Tíminn - 29.07.1982, Qupperneq 19

Tíminn - 29.07.1982, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1982 23 og leikhús - Kvikmyndir og leikhús kvikmyndahornið ■ Vinimir fjórir í nýjustu kvikmynd Arthur Penns: Craig Wasson, Jodi | Thclen, Michael Huddleston og Jim Metzler. Fjórir vinir Arthur Penns ■ Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Arthur Penn, sem sló í gegn með kvikmyndum sínum á sjöunda áratugnum, hefur verið atkvæðalítill á kvikmyndasviðinu síðasta áratuginn eða svo. En nú er hann allt í einu kominn í gang á ný og þá með kvikmynd, sem einmitt fjallar um unga fólkið á sjöunda áratugnum og hvernig það var að alast upp á þeim umbrotaárum. Kvikmyndin nefnist „Four Friends" eða „Fjórir vinir“, en hefur reyndar sums staðar verið skírð upp á nýtt og kölluð „Vinir Georgiu“, m.a. í Bretlandi. Aðdáendur Penns, sem er sextug- eins og The Missouri Breaks.“ ur að aldri, eru að sjálfsögðu ánægðir með að hann hafi tekið til við að gera kvikmyndir á ný. Penn var reyndar þekktur sem leikstjóri á Broadway og í bandaríska sjónvarpinu áður en hann fór að gera kvikmyndir. Pótt hann gerði fyrstu mynd sína 1958 nýja útgáfu af sögunni um Billy the Kid, þá var það fyrst árið 1962 sem hann vakti verðugt umtal sem kvikmyndaleikstjóri. Það var fyrir „The Miracle Worker", sem hann hafði áður sett á svið á Broadway með góðum árangri. Þcssi mynd sagði frá því hvernig Helen Keller var kennt að tala, og fengu Patty Dukc og Ann Bancroft Oskarsverð- laun fyrir frammistöðu sína. Eftir nokkrar kvikmyndir, sem ekki vöktu sérlega mikla athygli: „Mickey One“, og „The Chase" með Marlon Brando, Robert Redford og Jane Fonda, sló Arthur Penn loks í gegn svo um munaði sem kvik- myndaleikstjóri með hinni umdeildu „Bonnie og Clyde", sem telja verður eina af betri kvikmyndum síðari áratuga. í beinu framhaldi komu svo tvær aðrar vinsælar myndir - „ Alice’s Restaurant“ árið 1969 um blómakyn- slóðina og „Little Big Man“ árið 1970. Vart er hægt að segja að síðan hafi Arthur Penn gert umtalsverða kvik- mynd fyrr en þá nú, rúmum áratug síðar. Hann gerði að vísu tvær myndir, þar á meðal „The Missouri Breaks" árið 1976, en þær voru misheppnaðar. „Ég gat ekki fundið lcið til að gera góða kvikmynd á áttunda áratugn- um“, segir hann í nýlegu viðtali. „Mér virtist að á Nixon-árunum væri leikur stjórnmálanna allsráðandi. Og ég á erfitt með að minnast - kannski fyrir utan „Nashville" - góðrar kvikmyndar frá því á tímabili sem hefur ekki rætur í liðinni tíð - Guðföðurmyndirnar til dæmis. í það minnsta tókst mér ekki að finna reglulega eggjandi viðfangsefni. Ég ákvað líka með sjálfum mér að gera aldrei aftur kvikmynd fyrir peninga, Afleiðing þessa var hlé á kvik- myndagerð Artur Penns þar til nú, að hann snýr aftur til þess tímabils þegar hann náði bestum árangri í kvikmyndagerð - sjöunda áratugar- ins. í „Fjórum. vinum“ er Steve Tesich handritahöfundur, og sam- vinna þeirra tveggja hefur gengið mjög vel. Tesich er einn virtasti höfundur kvikmyndahandrita vestra um þessar mundir; gerði m.a. handrit myndanna „Breaking Away“, sem einnig fjallar um ungt fólk, „Eyewitness” og „The World Acording to Garp“, sem nýlega hefur . verið frumsýnd í Bandaríkjunum og byggir á metsölubók. „Fjórir vinir“ segir frá ungum innflytjendasyni, Danilo Prozor, sem elst upp í Chicago. Árið 1961 útskrifast hann úr menntaskóla ásamt þremur vinum sínum - Tom, David og svo Georgiu, sem þeir eru allir hrifnir af. Þau fjögur eru á skólaárunum óaðskiljanleg og dreymir fagra drauma um framtíð- ina. En lífið er ekki draumur, og margt fer á annan veg en áætlað er. í myndinni fylgir Penn ferli þeirra fjögurra næstu árin, tengslunum þeirra á milli og jafnframt viðbrögð- um við atburðum líðandi stundar; pólitískum morðum, umrótinu vegna Víetnamstríðsins o.s.frv. „í kvikmyndinni er ég að reyna að segja við fólk; sjáið til, svona var þetta á sjöunda áratugnum . Þetta er ekkert stórkostlegt, heldur eins og ef ég stæði á torgi ásamt nokkrum öðrum og væri að segja þeim, sem eru ypgri en ég, svolítið um hvað, það var að vera Bandart'kjamaður á þessum tíma“, segir Penn. Elias Snæland Jónsson skrifar ★ Atvinnumaður í ástum ★★ Sólin ein var vitni ★★ Amerískur varúlfur í London ★★★ Lola ★★ Cat Ballou ★★★ Framísviðsljósið ★★★ Bláa lónið ★★ Hvellurinn Stjömugjöf Tfmans * * » * frábær • * * * mjög gód • » * góö • * sæmileg • O léleg

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.