Tíminn - 30.07.1982, Side 1
f T *
WfítH/M
Kaupfélag ísfirdinga snýr vörn í sókn:
rrMikil hreyfing
f öllum málum”
■ Kaupfélag ísfirðinga er umfangs-
mikið verslunar og þjónustufyrirtæki og
sem slíkt hið stærsta á ísafirði. Við
ræddum við Hafþór Helgason, kaup-
félagsstjóra um rekstur og hag félagsins
en Hafþór kom til starfa sem kaupfélags-
stjóri árið 1980, þegar félagið var 60 ára.
Hann var áður kaupfélagsstjóri í
Saurbæ.
„Kaupfélag ísfirðinga rekur tvö útibú,
bæði á Suðureyri við Súgandafjörð og í
Súðavík við Álftafjörð,“ sagði Hafþór.
„Af umsvifum félagsins hér á ísafirði og
í nágrenni er það hins vegar að segja að
við erum með verslun í Hnífsdal, við
Hlíðarveg, tvær verslanir við Hafnar-
stræti, og eina við Austurstræti. Þá er
að nefna timbursölu okkar við Græna-
garð, byggingavörubúð og trésmíða-
verkstæði og enn sláturhús, kjötfrysti-
hús og geymslu, sem starfrækt er allan
ársins hring. í kjötvinnslu kaupfélagsins
starfa sex manns og þar er unnið alit það
álegg, sem félagið selur. Á sl. ári voru
fest kaup á Steypustöðinni hf. sem nú
heitir Steiniðjan og starfa þar tíu menn.
Alls hefur Kaupfélag ísfirðinga á milli
50 og 60 manns í sinni þjónustu.
Það má segja að hér hafi verið all mikil
hreyfing í öllum málum til dæmis erum
við nú nýlega búnir að fá til okkar annað
skipið sem hingað kemur á árinu með
timbur og stál. Þriðja timburskipið fáum
við svo hingað í ágúst, en það kemur
með Rússlandstimbur. Við þykjumst
raunar vissir um að halda okkar hlut í
versluninni, þótt hinu sé ekki að leyna
að okkur finnist hlutur okkar ætti að
vera stærri, því við erum með besta
vöruverð á Vestfjörðum, og er þá miðað
við að eitthvert samval af matvælum sé
talið upp úr körfunni.
Við reynum að veita sem besta
þjónustu eftir því sem aðstæður mögu-
lega gera okkur kleift. Kaupfélag
ísfirðinga er nú í um 30 ára gömlu húsi,
sem er myndarleg bygging en gamal-
dags. Þama þarf að verða breyting á og
við þurfum að koma okkur upp
nútímalegri verslun, til þess að höfða
meir til nútímans. Kaupfélagið hefur
látið gera teikningar að nýju sláturhúsi
sem væntanlega verður byrjað á í sumar
og verður það stórt skref í framfaraátt.
Hins vegar er það af nýju verslunarhúsi
að segja að af því hafa verið gerð tvö
uppköst, en ekki er það mál til lykta leitt
enn. Við höfum nú fengið lóð hjá
bæjaryfirvöldum, en það gekk loks að
loknu talsverðu málastappi og leystist
loks með samkomulagi.
Félagssvæði Kaupfélags ísfirðinga
nær frá Snæfjallaströnd og inn um allt
Djúp til Suðureyrar. Slátrum við fé af
þessu svæði og höfum þjónustu við
bændurna hér með Fagranesinu og eftir
öðrum leiðum til Suðureyrar.
Enn er rétt að nefna að Kaupfélag
ísfirðinga er aðili að Fiskiðjunni Freyju,
á þar 25% eignarhlut og hefur mann í
stjórn. Enn er félagið 10% aðili að
Rækjustöðinni hf., og er fyrirtækið í
okkar húsnæði; Edinborgarhúsinu.
Það er tvennt sem við höfum nú að
meginmarkmiði á afmæli Samvinnu-
hreyfingarinnar en það er í fyrsta lagi
að auka félagsmálastarfið og félags-
málaþáttinn, en í öðru lagi að efla
verslunina, því við þurfum að hafa meiri
hlutdeild í versluninni á Vestfjörðum til
þess að halda okkar hlut og enn til þess
að geta veitt eðlilega og sjálfsagða
þjónustu, eins og kaupfélögunum ber að
gera vítt og breitt um landið. En til þess
■ Hafþór Helgason kaupfélagsstjóri
þarf að vera sæmileg verslun við félagið.
Verslun á ísafirði er dreifð á milli
margra aðila og þyrfti þess með að hún
yrði sameinuð meir. Fyrr á árum stóð
kaupfélagið að verulegri útgerð og
fiskverkun auk þjónustu fyrir byggingar-
iðnað hér á ísafirði og því er ekki að
leyna að um nokkuð undanhald hefur
verið að ræða að þessu leyti á síðari
árum, til dæmis hvað varðar umsvif í
atvinnurekstri. Nú erum við hins vegar
að reyna að hefja sókn á ný.
Við höfum lengi haft áhuga á að ráða
hingað félagsmálafulltrúa og auk þess er
nú verið að gefa út nýtt blað „Samvinnu-
starfið", sem við vonum að verði með
nokkru myndarsniði og ætti það að
koma út tvisvar til þrisvar á ári.
Á síðasta aðalfundi, hinn 12. júní,
kom fram að á síðasta ári skilaði félagið
verulegum hagnaði. Niðurstöður rekst-
ursreikninga urðu 1.8 milljón í hagnað
og eignir jukust verulega. Gefur þetta
tilefni til nokkurrar bjartsýni. Við erum
með mikið af þjálfuðu og ágætu fólki í
okkar þjónustu, þar á meðal færa
iðnaðarmenn í mörgum greinum og það
gerir okkur leikinn auðveldari. -AM
ísafjarðarkaupstaður
Bæjarskrifstofur — Austurvegi 2 — 400 ísafjörður — Sími (94)3722
Gefið yður góðan tíma er þér eigið leið um til að njóta þess er við höfum að bjóðcu
Simdlaug ísafjarðar
Sunnudagur.,
Mánudagur,
1•••#••••••••••
•: p ••♦••••:♦•• • • • •
kl. 10.00-12.00
kl. 7.30-11.00
kl. 14.00-18.00 og
kl. 20.00-21.30
Þriðjudagur.
• • •• II • • • .• •:• • •;:
Miðvikudagur.,
kl. 7.30-11.00
kl. 14.00-18.30 og
kl. 20.00-21.30 konutími
kl. 7.30-11.00
kl.16.00-18.00 og
kl. 20.00-21.30
Fimmtudagur,
••••■••••••
•••••••••••••••
kl. 7.30-11.00
kl. 16.00-18.30 og
kl. 20.00-21.30
kl. 7.30-11.00
kl. 16.00-18.00 og
kl. 20.00- 21.00
Laugardagur........ kl. 10.00-12.00 og
kl. 13.00-16.00
Föstudagur.
Tjaldsteði Isafjarðarbæjar
Við íþróttavellina er rúmgott og þœgilegt tjaldstœði, sem erum 4 km. frá sundlauginnl
Á tjaldstœðinu er snyrtiaðstaða, heitt og kalt vatn, svo og rafmagn.
Gjald fyrir hvert tjald er að sjálfsögðu 0.00 kr. Ekkert gjald fyrir tjaldvagna og hjóUiýsi.
Verið velkomin
ísafjarðarkaupstaður