Tíminn - 10.08.1982, Blaðsíða 11
mmtm
ÞRIÐJUDAGUR 10. AGUST 1982
ÞRIÐJUDAGUR 10. AGUST 1982
JÍ'iSiIÍ
Vilhjálmur
sigradi med
yfirburöum á
Öldunga-
meistaramóti
GR
■ Tuttugu og fimnt keppendur
tóku þátt í Oldungameistaramóti
Golfklúbbs Rcykjavíkur sem fram
fór um verslunarmannahelgina. Ald-
urstakmark var 55 ár og keppt var
með og án forgjafar. 36 holur voru
spilaðar. ~
í keppni án forgjafar sigraði
Vilhjálmur Ólafsson, á 156 höggum.
í öðru sseti Jenti Ólafur Ág.
Ólafsson, 171 högg og í þriðja Sverrir
Norland, 172 högg.
í keppni með forgjöf var Vilhjálm-
ur Ólafsson í fyrsta sa-ti 156 högg. í
öðru til þriðja sæti voru þeir Valur
Fannar og Sverrir Norland, báðir á
142 höggum. _ Sjó.
I
Staöan l.deild
■ Staðan í 1. deild er mjög óljós
eftir leiki hclgarinnar, eins og Jiún
hefur raunar verið í ailt-sumar. Það
er athyglisvert, að öll liðin i deildinni
skuli fræðilega hafa mpguleika á sigri
og einnig á að falla í 2. deild.
Víkingar eru efstir og elga að auki
leik til góða og hið sama má sVgja
um ÍBV sem fylgja þeini fast á eftir
ásamt KR-ingum. Hver einasti leiks
ur í deildinni er ciginlega úrslita-
leikur og það er áreiðanlegt að liðin
eiga eftir að bcrjast af mikilli hörku
nú á næstu vikum. En staðan er sem
hér segir:
Víkingur .... 12 5 6 1 20:14 16
Vestm.eyjar ... 12 6 2 4 15:11 14
KR . ..... 13 3 8 2 9:10 14
Valur .... 14 5 3 6 15:13 13
KA........ 14 3 5 5 12:13 13
Breiðablik ... 14 5 3 6 14:17 13
Kefiavik .... 13 5 3 5 12:15 13
Fram...... 13 3 6 4 14:13 12
Akranes .... 13 4 4 5 14:15 12
ísafjörður ... 14 4 4 6 19:23 12
Markahæstu leikmenn eru:
- lleimir Karlsson, Víking, 9
Sigurður Grétarsson, Breiðabl. 6
„Gömlu”
mennirnir
skildu jafnir
■ Um helgina léku ÍBA og Vík-
ingur í eldri flokki á íslandsmótinu á
Akurcyri. Lciknum lauk með jafn-
tefii. Bæði liðin skoruðu tvö mörk.
Fyrir ÍBA skoruðu Ároi Gunnarsson
og Benedik! Guðmundsson, en Kári
Kaaber skoraði fyrir Víking bæði
mörkin. Þrjú lið eiga möguleika á
að komast í úrslit, Víkingur, ÍBA og
KR, en keppinautur þeirra verður
lið Fram. Sh
Úrslitakeppni
4. deildar
■ Úrslitakeppni 4. deildar hefst í
þessari viku og verða fyrstu lcikirnir
leiknir á miðvikudag. Það eru
sigurvegarar t riðlunum sem leika til
úrslita og tvö lið sem verða efst í
úrslitakeppninni leika í 3. deild á
næsta keppnistímabili. Náhar verður
greint frá þessari keppni síðar/ Sh
Nýr umsjónar-
maöur íþrótta-
síöunnar
■ Ingólfur llannesson, sem gegnt
hefur starfi íþróttafréttamanns hér á
Ttmanum í sumar, er á föram til
Noregs til náms. Við starfi hans
tekur Sigurður Helgason. Sigurður
er bókavörður að mennt og hefur
hann fengist nokknð við skrif í
dagblöð síðustu misserin. Þá hefur
Sigurður verið annar tveggja rit-
stjóra tímaritsins Allt nm knatt-
spyrnu.
