Tíminn - 08.08.1982, Síða 16

Tíminn - 08.08.1982, Síða 16
Elo-skákstigin, rétt einu sinni: Kasparov næsthæstur — Aðeins munar 25 stigum á honum og Karpov heimsmeistara ■ Elo-skákstigin eru svolítið umdeild og þá ekki síst tíminn sem fer í þau: að reikna þau fram og aftur, leggja út af þeim, dunda. Hitt er svo annað mál að prófessor Arpad Elo vann verk sitt mjög samviskusamlega, er hann lagði grunn- inn að samnefndum stigaútreikningi skákmanna, og í meginriti sínu, The Rating of Chess-Players, hefur hann gert nokkuð aðgengilega grein fyrir undirstöðunum, þó að vísu sé hætt við að sú greinargerð nýtist iítt stærðfræði- skussum. Elo hefur einnig skemmt sér við að heimfæra stig sín upp á skákmeistara fyrri tíma (en Elo-stigin munu hafa komist í gagnið skömmu fyrir 1970) og er það upp og ofan hversu traustlegur sá reikningur virðist. Pó er mesta furða. Og út frá öllu þessu hefur Elo svo treyst sér til að setja fram nokkui „lögmáf' um styrkleika skák- meistara, en hefur að sönnu talsvert af fyrirvörum þar á. Meðal þessara „lögmála" er eitt sem lýtur að styrkleika með tilliti til aldurs. Elo telur sig sem sé hafa ástæðu til að styrkleiki skákmanna fylgi í stórum dráttum „aldurskúrfu", þannig að hátindinum sé náð við 36 ára aldur og þá sé viðkomandi skákmeistari um það bil 120 Elo-stigum hærri en hann var 21s árs. Síðan sé leiðin niður á við en hægar, og 61s árs hafi skákmaður á ný náð sama marki og við 21s árs aldurinn, svo fremi ekkert óvænt komi upp á. Vassilí Smyslov var 21s árs árið 1942. Hann var þá þegar farinn að láta að sér kveða svo eftir yrði tekið í Sovétríkjunum en spurning hvort árang- ur hans þá jafnast á við annað sæti öidungsins á Las Palmas. Raunar hefur Elo ieitt að því rök að fyrirbæri eins og heimsstyrjaldir hafi jafnan mjög trufl- andi áhrif á þroska skákmeistara og 1942 stóð víst yfir svoleiðis stríð. En hvað með það? Málið er ekkert annað en það að nýlega kom út Elo-skákstigalisti, rétt einu sini, en hann er nú gefinn út tvisvar á ári: um áramót og mitt sumar. Alþjóðlegi listinn lítur svona út, talið ofan frá: 2700 Karpov SM USSR 2675 Kasparov SM USSR 2635 Korchnoi SM Sviss 2630 Hubner SM V-Þýskalandi 2625 Portisch SM Ungverjalandi 2620 Beljavskíj SM USSR 2615 Ljuboievi’c SM Júgóslavíu, Mecking SM Brasilíu.Psakhis AM USSR 2610 Andersson SM Svíþjóð, Tal SM USSR, Pólúgaévskíj SM USSR, Spasskíj SM USSR 2605 Petrósjan SM USSR 2600 Hort SM Tékkóslóvakíu, Timman SM Hollandi 2595 Larsen SM Danmörku, Seirawan SM USA 2590 Browne SM USA 2585 Rómanisjin SM USSR 2580 Ribli SM Ungverjalandi 2575 Tseshkovskíj SM USSR, Sosonko SM Hollandi, Speelman SM Englandi 2570 Kavalek SM USA 2565 Alburt SM USA, Géller SM USSR, Miles SM Englandi, Nunn SM Englandi, Smysiov SM USSR, Smejkal SM Tékkóslóvakíu 2560 Kovacevi’c SM Júgóslavíu, Sax SM Ungverjalandi 2555 Balasjov SM USSR, Dolmatov AM USSR, Túkmakov SM USSR, Júsúpov SM USSR 2550 Krógíus SM USSR, Pinter AM Ungverjaiandi, Vaganjan SM USSR 2545 Kurajica SM Júgóslavíu 2540 Mestel AM Englandi 2535 Facnik SM Tékkóslóvakíu, Ghe- orghiu SM Rúmeníu, Torre SM Filip- seyjum 2530 Agsamov AM USSR, Dorfman SM USSR, Gligori’c SM Júgóslavíu, Kúpreitsjik SM USSR, P. Nikoli’c AM Júgóslavíu, Schmid SM V-Þýskalandi, Steam SM Englandi. 