Tíminn - 29.07.1982, Page 7
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1982
■ Taka Adolfo Suarez og Felipe Gonzalez höndum saman?
Ölga fer vaxandi í
stjórnmálum Spánar
Miðflokkabandalagið riðar til falls
■ MIKIL umbrot eiga sér nú stað
innan Miðflokkabandalagsins á Spáni,
en það hefur verið stjómarflokkurinn
þar síðan lýðræðið var endurreist. Það
var á sínum tíma myndað af ýmsum
smáflokkum og flokksbrotum, sem
hvorki kusu að skipa sér til hægri eða
vinstri á þeim tímamótum.
Sennilega átti það mikinn eða mestan
þátt í því fylgi, sem Miðflokkabanda-
lagið hlaut í upphafi, að helzti stofnandi
þess og forustumaður var Adolfo
Suarez, sem Jóhann Karl konungur
hafði valið til stjórnarforustu. Suarez,
sem var lítið þekktur, þegar hann tók
við stjómarforustunni, vann sér fljótt
mikið álit. Honum er manna mest
þakkað það, að lýðræðisstjórn var
endurreist á Spáni, án mikilla átaka, en
það höfðu margir óttazt.
í síðustu kosningum til Spánarþings,
sem fóru fram 1979, fékk Miðflokka-
bandalagið næstum helming þingsæta og
hefur stjórnað síðan með tilstyrk
smáflokka.
Ríkisstjórn þess þótti í fyrstu traust í
sessi, en þetta breyttist, þegar vaxandi
efnahagslegir örðugleikar komu til
sögunnar. Stjórninni var kennt um þá
bæði réttilega og ranglega.
Þetta olli vissum árekstrum innan
Miðflokkabandalagsins og tók nú að
koma betur í ljós en áður, að þar greindi
hina ýmsu flokka eða flokksbrot mjög á
um það, hvort heldur bæri að stefna til
hægri eða vinstri.
SUAREZ hélt sér utan við þessar
deilur eins lengi og hægt var. Svo kom
þó að lokum, að hann var neyddur til
að taka afstöðu. Hann gerði það á þann
hátt, að hann afsalaði sér bæði
flokksformennskunni og stjórnarforust-
unni. Þetta gerðist í ársbyrjun 1981.
Það þótti líklegast þá, að Landelino
Lavilla, sem var forseti Spánarþings,
yrði -valinn eftirmaður Suarez. Hann
nýtur persónulega mikils álits. Suarez er
talinn hafa beitt áhrifum sínum bak við
tjöldin, til þess að koma í veg fyrir, að
Lavilla næði kosningu. Ástæðan var sú,
að hann taldi Lavilla vera of langt til
hægri.
Niðurstaðan varð sú, að Calvo-Sotelo
varð valinn formaður flokksins og
forsætisráðherra. Þessi úrslit sættu
talsverðri óánægju, því að hæpið þótti
að Calvo-Sotelo myndi valda þeim
vanda, sem lagður var á herðar hans.
Sú hefur líka orðið reyndin. Rt'kis-
stjóm hans hefur sætt vaxandi mótgangi,
en rangt væri þó að kenna Calvo-Sotelo
um allt það, sem miður hefur farið. Þetta
hefur eigi að síður leitt til þess, að
Miðflokkabandalagið hefur verið að
■ Calvo-Sotelo
tapa fylgi og hefur það komið glöggt í
ljós í fylkiskosningum, sem hafa farið
fram á þesSu ári.
Calvo-Sotelo hefur því séð þann kost
vænstan að afsala sér flokksforustunni,
en hins vegar mun hann gera sér von um
að halda stjórnarforustunni áfram.
Miðstjórn Miðflokkabandalagsins
kom saman um miðjan þennan mánuð
til að velja nýjan flokksformann. Valið
féll á Lavilla. Suarez reyndi nú ekki að
hafa nein áhrif á formannskosninguna.
Hann valdi þann kost að mæta ekki á
fundinn.
Lavilla hefur síðan unnið að því að
endurskipuleggja stjórn og starf banda-
lagsins, en hæpið þykir, að það geti
komið í veg fyrir ósigur þess í næstu
kosningum til Spánarþings.
FJARVERA Suarez á miðstjórnar-
fundinum er yfirleitt skýrð þannig, að
hann ætli sér að stofna nýjan vinstrisinn-
aðan miðflokk, sem gæti átt samleið
með sósíalistum eftir næstu þingkosning-
ar.
Talið er, að ýmsir vinstri sinnar, sem
ekki hafa verið í Miðflokkabandalaginu,
muni koma til liðs við hann. Meðal
þeirra, sem eru nefndir í þessu
sambandi, er Ramon Tamames, fyrr-
verandi varaborgarstjóri í Madrid, en
hann hefur fyrir nokkru sagt sig úr flokki
kommúnista.
í kosningum, sem hafa farið fram að
undanförnu, hefur fylgi sósíalista aukizt
verulega og skoðanakannanir benda til,
að þeir séu nú stærsti stjórnmálaflokkur
Spánar. Hins vegar er því ekki spáð, að
sósíalistar fái þingmeirihluta.
Sósíalistar eru undir forustu tiltölu-
lega ungs stjórnmáiamanns, Fclipe
Gonzalez, sem hefur unnið sér mikið
álit.
Ásamt sósíalistum hefur bandalag
hægri manna, sem er undir forustu Fraga
Iribarme, unnið verulega á í undan-
gengnum kosningum. Því er spáð, að
þetta bandalag muni vinna verulegan
sigur í næstu þingkosningum.
