Tíminn - 08.08.1982, Page 20

Tíminn - 08.08.1982, Page 20
SUNNUDAGÚR 8. ÁGÚST 1982 20 nútfminn Umsjón Friðrik Indriðason og Viðar Karlsson SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. ________T.S? Hverfisgötu 33 Simi 20560 ÓSA Prentar hún peninga? Ne, engetursparaóstórfé! U-BÍX100 15 Ijósrit á mínútu, á venjulegan pappír, þitt eigið bréfsefni eða glærur. Bandaríkjunum haustið 1980 og í Japan snemma árs 1981. Plötumar sýna því vel þá breytingu sem orðið hefur á tónlist hljómsveitarinnar á þessu fimm ára tímabili. Einnig er kærkomið að eignast tónleikaplötu með hljómsveitinni og því mikla og góða aðstoðarliði sem var með þeim á árunum 1980 og 1981. Sem sagt ein af bestu tónleikaplötum sem ég hef heyrt um dagana. Bestu lög: Það er eiginlega vonlaust að taka einhver örfá lög og segja þau best af öllum þessum fjölda frábærra laga. vika. Steve Forbert: Steve Forbert. Epic/Steinar hf. ■ Hér er á ferðinni fjórða breiðskífa Forberts. Áður hefur hann gefið út breiðskífurnar Alive On Arrival (1978), Jackrabbit Slim (1979) en á henni eru lögin Romeo’s Tune og Say Goodbye To Little Jo, sem náðu miklum vinsældum á sínum tíma, og Little Stevie Orbit sem út kom 1980. Talking Heads: The Name Of This Band Is Talking Heads. Sire/Fálkinn. ■ Hljómsveitin Talandi höfuð var ein af fyrstu bandarísku alvöru nýbylgju hljómsveitunum. Hún varð til í New York smátt og smátt árið 1976. Ári síðar gáfu þau út sína fyrstu breiðskífu sem einfaldlega fékk nafnið 77. Síðan eru bráðum fimm ár og allan þann tíma hef ég verið þeirra einlægur aðdáandi. Að sjálfsögu hefur tónlist þeirra breyst nokkuð á þessu tímabili og þá ekki síst fyrir tilstuðlan snillingsins Brian Eno sem hóf að stjórna upptökum þeirra árið 1978: Fyrsta platan hans með hljómsveit- inni var More Songs About Buildings And Food. Árið 1979 gáfu þau út sína þriðju plötu, meistarastykkið Fear Of Music og ári síðar annað ekki síðra Remain In Light. Þessi nýja plata Talking Heads er tvöföld hljómleika- plata. Fyrri platan er tekin upp á árunum 1977 og 1979 en sú síðari á tónleikum í plötur — plötur — plötur Á þessari nýju plötu notar Forbert sama upptökustjóra og á sinni fyrstu plötu en það má segja að það sé það eina sem þær eiga sameiginlegt, því tónlist Forberts á þessari plötu er mjög ólík því sem hann var að gera á sínum fyrstu plötum. Fyrri plöturhans fjölluðu allar um reynslu hans sjálfs, en á þessari, sem að sögn hans á að vera eingöngu til skemmtunar, er yrkisefnið héðan og þaðan. Einhvern veginn finnst mér eins og Forbert hafi ekki gefið nógu mikið af sjálfum sér í þessa plötu. Kannski er hann orðinn prisoner of stardom eins og stúlkan sem hann syngur um í sam- nefndu lagi á plötunni. Allavega þá varð ég fyrir svolitlum vonbrigðum með þessa plötu kappans. Ég hef alveg frá upphafi verið mikill aðdáandi Forberts og verð að segja að þessi plata er að mínu áliti hans versta til þessa. Svo ég víki nú að tónlist piltsins, því ekki hafa allir heyrt hans hugljúfu og jafnframt hásu rödd, þá er hér um að ræða rólegt amerískt rokk undir sterkum áhrifum sveitatón- listar, jafnvel svo sterkum að á nýju plötunni nýtur Forbert aðstoðar söng- ' flokksins The Jordanaires í nokkrum , íögum, en þessi flokkur aðstoðaði Elvis Presley á sínum tíma í mörgum af hans frægustu sveitalögum. Á fyrstu plötum Forberts var kassagítarinn aðalhljóð- færið en nú hafa flóknari hljómsveitar- útsetningar orðið miklu meira áberandi og að mínu áliti ekki haft bætandi áhrif á tónlistina. En þrátt fyrir allt þá hefur hann Steve einhvern sjarma og ég fæ mér örugglega næstu plötu hans. Bestu lög: When You Walk In The Room, Listen To Me oe Beautiful Diana. vika. Joe Jackson: Night and day. A&M/ Steinar hf. ■ Ég hef eiginlega engin orð til að lýsa þessari nýju breiðskífu Joe Jacksons, frábær, stórkostleg, öll orð verða klisjukend og dauð. En þetta er ein sú besta plata sem ég hef heyrt. Loksins hefur Joe fundið sig tónlistarlega. Tónlistin er rokk undir mjög sterkum áhrifum frá suður-amerískri valsatónlist og jazzi. Á köflum svo sterkum að rokkið gersamlega hverfur. Útkoman verður róleg og yfirveguð plata sem vinnur á við hverja hlustun. Joe Jackson fæddist í Burton-upon- Trent í Englandi. Hann er sjálfmennt- aður á píanó og gaf út sína fyrstu breiðskífu Look Sharp í janúar 1979. Sú plata náði fljótt miklum vinsældum beggja vegna Atlants ála. Sama haust sendi hann breiðskífuna I’m The Man á markað. Hún fylgdi vinsældum Look.. eftir. Eftir útkomu þeirrar plötu ákvað Jackson að breyta algjörlega um tónlistarstíl. í stað þess að gera rokk- plötu eins og fyrri plötumar voru ákvað hann að gera tilraun með reggae og ska. Útkomuna er að finna á breiðskífunni Beat Crazy sem út kom í ágúst 1980. Platan var eginlega langt á undan sinni samtíð og náði ekki að fylgja vinsældum fyrri platnanna eftir. Én Jackson hélt ótrauður áfram. Hann skipti um meðspilara og setti saman „swing band“. Hugmyndin var í fyrstu aðeins að leika á nokkrum klúbbum í London og ef til vill að gera smáskífu. En fljótlega var ákveðið að gera breiðskífu sem hlaut nafnið Joe Jack- son’s Jumpin’Jive og kom út í júlí 1981. Af þessu má sjá að Jackson er ekki hræddur við að breyta um stíl og kemur víða við. Það má því alveg eins eiga von á því að á næstu plötu hans verði enn ein tilraun þrátt fyrir þá fullkomnum sem hann nær á Night And Day. Bestu lög: Öll. vika • Öll almenn prentun • Litprentun • Tölvueyðublöð • Tölvusettir strikaformar • Hönnun • Setning • Filmu- og plötugerð Prentun • Bókband. PRENTSMIÐJAN Cjja ... SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 45000 OMRON. OMRON búðarkassar fyrir minni og stærri fyrirtæki fyrirliggjandi. Verð frá kr. 6.895.00 yMIC^ % SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. Hverfisgötu 33 Simi 20560

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.