2525 Henley AM USA, Rasjkovskíj SM USSR, Suba SM Rúmeníu 2520 Quinteros SM Argentínu, Van der Wiel AM Hollandi, Tarjan SM USA 2515 Byrne SM USA, Djuri’c AM Júgóslavíu, Evans SM USA, Gúljkó SM USSR, Najdorf SM Argentínu 2510 Adorjan SM Ungverjalandi, Ivano- vic SM Júgóslavíu, Gurevich AM USA, Ögaard AM Noregi, Tæmanov SM USSR, Adorjan SM Ungverjalandi, Uhlmann SM A-Þýskalandi 2505 Christiansen SM USA, Bronstein SM USSR, Chandier AM Englandi, Keene SM Englandi, Kótsév SM USSR, I. Ivanov AM Kanada, Knaak SM A-Pýskalandi, Karlsson AM Svíþjóð, Kúsjmín SM USSR, Makarítsév SM USSR, Lombardy SM USA, Pfleger SM V-Þýskalandi, Rogoff SM USA, Palatn- ik SM USSR 2500 Bagírov SM USSR, Guil. Garcia SM Kúbu, Gúrgenídse SM USSR, Murei AM ísrael, Lerner AM USSR, Panno SM Argentínu, Sunye AM Brasilíu, É. Vladímírov TL USSR 2495 Georgadse SM USSR, Csom SM Ungverjalandi, Kholmov SM USSR, Hulak SM Júgóslavíu, Nei AM USSR, Nogueiras SM Kúbu, Mikhælisjin SM USSR, Friðrik Ólafsson, Rasúvaév SM USSR, Schussler AM Svíþjóð, Svesni- kov SM USSR, Velmirovi’c SM Júgósla- víu. 2490 Dementév TL USSR, Draga SM V-Þýskalandi, Farago SM Ungverja- landi, Reshegvsky SM USA, Parma SM Júgóslavía, Ree SM Hollandi, Shamko- vich SM USA, Vajser TL USSR, Vogt SM A-Þýskalandi 2485 Franco FM Paraguay, Lukacs AM Ungverjalandi, Szabó SM Ungverja- landi, Short AM Englandi, Sanguinetti AM Argentínu, Velikov AM Búlgaríu 2480 Abramovi’c AM Júgóslavíu, Gros- zpeter AM Ungverjalandi, Garcia Pal- ermo AM Argentínu, Filip SM Tékkó- slóvakíu,- Dvoretskíj AM USSER, Fedorowicz AM USA, Grunfeld SM ísrael, Gufeld SM USSR, Kaplan AM USA, Ivkov SM Júgóslavíu, Lein SM USA, Lechntynský AM Tékkóslóvakíu, Kudrin AM USA, Lpútjan TL USSR, Matulovi’c SM Júgóslavíu, Meduna AM Tékkóslóvakíu, Panténkó SM USSR, A. Roderiquez SM Kúbu, Radulov SM Búlgaríu, Sznapik AM Póllandi, Výs- manavín TL USSR 2475 Benjamin AM USA, Tékov AM USSR, Gipslis SM USSR, De Firmian AM USA, Diez de! Corral SM Spáni, Kharitonvo AM USSR, Inkiov AM Búlgaríu, Gutman AM ísrael, Matano- vi’c SM Júgóslavíu, Lúkín TL USSR, A. Petrósjan AM USSR, Mikhæl Tsætlín AM USSR, Shiraxi AM íran, Schmidt SM Póllandi, Timosénkó SM USSR, Júdasín TL USSR, Zuckerman AM USA. 2470 Averbakh SM USSR, Buki’c SM Júgóslavíu, Térnín AM USSR, Benkö SM USA, Cebalo AM Júgóslavíu, Dvojris TL USSR, Gavrikov TL USSR, Lobron AM V-Þýskalandi, Peters AM USA, Guðmundur Sigurjónsson, Spagg- ett AM Kanada, Stúrúa TL USSR, Sahovi’c SM Júgóslavíu, Vítólíns AM USSR 2465 Ermenkov SM Búigaríu, Didisjkó TL USSR, Kindermann AM V-Þýska- landi, Kogan AM USA, Kristiansen AM Danmörku, Knezevi’c SM Júgó- slavíu, P. Littlewood AM Englandi, Ligterink AM Hollandi, Rivas AM Spáni, Sofrevski AM Júgóslavíu, Sinti’c AM Júgóslavíu, Vasjúkov SM USSR, Taulbut AM Englandi, Unzicker AM ■ Garri Kasparov V-Þýskalandi, Van der Sterren AM Hollandi, Savon SM USSR, Sídkov TL USSR, B. Valdímírov AM USSR 2460 Térníkov TL USSR, Commons AM USA, Frey AM Mexíkó. Dzindizi- chashvili SM USA, Hartston AM Englandi, Liberzon SM ísrael, Mednis AM Júgóslavíu, Sharif AM íran, Tringov SM Búlgaríu, Wedberg AM Svíþjóð, Sjúravlíov TL USSR, Verduga AM Ecuador, Vuki’c SM Júgóslavíu. 