MÍ í frjálsum íþróttum, 16 ára og yngri:
Valsmenn
fóru létt
með ÍBÍ
■ Enginn vafi leikur á því að
Valsmenn hafa flogið vestur á ísafjörð
á laugardaginn með því hugarfari að
vinna góðan sigur á heimamönnum, sem
gert hafa þeim lífið leitt með „kærumáli-
nu“ fræga. Enda gerðu þeir sér litið fyrir
og unnu meðfjórum mörkum gegn einu.
Ingi Björn skoraði fyrsta mark
leiksins á 7. mínútu og skömmu síðar
bætti Valur Valsson við öðru marki.
Staðan 2-0 eftir tíu mínútur. Um miðjan
hálfleikinn skoruðu heimamenn. Þar var
Gústaf Baldvinsson á ferð, en hann fékk
góða sendingu frá Jóni Oddssyni.
í síðari hálfleik skoraði Dýri fyrst með
skalla upp úr hornspyrnu og rétt fyrir
leikslok skoraði Jón Gunnar Bergs eftir
sendingu frá Þorsteini Sigurðssyni.
Sigur Valsmanna í þessum leik var
aldrei í hættu og það má segja, að hann
sé sæt hefnd fyrir lokaúrslitin í fyrri
leiknum. Þeirra besti maður var Dýri og
einnig lék Valur vel. Hjá ísfirðingum var
Gústaf bestur. -Sh
1. deild kvenna
Breiðabliksstúlkur
sigurstranglegar
í 4x100 metra hlaupi
■ Bryndís Einarsdóttir skoraði jöfnun-
armark Breiðabliks gegn KR.
■ Senn líður að lokum 1. deildarkepp-
ni kvenna í knattspyrnu. Nokkrir leikir
fóru fram í síðustu viku. íslandsmeistar-
ar Breiðabliks léku gegn KR og þar
gerðu dömurnar sér lítið fyrir og náðu
stigi af Blikastúlkunum. Leiknum lauk
með jafntefli 1-1 og skoraði Kolbrún
Jóhannesdóttir mark KR, en Bryndís
Einarsdóttir fyrir Breiðablik. Lið Vals
er í miklu stuði um þessar mundir og
þær sigruðu FH 1-0 og sá Kristín Briem
um að skora. Skagakonur unnu Víking
2-0 og þar skoruðu Ragna Lóa og Kristín
Þórðardóttir mörkin. KR-ingar urðu að
lúta í lægra haldi fyrir Val, sem sigraði
3-0 óg þar skoruðu Helena og Ragnhild-
ur mörkin.
Breiðabliksliðið hefur aðeins tapað
einu stigi í keppninni til þessa og því eru
allar líkur á, að þær haldi velli sem
íslandsmeistarar. En þó eiga Valsstúlk-
urnar smá möguleika á sigri, en hann er
ákaflega lítill.
Staðan í 1. deild kvenna er nú þessi:
Breiðablik......... 8 7 1 0 28-4 15
Valur .............. 8 4 3 1 9-4 11
Akranes ........... 7 3 2 2 10-9 8
KR ................. 8 2 4 2 7-8 8
Víkingur............ 8 0 3 5 3-1 3
FH ................. 7 0 1 6 0-20 1
- sh.
Guðni Stefánsson, UMSE í hástökki
1,70 m.
í telpnaflokki:
Helga Magnúsdóttir, UÍA í 100 m.
hlaupi. - Hún hljóp á 12,8 sek. í
undanrásum.
1 4x100 metra hlaupi stráka sigraði
sveit HSK og setti um leið nýtt
íslandsmet 58,0 sek.
Mótsstjóri á Blönduósi var Magnús
Ólafsson á Sveinsstöðum og yfirdómari
var Flemming Jessen frá Hvammstanga.
Mótið var haldið á Blönduósi í tilefni
af 70 ára afmæli USAH sem er á þessu
ári.
Að undanförnu hefur sveitarstjórn
Blönducss staðið fyrir miklum fram-
kvæmdum við íþróttamannvirki á staðn-
um og hafa þau á þann hátt sýnt
íþróttastarfinu mikinn velvilja. Margt
fólk fylgdist með keppninni á Blönduósi
um helgina.