Því er nú helzt spáð, að Lavilla muni
stefna Miðflokkabandalaginu á þá
braut, að það geti átt samvinnu við
bandalag hægri manna eftir næstu
kosningar. Annar hvor þeirra Lavilla
eða Fraga hefði þá stjórnarforustuna.
Sumir fréttaskýrendur telja það ekki
útilokað að kommúnistar fái oddaað-
stöðu milli þeirra tveggja fylkinga, sem
virðast vera að myndast á Spáni. Þetta
gæti gerzt, þrátt fyrir fyrirsjáanlegt
fylgistap kommúnista.
Af hálfu sósíalista hefur því verið lýst
yfir, að þeir muni ekki hafa samstarf við
kommúnista, enda myndi það verða
vatn á myllu róttækustu hægri aflanna
og gefa byr í seglin öfgamönnum innan
hersins, sem vilja að hann geri byltingu
í anda Francos.
Það sést á mörgu, að þeir herforingj-
ar, sem stefna að byltingu, eru síður en
svo fylgislausir á Spáni. Nýlega var
stofnaður sjóður til styrktar Tejere
Molina, sem nýlega var dæmdur í 30 ára
fangelsi fyrir að hertaka þingið í
febrúarmánuði 1981 oghaldaþingmönn-
um sem gíslum í sólarhring. Svo mikið
hefur safnazt í þennan sjóð, aðallega
með smáum framlögum, að Molina er
orðinn margfaldur milljónamæringur,
þegar reiknað er í pesetum.
Þórarinn Þórarinssori,
ritstjóri, skrifar
erlendar fréttir
7
28 féllu
í Beirút
■ Mikið var barist í Beirút í gær og
herma fregnir frá Palestínumönnum j
að 28 manns hafi fallið og mikill
fjöldi særst. Kyrrt var þó seinni j
partinn.
Nú er Habib sendimaður Banda- j
ríkjanna í Beirút og ræðir hann við
ráðamenn Líbanons og leiðtoga
Palestínuskæruliða. Átti hann við-
ræður við Begin í fyrradag og er haft
eftir ísraelska forsætisráðherranum
að Habib hyggist fá svör um það frá
skæruliðum, hvort þeir muni fara úr
borginni með friði. Sagði Begin,
Jórdana, Egypta og Sýrlendinga hafa
gefið því undir fótinn að þeir kynnu
að taka við hluta skæruliðanna.
Habib mun hafa reynt í gær að koma
á vopnahléi, en ekki er vitað um
árangur enn.
■ Palestínskir hermenn gá að ísraelskum orrustuþotum í Beirút. Þeír eru
vopnaðir SAM-7 loftvarnareldflaug, en hún er sovésk og einn maður getur
skotið henni á loft.
Khomeini hótar
olíuríkjum hördu
■ Ayatollah Komeini hótaði því
í gær að hann mundi ráðast á öll
olíuríkin við Persaflóa, héldu þau
áfram að styðja írak. Kom þessi
yfirlýsing trúarleiðtogans um leið og
staðfest fékkst að búið var að stöðva
framsókn hers írana. Sagði Kho-
meini að það væru svik við íslam að
hjálpa Sadam Hussein.
Það eru nokkur olíuríki, en þó
einkum Kuwait, sem aðstoðað hafa
írak í stríðinu. Saudi Arabar hafa
hins vegar mjög beitt sér á dipló-
matiska sviðinu til þess að koma á
friði. Munu þessi ríki óttast að
byltingarandi Khomeini muni breið-
ast til þeirra eigin landa og óska þess
að írakar vinni stríðið um leið og
íran verði að setja ofan.
Grikkir og Tyrkir
á friðarstóli?
■ Grikkir og Tyrkir hafa nú gert
með sér samkomulag í þá veru að
bæði ríkin skuli forðast allt það í
orðum og gjörðum, sem orðið gæti
til þess að valda misklíð út af Kýpur.
Þetta samkomulag er talið geta orðið
byrjun á því að hafnar verði
samningaviðræður um ágreining
þjóðanna. Er í ráði að utanríkis-
ráðherra Grikkja og Tyrkja hittist í
Ottawa í Kanada þann 2. október
n.k. og munu þeir sín í milli kanna
grundvöllinn fyrir formhgum við-
ræðum.
Reagan krefst
f riðar í Líbanon
■ f orðsendingu sem Bandaríkja-
stjórn sendi út í gær var þess krafist
að bardögum í Beirút yrði hætt og
hefur ekki hvassyrtari orðsending
um þessi efni komið úr hvíta húsinu
enn. í orðsendingu þessari var lögð
áhersla á hve margt óbreyttra
borgara léti lífið í átökunum og þykir
ljóst að það eru einkum ísraelsmenn
sem eiga þá sneið sem í orðum
tilkynningarinnar felast.
Nevtrónusprengikula
■ Bandaríkjaher hefur óskað eftir
því við Weinberger, varnarmálaráð-
herra að hann leyfi smíði á nýrri
sprengikúlu fyrir stórskotalið, sem
með lítilli fyrirhöfn mætti breyta í
nevtrónusprengj uhleðslu.
Eru þessar upplýsingar fengnar
frá bandarískum þingmönnum og
mæli ráðherrann með umsókninni
verður hún lögð fyrir Reagan
forseta. Talið er að þetta fyrirtæki
kynni að kosta 3 milljarða dollara.
Munu þegar hafnar umræður um
málið í varnarmálaráðuneytinu og
fælast menn bæði hinn mikla kostnað
og enn fremur þá mótmælaöldu,
sem þetta kynni að vekja upp.