2455 Jón L. Árnason, Biyiasas SM USA, Dueball AM V-Þýskalandi, Jansa SM Tékkóslóvakíu, Hecht SM V-Þýska- landi, Kapengut TL USSR, Mariotti SM Ítalíu, Nikoac SM Júgóslavíu, Osnos AM USSR, Pachman SM V-Þýskalandi, Mark Tsætiín AM USSR, Soltos SM USA, Schneider AM Svíþjóð, Wein- stein AM USA, Vilela AM Kúbu, Vórótníkov TL USSR. 2450 Bleiman AM ísrael, Ambroz AM Tékkóslóvakíu, Averkin AM USSR, Campora TL Argentínu, Bonch AM A-Þýskalandi, Aníkaév AM USSR, Eingorn TL USSR, H.-U. Grunberg FM A-Þýskalandi, Georgiev AM Búlga- ríu, Ehlvest TL USSR, Klovan AM USSR, Hazai AM Ungverjalandi, Mar- janovic SM Júgóslavíu, Morovic AM Chile, Múkhín TL USSR, Kuligowski SM Póliandi, Podgaéts AM USSR, Pelts FM Kanada, Ornstein AM Svíþjóð, Peresýpkín TL USSR, Spassov SM Búlgaríu, Scheeren FM Hollandi, Stoica AM Rúmeníu, Vukevich TL USA, Zwaig AM Noregi. „SM“ þýðir að sjálfsögðu stórmeist- ari, „AM“alþjóðlegur, „FM“ FIDE- meistari og „TL“ titilslaus. Geta má þess að þó nokkrir alþjóðleg- ir meistarar hafa þegar tryggt sér stórmeistaratitla svo við vitum til þó nafnbótin komi ekki formlega fyrr en á FlDE-þinginu í haust: við vitum um Tékkann Lechtynský, Bandaríkjamann- inn Fedorowicz, sennilega Van der Wiel frá Hollandi, auk þess sem Dolmatov frá Sovefríkjunum og Pinter frá Ung- verjalandi hljóta nú báðir að hafa tryggt sér titilinn og þá líklega Psakhis líka. En annars eiga Sovétríkin nátturlega flesta stórmeistara, eða 43 talsins ef rétt er farið með, Júgóslavar koma næstir með 29 (en stórmeistar þeirra eru að vísu fæstir stigaháir, hvemig sem á stendur), Bandaríkjamenn eiga svona 19 og þá koma Ungverjar um það bil 15. Ef allt væri með felldu er nátturlega ljóst að Sovétmenn myndu eiga miklu fleiri stórmeistara, það sést til dæmis af þeim fjölda titiislausra Sovétmanna sem skjóta sér upp á milli alþjóðlegu og stórmeistaranna. Á bilinu 2450-2500 em 20 titillausir Sovétmenn en aðeins tveir nafnbótarlausir „útlendingar“, og þeir hafa báðir 2450 stig: Campora frá Argentínu og Vukevich frá Júgóslavíu sem býr nú í Bandaríkjunum. Nefna má og að af 90 skákmönnum sem hafa 2500 stig og yfir (við gemmst svo djarfir að sleppa Mecking, hann er ekki virkur lengur og dettur brátt út af listanum) em 33 Sovétmenn og raunar 39 ef þeir em teknir með sem ýmist hafa flust eða flúið frá heimalandi sínu. Ef aðeins em teknir þeir sem hafa 2550 stig og þar yfir kemur í ljós að þeir era 39 og þar af 18 Sovétmenn. Auk þess eru Korchnoi, Sosonko og Alburt Sovétmenn að uppmna svo raunar em þeir 21. Það er því enn býsna langt í að Sovétríkin glati yfirburðastöðu sinni, þó auðvitað sé rétt að þeir Sovétar em ekki jafn dómíner- andi á skákmótum og hér áður fyrr. Annars er fremur fátt stórtíðinda af listanum frá þvf fyrir hálfu ári. Mesta athygli vekur náttúmlega að Garrí Kasparov er orðinn annar stigahæsti skákmaður heims með hvorki meira né minna en 2675 stig og má það hcita býsna gott af 19 ára stráklingi að vera! Karpov sjálfur hefur dottið niður um 25 stig og ef svo fer fram sem horfir má hann fara að vara sig. Nú er bara að vona að Kasparov fatist ekki á millisvæðamótinu í Moskvu sem