Tíminn - 08.08.1982, Side 23

Tíminn - 08.08.1982, Side 23
SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 BLÓÐBAÐ SÖGUNNAR ÓNIR MUNU ISARANN!” ■ Áður en „Kamikaze" flugmaður leggur upp í síðustu ferð sína er bundið um hann „Hachimaki“ - ennisband sem hinir fornu Samurai-hermenn báru. ■ „Kamikaze“ flugmaður gerir tilraun til að steypa vél sinni á bandaríska flugmóðurskipið Sangamon. Hann hitti ekki. höfðu Bretar og Bandaríkjamenn á þessu svæði um það bil þrjátíu flugvélamóðurskip, 78 léttari fylgdar- flugvélarskip, 29 orrustuskip, meira en 50 beitiskip og vel yfír 330 tundurspilla, auk 3000 stórra landgönguskipa. Innrásaráætlanir Bandamanna Herinn sem lenda átti í Kyushu átti að vera undir stjóm Kmegers hershöfð- ingja, en það var sjötti her Bandaríkja- manna. Mjög skiptar skoðanir vom um það hversu miklu mannfalli mætti reikna með. Marshall hershöfðingi óttaðist að öll áætlunin „Downfall“ - það er að segja bæði „Olympic" og „Coronet" - myndi kosta um 250 þúsund fallna í liði Bandamanna, en í áætlun herstjómar- innar var búist við að fyrsta mánuðinn, meðan hersveitirnar væra að koma sér fyrir á ströndinni, væri ekki óraunhæft að gera „aðeins“ ráð fyrir 30-35 þúsund föllnum. En Japanir vom ákveðnir í að gera betur. Þeir vissu náttúmlega að þeir vom búnir að tapa stríðinu og gætu aldrei gert sér vonir um að sigrast á Bandamönnum en með því að hrinda innrásunum á japönsku eyjamar von- uðu þeir að þeir gætu fengið Bandamenn til að falla frá kröfum sínum um skilyrðislausa uppgjöf, en slíkir skilmál- ar vom þeim mikill þyrnir í augum. Ef þeir gætu aðeins hrint fyrstu innrásinni og komið því til leiðar að mannfall í liði Bandamanna væri gífurlegt töldu Japan- ir að ekki væri óhugsandi að yfirstjóm Bandamanna félli frá kröfunni um skilyrðislausa uppgjöf, enda væm þjóðir þeirra þá orðnar þreyttar á stríðinu sem aðeins væri formsatriði að ljúka - formsatriði sem þó myndi kosta ótrúleg- ar fórnir. Allur sá herstyrkur sem Japanir áttu til skyldi því lagöur í að verjast innrásinni á Kyushu en því fylgdi að heraflinn annars staðar í landinu var lítill og illa búinn. Hajime Sugiyama marskálkur, sem stjómaði vömum japönsku eyjanna, orðaði þetta svona: „Lykillinn að endanlegum sigri“ - en um endalegan sigur vom Japanir enn að tala! - „er að eyðileggja óvinaherina meðan þeir em enn í fjömborðinu og lendingum er ekki lokið. Sumir höfðu ekki einkennisbúning Sumarið 1945 höfðu Japanir sex milljónir manna undir vopnum en þar af vom tæplega tveir þriðju í Kóreu, Mansjúríu (þar sem búist var við innrás Sovétmanna á hverri stundu) og í einangruðum virkjum hér og þar í Kyrrahafi og í Kína. Herinn á heimaeyj- unum taldi 2.3 milljónir reglulegra hermanna og auk þess þrjár milljónir varaliða. Sérhver karlmaður á þolanleg- um aldri hafði þegar verið kallaður í herinn en margar deildir nýliða vom mjög illa útbúnar og sumar þeirra höfðu ekki einu sinni einkennisbúninga til að klæða sig í. Fátt var um flutningatæki og eldsneyti sem fyrr segir af skomum skammti, að ekki sé fastar að orði kveðið. Mestöll iðnaðarframleiðsla í landinu var í rústum eftir hinar geysihörðu loftárásir sem framkvæmdar vom með B-29 sprengjuflugvélum sem Japanir áttu engin svör við. Loftárásirnar höfðu aukist gífurlega síðustu