Nánar á morgun.
sh.
■ Bryndís Hólm setti gott íslandsmet í langstökki ú Norðuriandamóti unglmga um
belgina.
■ Um helgina fór fram í nágrenni Osló
landskeppni unglinga á Norðurlöndum í
frjálsum íþróttum. íslendingar mynd-
uðu Uð með Dönum og enda þótt
sveitinni hafi ekki gengið sem skyldi
náðu nokkrir keppendur íslands mjög
góðum árangri.
Hæst ber íslandsmet Bryndísar Hólm
í langstökki, en hún stökk 5,98 og bætti
eigið met um 8 cm. Hún varð í öðru sæti
í langstökkskeppninni. Þá má nefna
árangur Kristjáns Harðarsonar, sem
stökk lengra en gildandi fslandsmet
Vilhjálms Einarssonar, sem sett var fyrir
25 árum. En of mikill meðvindur kemur
í veg fyrir að stökkið 7,50 metrar verði
viðurkennt sem nýtt met.
f stigakeppni piltanna urðu Finnar í
fyrsta sæti með 217 stig. Svíar hlutu 175
stig, Norðmenn 139 og dansk-íslenska
sveitin rak lestina með 129 stig. Norsku
dömurnar hlutu 97 stig og dansk-ís-
lenska kvennaliðið 61. Aðrar þjóðir
voru ekki með í þeirri keppni.
Auk þeirra afreka er fyrr er greint frá
má geta þess að Hrönn Guðmundsdóttir
jafnaði fslandsmetið í 800 metra hlaupi,
sem er 2:06,22 mtn.
■ Um helgina var haldið á Blönduósi
Meistaramót fslands í frjálsum íþróttum
fyrir 16 ára og yngri. Mikill fjöldi tók
þátt í keppninni og voru 430 keppendur
skráðir til leiks frá 19 félögum. Ágætur
árangur náðist í ýmsum greinum og
bestu afrek mótsins urðu:
f strákaflokki:
Finnbogi Gylfason, FH í langstökki 5,04
m.
í stelpuflokki:
Hulda Helgadóttir, HSK í langstökki
5,08 m.
í piltaflokki:
■ ÓH Þér Magttússon skoraði gott mark gegn KA. Hér er hann f harðri baráttu í
leik gegn KR.
■ Haukur Hafsteinsson.
Hann hefur
komið Víði
í úrslitin
■ Hilmar Hafsteinsson þjálfar lið
Víðis í Garði og það er eina liðið sem
nú þegar er gulltryggt í úrslitakeppni 3.
deildar. Hann hefur náð mjög góðum
árangri sem þjálfari meðal annars með
Grindavík, sem leikið hefur til úrslita í
3. dcild undir hans stjórn. Hann hefur
einnig þjálfað yngri flokka hjá ÍBK með
góðum árangri. Nú er Hilmar þjálfari
unglingalandsliðsins 16-18 ára og von-
andi nær hann góðum árangri með það
lið. -sh.
Molar
Arnór skrifar
undir í dag
■ 1 „Ef ekkcrt sérstakt kemur uppá
mun Arnór skrifa undir samning til
eins árs yið Lokeren á morgun."
Þetta voru svör Eiðs Guðjohnsen í
gær, þegar hann var spurður um
stöðu mála hjá Arnóri varðandi
samningsmál hans. „En verði ein-
hver vandræði með það, kemur hann
bara hingað heim og bíður átckta.“
- sh.
