Tíminn - 08.08.1982, Page 5

Tíminn - 08.08.1982, Page 5
SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 samkvæmt stefnuskrá (prógrammi) sem síðar verður auglýst. Hver sem vill vera viðstaddur, verður að bera á sér til þess gjört einkenni, og fást þau keypt í dag eftir miðdag og á morgun í Garðsverslun og Frydensdalsverslun og kosta 25 aura fyrir fullorðna, en 15 aura fyrir börn 5 til 14 ára (yngri böm hafa frían aðgang). Auk þess verður hver sá, sem hafa viil aðgang að danspalli, sem nú er í smíðum í Dalnum, að bera sérstakt einkenni, fást slík einkenni á sömu stöðum og hin, og kosta 10 aura. Verið getur að einkenni þessi fáist í Dalnum hátíðar- daginn. Álítist ekkert því til fyrirstöðu að hátíðin fari fram nefndan dag, verður íslenska flaggið dregið upp í stöngina á Skansinum kl. 7 um morguninn, að öðrum kosti verður henni frestað þangað til gott veður fæst og annir ekki hamla, og þá gefið nefnt merki. Þess skal getið, að í Dalnum verður fáanlegt til kaups kaffi, sódavatn og vindlar, að öðru leyti er gjört ráð fyrir að hver einstakur vilji veita sér nauðsynjar sínar sjálfur.“ „Hér er ég svo með prógrammið sjáðu: Prógram fyrir Þjóðminningardag Vestmannaeyja 1901 1. Kl. 9 f.m. byrjar kappróður á höfninni. Verðlaun 5 kr. 2. Kl. 11 f.m. koma allir, sem merki hafa keypt eða ætla að kaupa, að þinghúsinu og ganga þaðan inn í Herjólfsdal í einum hóp. 3. Kl. 12 1/2 verður samkoman sett, því næst mælt fyrir minni konungs, Islands og Vestmannaeyja og sungin kvæði á milli. Að því búnu stendur öllum til boða að taka til máls. 4. Kl. 3 byrja glímur, verðlaun 2 krónur, kapphlaup fullorðinna, verð- laun 2 krónur, kapphlaup unglinga, verðlaun 1 króna, pokahlaup stökk og fleira eftir föngum. 5. Kl. 4-5 byrjar dans og varir frameftir kvöldinu eftir kringumstæðum. Söngur öðru hvoru.“ „Undir allt þetta skrifa svokölluð Forstöðunefnd. Ég hef grun um að hreppsnefndin ásamt einhverjum félög- um hafi gengist í að kjósa þessa nefnd. t>að er alla vega ljóst að ekki voru það íþróttafélögin. Það eldra var ekki stofnað fyrr en 1913 og hitt ekki fyrr en 1920. Steinn Sigurðsson, sem var skólastjóri í Eyjum til 1914, var á þessum tíma mjög áhrifaríkur aðili. Og ég tel að skipulagn- ing Þjóðhátíðarinnar hafi að mestu hvílt á hans hefðum.Hann beitti sér fyrir samtökum ungmenna. Með hjálp ung- mennanna byggði hann meðal annars sundskálann á Eiðum í Eyjum árið 1913. Svo það geta allir séð að hann var virtur aðili í þessu starfi.“ Eingöngu Eyjamenn „Til að byrja með voru það eingöngu Eyjamenn sem þátt tóku í hátíðinni. Samgöngur voru þá ekki eins og þær eru núna. Menn fóru ekki að leggja út í það að fara út í Eyjar frá suðurströndinni, nema mikið lægi við. Hættan var sú að menn kæmust ekki heim fyrr en seint og síðarmeir. Dæmi eru til þess að menn urðu að bíða eftir leiði upp að suðurströndinni í þrjá mánuði. Svo þróast þetta. Þegar skipin fóru að ganga á milli lands og Eyja þá fór fólk fyrst að koma til að taka þátt í Þjóðhátíð. Það komu heilu hópamir strax eftir 1905 og 6.“ - Hvað hefur þú tekið þátt í mörgum Þjóðhátíðum? „Við hjónin höfum setið 43 Þjóðhátíð- ir. Á meðan við bjuggum í Eyjum vorum við að heiman þrjár eða fjórar.“ - Hefur ekki svipur hátíðarinnar breyst mikið? „Þú getur farið nærri um það. Með bættum samgöngum hefur aðkomufólki fjölgað með ári hverju. íþróttir setja alltaf meiri svip á Þjóðhátíðina, og þá sérstaklega bjargsig sem náttúrulega er einkennandi fyrir íþróttalíf í Vest- mannaeyjum. Sumum finnst alltof margir sækja Þjóðhátíðina og ég veit það að margir Vestmannaeyingar hafa komið sér úr bænum meðan hún stendur yfir, vegna ■ Frá Þjóðhátíð í Heijólfsdal árið 1904 eða 5. ■ Stefnuskrá (prógram) Þjóðhátíðar árið 1901. Á stefnuskránni er talað um Þjóðminningardag Vestmannaeyja. Virðast bæði nöfnin hafa verið notuð jöfnum höndum. ■ Tilkynning um endurvakningu Þjóðhátíðar árið 1901. þess að þeim fellur ekki það sem kallað er sukk á Þjóðhátíð." Samhuga um að drekka sig fulla - Hefur það verið mikið? „Já oft á tíðum. Þess vegna heyrast þessar tilkynningar í útvarpinu núna. Það er verið að brýna fyrir fólki að halda „þurra“ Þjóðhátíð. Það er eins og sumir menn hafi samhygð um það að drekka sig fulla á öllum skemmtunum. Þeir sækja þær jafnvel um allt land. Nú skilst mér að Eyjamenn vilji breyta til og hafa hátíðina fyrst og fremst fyrir sjálfa sig. Þess vegna færðu þeir hana um eina helgi. Meðan hún var um verslunarmannahelgina áttu allir lands- menn heimangengt." - Ætla þeir þá að vísa gestum frá? „Nei. Það held ég að sé full mikið sagt. Þeir vilja fá gesti, en heilbrigða gesti sem ekki koma í þeim tilgangi að drekka sjg fulla. - Var ekkert um drykkjuskap í upphafi? „Það hefur sennilega alltaf verið eitthvað um drykkjaskap. En ég, fyrir mitt leyti, man ekki eftir áberandi óreglu á fyrstu Þjóðhátíðunum sem ég sótti,“ sagði Þorsteinn. - Sjó. ■ Þinghúsið í Vestmannaeyjum 1857-1905. Þetta þinghús sýslunnar lét Kaptein von Kohl, sýslumaður, byggja á árunum 1856-1857. Við austurenda þess var fangageymsla og fangagarður, sem sést á myndinni. í þinghúsinu hafði Herfylking Vestmannaeyja bældstöð sína. Hús þetta var rifið til grunna árið 1904 og á stæði þess byggt þinghús og bamaskóli undir einu þaki. Við gamla þinghúsið safnaðist fólk saman áður en haldið var á fyrstu Þjóðhátíðamar í Vestmannaeyjum eftir aldamót.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.