mánuði og vom nú nær linnulausar. Boeing B-29 vélamar, sem nefndar vom Superfortress, vom afar langfleygar og bám mikið magn af sprengjum en það sem fór þó lengst með að drepa niður baráttuþrek Japana vom eldsprengjuárásimar. í ágúst 1945 tilkynnti yfirmaður sprengjusveitanna, LeMay hershöfðingi, að 58 stórborgir í Japan hefðu orðið illa úti í árásunum sem einar saman myndu brátt leiða til þess að Japan „yrði barið aftur á miðaldir". Og rétt er að hafa í huga að eldsprengjuárásimar höfðu miklu hrylli- legri afleiðingar en atómsprengjumar tvær, sé geislavirknin undanskilin. 78 þúsundir féllu í einni loftárás Dagana 9.-10. maí 1945 gerðu 325 B-29 vélar eina hörðustu loftárás sem um getur í sögunni en þá var 41 ferkílómetri af borgarsvæði Tokyo lagður fullkomlega í eyði. Manntjón var ógurlegt, 84 þúsundir létu lífið en rúmlega 100 þúsundir særðust meira eða minna. Þetta er töluvert meira en kjamorkuárásin í Hiroshima en þar féllu 78 þúsund manns og 68 þúsund særðust, þó að vísu jafnist þetta manntjón ekki á við hina hræðilegu loftárás Breta á þýsku borgina Dresden þar sem 137 þúsundir létu lífið á einni nóttu. Rétt fyrir stríðslok gerðu sprengjusveitir LeMay svo mikla árás á borgina Toyama og eftir árásina var tilkynnt að hvorki meira né minna en 99.5% borgarinnar væm rústir einar. Japanir áttu þegar hér var komið aðeins lítinn flugflota og tókst ekki að skjóta niður nema fáeinar B-29 vélar í hverri loftárás: það kemur varla á óvart að árangursríkast reyndist þegar flugmennirnir tóku upp á því að fljúga vélum sínum beint á bandarísku sprengjuflugvélamar. En alla vega vom þessar árásir svo gífurlegar að þær áttu sinn þátt í því að Japanir tóku á endanum þá ákvörðun að gefast upp, eftir að atómsprengjurnar tvær höfðu endanlega fært þeim heim sanninn um að frekari mótspyma væri þýðingarlaus. Þeir höfðu auk þess frétt af því að Bandaríkjamenn væru um það bil að taka í notkun enn stærri og fullkomnari sprengjuflugvél en B-29, það er að segja B-32 Dominator, og leist ekki á þann sprengjukraft sem þær vélar höfðu. 28 milljón manna sjálf- boðaher En svo aftur sé vikið ofan á land þá bjuggust Japanir þar til vamar gegn innrás sem sjálfsagt hefði orðið ef atómsprengjumar hefðu ekki verið sprengdar yfir Hiroshima og Nagasaki. í nóvember 1944 höfðu allir karlmenn á aldrinum 14-61 og allar konur á aldrinum 17-41 verið skikkaðar til að láta skrá sig til þeirrar herþjónustu sem óskað væri og myndaður var 28 milljón manna sjálfboðaliðaher um landið allt. Utsendarar frá herstjórninni fóm um landið, útbýttu þeim fáu vopnum sem herstjómin var aflögufær með og kenndu þessum nýliðum nokkur undir- stöðuatriði í hemaðarlist. Þau undir- stöðuatriði fólust einkum í því að kenna fóikinu að búa til heimatílbúnar eld- sprengjur, alls konar sjálfsmorðsgildmr og grófar byssur sem aðeins gátu skotið einu skoti. Þeim sem engin vopn höfðu var sagt að leggja rækt við fomar sjálfsvamarlistir Japana og margir kúrs- ar vom haldnir fyrir konur sem áttu að kenna þeim að miða spörkum sínum á viðkvæmustu staði innrásarmanna. Alls staðar vom spjöld með markmiðinu: „Hundrað milljónir munu deyja fyrir keisarann og þjóðina!