Víðir í úrslit,
en hörð
barátta um
hin þrjú sætin
í úrslitunum
■ Úrslit leikja í 3. deild um helgina
urðu sem hér segir:A-RH)ILL:
Víðir-HV 2-0
Selfoss-Snæfell 2-1
Víkingur Ó.-Grindavík 1-2
Haukar-Snæfell 4-0
Staðan t A-riðlinunt er sem hér
scgir:
Víðir....... 13 11 1 1 33:9 23
HV......... 13 7 2 4 19:9 16
Selfoss.... 12 6 4 2 17:14 16
Grindavík ..... 13 5 3 5 20:20 13
Víkingur Ó. .. 13 3 4 6 12:21 10
ÍK ......... 12 4 1 7 15:24 9
Haukar...... 13 2 4 7 11:20 8
Snæfell.... 13 3 1 9 10:22 7
B-RIÐILL:
KS-Tindastóll 0-0
Huginn-Árroðinn 3-1
HSÞ-Austri 3-2
Sindri-Magni 1-0
Staðan í B-riðlinum er nú þessi:
Tindastóll . 13 8 4 1 26:11 20
KS.......... 12 9 1 2 36:8 19
Huginn...... 13 8 3 2 26:14 19
HSÞ ......... 12 5 4 3 22:16 14
Austri ...... 12 3 4 5 15:20 10
Magni ....... 13 2 4 7 13:21 8
Árroðinn .... 12 1 2 9 12:30 8
Sindri....... 11 2 0 9 9:29 4
— sh.
GS sigraði
í sveitakeppni
karla
GR sigraði
í kvenna-
keppninni
■ Nú um helgina fór fram sveita-
kcppni landsmótsins í golfi á Hólms-
velli í Leiru. í kurlaflokki sigraði
sveit Golfklúbbs Suðurnesja á 927
höggum. í öðru sæti varð sveit GR
með 948 högg og Golfklúbburinn
Keilir í þriðja sæti með 957 högg.
í kvennaflokki voru þátttökuliðin
aðeins <vö og það voru dömumar úr
GR sem sigraðu á 344 höggum og
sveit Keilis þurfti 30 högg eða 374
samtals.
Ingi Björn
jafnaði
markamet
Matthfasar
■ Valsmaðurinn Ingi. Björn Al-
bertsson jafnaði um helgina niarka-
met Matthíasar Hallgrímssonar í 1.
deild fótboltans, eh það er 94 mörk.
Sá sem er þriðji í röðínni yfir mestu
markaskorarana er Hermann Gunn-
arsson, en hann skoraði 94 mörk á
feriinum í 1. deild.
Tveir judo-
menn til
keppni í Japan
■ Kolbeinn Gíslason og Bjanti
Friðrilusoa halda innan skamms til
Japan, hvar þeir munu taka þátt í
einu stærsta júdómóti sem fram fer i
beiminum á ári bveiju, Opna
japanska metstaramótínu.
Skagamaðurinn Sigurður Lárusson og Framarinn Lárus Grétarsson kljást hér um boltann.
Framarar stálu
öðru stiginu
í lok leiksins gegn ÍA, 2:2
Framarar hreinlega hirtu annað stigið fyrir
framan nefið á Skagamönnum er liðin mættust
í leik á Laugardalsvellinum sl. sunnudags-
kvöld. Skagamennirnir höfðu haft undirtökin
allan leiktímann, en gáfu aðeins eftir í lokin
og þeir misstu 2-0 forystu niður í 2-2 og
skoruðu Framararnir seinna mark sitt aðeins
nokkrum sekúndum fyrr leikslok.
Byrjun leiksins var hin fjörlegasta. Sigþór
var nærri því að skora á 6. mín., en
Guðmundur varði auðveldlega skot hans.
Skömmu seinna átti Kristján góðan skalla
naumlega framhjá. Hinumegin gerði Guð-
mundur Torfason harða hríð að Skagamark-
inu, en Jóni Áskelssyni tókst að bjarga á
marklínu.
Eftir fremur tíðindalítinn miðhluta fyrri
hálfleiks náðu Akurnesingarnir forystunni á
36. mín. Guðmundi Fram-markverði mistókst
að slá boltann frá marki og eftir nokkuð hark
í teiginum potaði Sigurður Lárusson boltanum
í netið, 1-0. Undirtökin voru Skagamanna og
þeir sóttu mjög. Á 42. mín braust Sigþór í
gegnum Framvörnina, gaf á Kristján, sem var
við nærstöngina, en skot hans fór í hliðametið.
Aðeins 4. mín. síðar var Sigþór aftur á
ferðinni, en nú var Kristján við fjærstöngina
og skot hans hafnaði í bláhorni marks Fram,
2-0.
