýrimaður kortaklefa, inn af brúnni,
og við sjóprófin kom fram að þeir urðu
mjög undrandi þegar skipið tók niðri.
Einnig kom fram að sjálfstýring hafði
bilað skömmu áður, en verið lagfærð og
bilunar hafði ekki orðið vart í þessari
veiðiferð.
Skipstjóri skýrði útreikninga síinia við
mörkun stefnunnar, fyrir dómnum, og
reyndust þeir réttir að mati dómenda,
en þó munu vera áhöld um hvort
nægilega mikið tillit hefur verið tekið til
strauma, sem eru sterkir á þessum
slóðum, að því er Guðmundur L.
Jóhannesson fulltrúi við sýslumanns-
embættið í Hafnarfirði upplýsir, en hann
stjórnaði sjóprófinu. SV
Fyrsti fundur BSRB og fjármála-
ráðuneytis hjá sáttasemjara:
Fjallaði um
vinnubrögð
I „Þessi fundur fjallaði um vinnu-
brögð og tilhögun samningaviðræðn-
anna“ sagði Kristján Thorlacíus for-
maður BSRB í samtali við Tímann eftir
fyrsta fund þeirra hjá ríkissáttasemjara
með fulltrúum fjármálaráðuneytisins.
Næsti fundur er ekki boðaður fyrr en
9. ágúst n.k. og er það vegna mikilla
anna hjá ríkissáttasemjara um þessar
mundir.
Kristján sagði að helstu kröfur þeirra
BSRB manna væru þær að lágmarkslaun
yrðu hækkuð í 8000 kr. á mánuði miðað
við núverandi verðlag, launakjör opin-
berra starfsmanna yrðu samræmd því
sem raunverulega er á hinum almenna
vinnumarkaði, og því sem ríki og
sveitarfélög greiða aðilum annarra
launþegasamtaka fyrir sömu störf,
launakerfið verði tekið til gagngerðrar
endurskoðunar, greidd yrðu sambærileg
laun fyrir sömu störf, og virt yrði
jafnrétti milli kynja, nýr vísitölu-
grundvöllur og verðbætur greiddar
samkvæmt óskertri framfærsluvísitölu.
„Þetta eru helstu stefnumarkandi
atfiðin" sagði Kristján.
Ekki liggur fyrir gagntilboð frá
fjármálaráðuneytinu og er BSRB menn
spurðu um slíkt varð lítið um svör.
-FRI
Togarinn Jón Baldvinsson
sendur til Noregs:
„Eðlilegasta og
öruggasta leiðin”
— segir Einar Sveinsson
framkvæmdastjóri BÚR:
■ „Frá tæknilegum sjónarmiðum var
þetta eðlilegasta og öruggasta leiðin því
allt sem í vélina þarf getur ekki komið
frá öðrum en framleiðanda hennar og
það er geysilegt öryggi í því að vélin sé
tekin upp af framleiðanda á hans
vinnustað" sagði Einar Sveinsson
framkvæmdastjóri BÚR í samtali við
Tímann en tekin hefur verið ákvörðun
um að senda togarann Jón Baldvinsson
til Noregs og hélt hann utan í fyrrinótt.
Forráðamenn BÚR hafa dvalið ytra
að undanfömu hjá Wichman verksmiðj-
unum við að semja um viðgerð á vél
skipsins og sagði Einar að þeir hafi náð
samningum sem þeir teldu viðunandi.
Viðgerðin tæki um 4 vikur þannig að
gróflega áætlað mun skipið komast á
veiðar eftir u.þ.b. einn og hálfan mánuð.
Aðspurður um hvort þetta kæmi niður
á fiskvinnslunni sagði Einar það ekki
vera. „Ef eitthvað fiskast þá er
vandamálið nú að hafa undan því
sumarleyfi fiskvinnslufólksins koma hér
inn í dæmið og eftir sem áður höfum við
5 skip“ sagði hann. -FRI
Lúxus heimilistæki
Elektro
Helios
Sumartilboð
Fyrir litlu heimilin áður en hækkanirnar koma
Elektro Helios
uppþvottavélin DB 40
Tekur lítiö pláss, getur staöiö
á boröi. Tekur fullan borö-
búnaö fyrir 4. Einstaklega
fljótvirk og lágvaer. Vélin
getur veriö laustengd viö
krana. Mál: breidd 46 cm.
Hæö: 47 cm. Dýpt 53 cm
kr. 6.718.-
Elektro Helios
Kæliskápur KG161
Úrvals kæliskápur fyrir lítil
heimili eöa sumarhús.
Mjög lítil straumnotkun.
132 lítra 15 lítra frystihólf.
Mál: Breidd 55 cm. Hæö:
85 cm. Dýpt 60 cm.
Kr. 5.522,-
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10 A Sími 16995