“ Margir yfírmenn hersins frömdu sjálfsmorð Bandaríkjamenn vissu vel hvað til stóð og gripu til þess að varpa tveimur atómsprengjum. Það dugði til þess að Japanir gáfust upp þann 15. ágúst og stríðsátökum var opinberlega lokið. Þó vom margir japanskir hermenn sem ekki gátu sætt sig við uppgjöfina og neituðu að leggja niður vopn, jafnvel þó það kostaði að óhlýðnast keisaranum sem var alvarlegasti glæpur sem Japanir gátu hugsað sér. Fjöldi japanskra flugmanna fór í síðustu kamikaze-ferð sína eftir að uppgjöf hafði verið lýst yfir, en sumir tóku það ráð að fljúga í sjóinn rétt við herskip Bandamanna til að þeir gætu með góöri samvisku fallið fyrir föðurlandið án þess að óhlýðnast Hirohito. Þannig létu margir frammá- menn í japanska hemum líf sitt en aðrir frömdu sjálfsmorð heima fyrir eða í aðalstöðvunum. Svo var til dæmis með Onishi varaflotaforingja sem hafði sett Kamikaze-flugsveitimar á stofn, en hann risti sig á kvið og háis en gætti þess að hafa skurðina ekki djúpa. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum vildi hann vera lengi að deyja! Og honum varð að ósk sinni, hann kvaldist í fimmtán tíma en neitaði læknishjálp allan fima og hélt háfleygar ræður um glóríu kamikaze-flugmannannna. Fær- asti hershöfðingi Japana, Tomoyuki Yamashita, hugðist feta í fótspor flotaforingjans og annarra forsprakka sem tóku sama kost en hætti við í þeirri von að aftaka hans af hendi Banda- manna myndi nægja til að kæla reiði almennings í löndum Bandamanna myndi nægja til að kæla reiði almennings í löndum Bandamanna sem kröfðust þess að Hirohito keisari yrði dreginn fyrir dóm og tekinn af lífi. Enda var Yamashita hengdur en Hirohito lifir enn. Svo það þurfti ekki að koma til innrásarinnar á japönsku eyjarnar sem ef til vill hefði orðið eitthvert mesta blóðbað í sögunni. Japanir vom alla vega staðráðnir í að láta ekki sitt eftir liggja til að svo mætti verða. „Hinar mörgu mannfórnir færöu landinu gæfu...“ En hvemig litu svo þessir sjálfsmorðs- fúsu Japanir á uppgjöfina? Yfirmaður sjálfsmorðssveitar á eynni Hainan segir frá: „Viðbrögð við uppgjöfinni vom svo sem engin, nema hryggð. Þegar ég komst að því skipaði ég svo fyrir að æfingum skyldi haldið áfram og ég tel að það hafi stappað stálinu í menn mína. Að lokum kallaði ég þá alla saman til að ræða hvað gera skyldi. Ég sagði þeim að ég sæi þrjá kosti. Við gætum barist áfram og þannig óhlýðnast keisaranum, við gætum allir framið sjálfsmorð, eða við gætum kosið að lifa enn um sinn og vinna fyrir Japana svo að fórnir félaga okkar í öðmm „sérstökum árásasveit- um“ yrðu ekki til einskis. Eins og ég hafði vonað völdu mennimir þriðja kostinn. Ég er þeirrar skoðunar að menn á borð við þessa menn mfna hafi lagt mjög mikið af mörkum til að endurreisa Japan eftir strfðið.... Menn mínir vora ekki stríðsvélar, þetta vora ungir menn sem elskuðu land sitt og hugsuðu ekki um sjálfa sig. Andinn sem þeir vora haldnir var vissulega innblásinn af hinum fomu stríðsherrum Japans en þegar allt kemur til alls era menn allra þjóða haldnir svipuðum anda í meira eða minna mæli þegar svona stendur á og hann er ekki sérjapanskt fyrirbæri. Ástæðan fyrir uppgangi Japana eftir strfðið er að mínu áliti að hinar mörgu mannfómir færðu landinu gæfu.“ Hvemig það kemur heim og saman upplýsti maðurinn ekki.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.