hefst innan tíðar. Annað sem kannski ekki kemur á óvart er fall Timmans, en hann hefur hrapað um 55 stig síðan síðast, þegar hann var annar hæsti skákmaður í heimi. Korchnoi heldur áfram að iækka, en aðrir á toppnum halda flestir stöðu sinni svona nokkum veginn, Spasskíj hefur þó Iækkað svolítið og Larsen er kominn niður fyrir 2600 stig. Jafnteflis- kóngurinn Balasjov hefur hrapað og átti það inni! Annað sem vekur athygli er sterk pappírsstaða Bandaríkjamanna og Englendinga. Að vísu má gera ráð fyrir að Walter Browne lækki mikið eftir hörmulega frammistöðu á millisvæða- mótinu á Kanaríeyjum en Bandaríkja- menn virðast, eftir nokkur fremur mögur ár, vera að eignast nýja sveit stórmeistara sem geta látið mjög að sér kveða. En þeir eru flestir mistækir, Christiansen hefur hrapað um ein 70 stig á hálfu ári. Það er líka eftirtektarvert að enginn fjögurra stigahæstu manna Bandaríkjanna er fæddur í Bandaríkjun- um: Seirawan er Sýrlendingur, Browne Ástralíumaður, Kavalek Tékki og Al burt Úkraínumaður. Af Englendingum er það að segja að Miles á nú ekki aðeins í harðri keppni um efsta sæti Englands við Nunn heldur og Speelman. Það verður gaman að sjá hver verður efstur í ensku sveitinni á ólympíumótinu í haust! A íslenska Elo-listanum em nú yfir 43 skákmenn yfir 2200 stig, hæstir em þessir: 2495 - Friðrik Ólafsson 2470 - Guðmundur Sigurjónsson 2455 - Jón L. Ámason 2430 - Helgi Ólafsson og Ingi R. Jóhannsson 2420 - Margeir Pétursson 2415 - Haukur Angantýsson 2405 - Ingvar Ásmundsson 2400 - Jóhann Hjartarson 2390 - Jón Kristinsson 2380 - Sævar Bjamason 2360 - Elvar Guðmundsson 2355 - Benóný Benediktsson 2330 - Björn Þorsteinsson 2320 - Jón Þorsteinsson 2315 - Jóhannes Gísli Jónsson 2310 - Karl Þorsteins 2305 - Gunnar Gunnarsson Breytingar em fremur litlar nema hvað Friðrik Ólafsson er nú í fyrsta sinn kominn niður fyrir 2500 stig. Guðmund- ur Sigurjónsson fetar sig hins vegar upp á við á nýjan leik, og stefnir vonandi hærra. Hugum þá að kvennalistanum. Þær konur sem em yfir 2200 Elo-stigum em eftirtaldar (og athugið að titlar miðast að sjálfsögðu við kvennatitla): 2385 Mæja Tjíbúrdanídse SM USSR 2370 Nana Alexandría SM USSR 2330 Alla Kushnir SM ísrael 2325 Nona Gaprindasvflí SM USSR, Nana Jóselíaní SM USSR 2310 Elena Ahmilovskæja SM USSR 2275 Marta Litinskæja SM USSR 2265 Diana Savereide AM USA 2260 Pia Cramling TL Svíþjóð 2255 Maria Ivanka SM Ungverjalandi 2240 Írína Levitína SM LISSR, Jana Miles (Plaskett???) AM Englandi. Hér em yfirburðir sovésku kvenn- anna nær algerir og að sjálfsögðu er Alla Kushnir, sú eina sem ógnar sovésku konunum að ráði, fædd og uppalin í Sovétríkjunum. En svo sem sjá má er sænska stúlkan Pia Cramling á hraðri uppleið og aldrei að vita hvar hún endar, Pia hefur sem kunnugt er gert sér lítið fyrir og unnið karlamót eins og ekkert sé en það leika ekki margar konur eftir henni. Á toppnum munar nú ekki miklu á heimsmeistaranum Tjíbúrdanídse og Nönu Alexandríu cn þær skildu jafnar í heimsmeistaraeinvígi á síðasta ári, sem menn muna, og hélt Tjíbúrdanídse því titlinum. Þrjár íslenskar konur eru á Elo-lista kvenna en engin þeirra veru-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.