Barningurinn var aðalsmerki fyrri hluta
seinni hálfleiks, Skagamennirnir gáfu eftir
miðjuna og reyndu að skora með skyndisókn-
um. Þeir fengu 3 góð tækifæri til þess, Árni,
Kristján og Sigþór, en mistókst í öll skiptin að
skora. Þegar um 10. mín. voru til leiksloka var
eins og Framararnir vöknuðu til lífsins.
Halldór áttigott skot á Skagamarkið, en Davíð
varði vel. A 83 mín. náði Fram góðri sókn,
Marteinn skallaði fyrir og Viðar þrumaði
boltanum viðstöðulaust í mark, 2-1. Fallegt
mark. Áfram hélt sókn Fram og þegar ófáar
sekúndur voru til leiksloka tókst þeim að
jafna. Eftir hornspyrnu barst knötturinn til
Sverris Einarssonar, þar sem hann stóð
algjörlega óvaldaður á markteigshorninu og
hann þrumaði boltanum rakleitt í netið, 2-2.
Fögnuður Framaranna var mikill að leikslok-
um, skiljanlega.
Akurnesingarnir léku oft á tíðum ágætlega,
einkum framanaf. En þeir gerðu mikil mistök
í seinni hálfleiknum er þeir hreinlega „gáfu“
Frömurum miðjuna. Jafnteflið var nokkurs
konar taktískur ósigur ÍA. Bestan leik í liði
ÍA áttu Jón Gunnlaugsson og Guðjón
Þórðarson. Þá kom Sigþór nokkuð á óvart.
Aðrir leikmenn áttu góða spretti af og til.
Framliðið er slakt þessa dagana og jafnvel
margreyndir landsliðsmenn eins og Trausti og
Guðmundur markvörður gera mörg mistök.
En það er gaman að sjá til liðs sem ekki gefst
upp þó að útlitið sé dökkt um tíma.
-IngH
■ Á laugardaginn áttust lið Keflvík-
inga og KA við á Keflavíkurvelli í 1.
deildarkeppninni í knattspyrnu. Tölu-
verður vindur var meðan á leiknum stóð
og setti sitt mark á hann.
Keflvíkingar léku undan vindinum í
fyrri hálfleik og áttu mýmörg tækifæri til
að skora hjá Akureyringunum. Þá átti
Gunnar Gíslason gott tækifæri til að
skora, en Þorsteinn markvörður Kefl-
víkinga var vel á verði. En það voru
Keflvíkingar sem skoruðu fyrsta mark
leiksins og var þar Óli Þór Magnússon
á ferð. Fékk hann knöttinn í góðu færi
og skoraði örugglega framhjá Aðalsteini
KA-markverði. Staðan í hálfleik var
því 1-0 og töldu menn talsverðar líkur á
að gestirnir næðu að skora og jafnvel
sigra í seinni hálfleiknum.
En þegar 10 mínútur voru liðnar af
seinni hálfleiknum gaf Skúli Rósantsson
góða sendingu fyrir markið, en Ragnari
Margeirssyni voru eitthvað mislagðir
fætur, en það kom ekki að sök, því að
Ingvar Guðmundsson var réttur maður
á réttum stað og skoraði af öryggi annað
mark ÍBK. Og ekki leið á löngu þar til
Skúli endurtók leikinn, nema hvað það
var Ragnar sem náði að skora og staðan
var þá orðin 3-0.
En KA-menn voru ekki á þeim
buxunum að gefast upp og rúmlega 20
mínútum fyrir leikslok einlék Gunnar
Gíslason glæsilega upp völlinn og skaut
glæsilegu skoti sem Þorsteinn réð ekki
við. Og tíu mínútum síðar skoraði
Steingrímur Birgisson fyrir KA eftir
sendingu frá Hinrik Þórhallssyni. Stað-
an orðin 3-2 og tíu mínútur til leiksloka.
En þessar mínútur nicgðu Akureyring-
um ekki til að jafna.
Staðan í dcildinni setti mikinn svip á
þennan leik. Fyrir heimamenn var sigur
nauðsynlegur og KA-menn væru mjög
vel staddir hefðu þeir sigrað. Þeir
leikmenn sem bestan leik sýndu voru
Sigurður Björgvinsson á miðjunni og
Þorsteinn í markinu hjá Keflavík, en
Gunnar Gíslason var bestur hjá KA.
Hvorugt liðið mun eiga rólega daga á
næstunni. KA mun án efa eiga í
erfiðleikum á næstunni vegna fjarveru
Elmars, en það er óþarfi annað en að
spá því að þeir haldi sæti sínu í 1. deild
næsta sumar.
Keflvíkingarnir munu nú á morgun
leika í bikarkeppninni gegn KR í
Keflavík og það verður áreiðanlega
mikill baráttuleikur og ekkert gefið
eftir, því að bæði liðin hafa án efa hug
á að leika til úrslita í bikarkeppninni.
sh
PMDIMVi
KA ógnaði
ÍBK í lokin
En það nægði þeim ekki
HSK setti íslandsmet
Bryndís setti ís
landsmet
Met Kristjáns
ekki viðurkennt
vegna of mikils
meðvinds
Völsungur lagði
Þrótt, Reykjavfk
í 2. deild fótboltans um helgina
■ Heil umferð var leikin í 2. deildarkeppn-
inni nú um helgina. Á föstudagskvöld léku
Njarðvíkurmenn og Fylkir í Njarðvík og unnu
heimamenn sigur með einu marki gegn engu.
Það var Ólafur Bjömsson sem skoraði mark
Njarðvíkinga. Á sama tíma léku Þórsarar
gegn FH á Akureyri. Hvorugu liðinu tókst að
skora mark.
Á laugardag vom leiknir þrír leikir í 2.
deildinni. Mest komu úrslitin í leik Þróttar R.
og Völsungs á óvart. Þróttarar urðu að lúta í
lægra haldi fyrir Norðanmönnum, sem
skomðu tvö mörk gegn engu. Mörkin skoruðu
Kristján Kristjánsson og Hörður Benónýsson.
Á Vopnafirði léku heimamenn gegn Reyni úr
Sandgerði og þeir gerðu sér lítið fyrir og drógu
verulega úr möguleikum Reynismanna á sæti
í 1. deild á næsta ári. Ólafur Jóhannesson
þjálfari Einherja skoraði mark þeirra. f
Borgamesi lék Skallagrímur gegn Þrótti
Neskaupstað og sigmðu heimamenn með einu
marki gegn engu. Bergur Magnússon skoraði
mark Skallagríms og tryggði liði sínu þar með
fyrsta sigur sinn á heimavelli í langan tíma.
Þrátt fyrir tapið er staða Þróttara óneitan-
lega mjög sterk, en liðið er 5 stigum á undan
næstu liðum, sem koma til með að berjast af
mikilli hörku um sæti í 1. deild á næsta
keppnistímabili. Þór Akureyri, FH og Reynir
koma öll mjög sterklega til greina og
ómögulegt er að spá nokkm um hverjir verði
hlutskarpastir. Staðan í 2. deild eftir leiki
helgarinnar er annars þessi:
Þróttur R............... 13 8 4 1 18:7 20
Þór Ak................. 13 4 7 2 24:12 15
Reynir S............... 13 6 3 4 19:11 15
FH ..................... U 5 5 3 16:15 15
Njarðvík............... 13 5 3 4 20:21 13
Völsungur.............. 13 4 4 5 14:14 12
Fylkir 13 1 10 2 13:13 12
Einherji............... 13 5 2 6 18:21 12
Skallagrímur........... 13 3 3 7 11:22 9
Þróttur N.............. 13 2 3 8 5:20 7
Staða neðstu liðanna í deildinni er
óneitanlega erfið, en segja má að ekki sé ýkia
langt í næstu lið. Þess vegna gctur allt gerst.
Næsta umferð í deildinni verður um næstu
helgi. Þá leika FH og Þróttur R., Reynir S.
gegn Þór A., Völsungur og SkaUagrímur,
Þróttur N. á móti Njarðvík og Fylkismenn fá
Vopnfirðinga í heimsókn.